Fréttablaðið - 12.05.2006, Síða 80
48 12. maí 2006 FÖSTUDAGUR
sport@frettabladid.is
Ansi athyglisverð frétt birtist á heima-
síðu ÍBV, ibv.is, í gær en það er Gísli
Hjartarson, meðlimur í knattspyrnudeild
ÍBV, sem ritar. Gísli fékk fyrirliða Úganda,
Andrew Mwesigwa, til félagsins og hann
er ekki hættur að flytja Afríkumenn til
landsins, eða réttara sagt til Vestmanna-
eyja. Gísli mun á næstunni flytja 15-18
ára stráka til Eyja frá Afríku og Banda-
ríkjunum.
Gísli hefur þegar ákveðið að reyna að
koma ungum dreng frá Suður-Afríku,
Wade að nafni, til landsins en þessir
strákar verða allt að tíu vikur í Eyjum.
Einhvers staðar verða þessir blessuðu
menn að gista og því er Gísli búinn að
auglýsa eftir fósturheimilum.
„Þessir strákar eru efnilegir í knattspyrnu
en vantar að koma sér einhvers staðar
á framfæri og það geta þeir ekki heima
hjá sér. Þetta er tilraunaverkefni sem fór
af stað þegar ég fékk Úgandamanninn
hingað. Þessir strákar koma hingað í
gegnum félagsskap manna úti sem
hjálpar strákum sem
eru ekki bara
efnilegir knatt-
spyrnumenn
heldur einnig duglegir
að læra og þeir vilja
halda áfram í
skóla,“ sagði Gísli
við Fréttablað-
ið í gær en
nágrannar
okkar í
Skandin-
avíu hafa farið svipaðar leiðir á síðustu
árum með ágætum árangri og er
nokkuð um Afríkumenn í Norðurlanda-
deildunum að gera það gott. Í Belgíu
gefur síðan að finna heilt lið sem byggt
er upp af Afríkumönnum. En er þetta
framtíðin í Eyjum?
„Ég vona ekki. Þá meina ég
að vonandi höldum við
Eyjamenn áfram að
framleiða góða
knatt- spyrnumenn svo við
þurfum ekki að fylla liðið okkar
af aðkomumönnum. Svo getur þetta
virkað öfugt og við kannski sendum
einhverja af okkar strákum í ein-
hverja ævintýramennsku. Þetta gæti
síðan reynst gjöfult fyrir ÍBV en það
verður tíminn að leiða í ljós,“ sagði
Gísli sem bíður við símann.
GÍSLI HJARTARSON Í KNATTSPYRNUDEILD ÍBV: FLYTUR INN AFRÍSKA KNATTSPYRNUMENN
Vantar fósturheimili fyrir Afríkubúa í Eyjum
FÓTBOLTI Guðjón minnir á að ekk-
ert sé öruggt í hörðum heimi
knattspyrnunnar en segir þó að
hann verði áfram með Notts
County á næsta tímabili. Guðjón
tók við liðinu síðasta sumar og
byrjaði vel, en fljótlega breyttist
tímabilið í hálfgerða martröð hjá
liðinu sem bjargaði sér frá falli úr
deildinni á síðustu andartökunum
í lokaleiknum.
„Þetta hefur verið mjög erfitt.
Þegar ég kem er mér lofað ákveðn-
um fjárhag, og auk þess sagt að ég
fengi pening ef ég sel leikmenn
eða leysi undan samningi. Það
gerðist ekki þar sem allur pening-
urinn fór í rekstur félagsins. Það
var erfiðasti bitinn að kyngja,
maður þarf oft að borga leikmönn-
um fyrir að fara, og þegar maður
er með lítinn pening á milli hand-
anna þá er erfitt að fá til sín sterka
leikmenn,“ sagði Guðjón við
Fréttablaðið í gær, en hann segir
dvölina hfa verið erfiða á tíðum.
„Að mörgu leyti var þetta erfið-
ara en ég bjóst við. Maður verður
bara að takast á við það en
skammdegið var ansi þungt hér á
köflum í vetur,“ sagði Guðjón sem
kveðst þó aldrei hafa ætlað sér að
gefast upp.
„Ég hugsaði aldrei um að hætta.
Ég spurði mig aftur á móti hvort
það yrði þess virði að vera hér
áfram ef engar breytingar myndu
eiga sér stað. Það er ekki mjög
bjart framundan, en það er betra
framundan,“ sagði Guðjón sem
ætlar að gera stórtækar breyting-
ar á leikmannahópnum í sumar.
„Ég er að leita að öllu, ég er
þegar búinn að leysa tólf leikmenn
undan samningi og hugsanlega
eru fleiri á leiðinni út. Ég starfa
við mjög þröngan fjárhag og ætla
að hafa færri leikmenn í hópnum á
næsta tímabili. Að sama skapi
munum við borga þeim meira og
væntanlega fá betri leikmenn um
leið,“ sagði Guðjón sem var með
22 leikmenn í hópnum á tímabilinu
en ætlar að fækka þeim um þrjá.
Guðjón er ekkert að skafa utan
að því þegar kemur að því að tala
um næsta tímabil. „Ég ætla að
gera alvöru atlögu að því að fara
upp. Það er kannski ekki raunhæft
en ég ætla mér það samt. Ég set
mér háleit markmið og nenni ekki
neinu kjaftæði,“ sagði Guðjón
Þórðarson. hjalti@frettabladid.is
Áfram hjá Notts County
Guðjón Þórðarson, knattspyrnustjóri enska 2. deildarfélagsins Notts County,
ætlar að gera miklar breytingar á liðinu í sumar. Guðjón hefur hafið sannkall-
aða vortiltekt hjá félaginu og stefnir rakleiðis upp með liðið á næsta tímabili.
ÁHYGGJUFULLUR Þó Guðjón Þórðarson hafi starfað við þröngan kost í Englandi í vetur
ætlar hann að halda starfinu áfram. Guðjón sést hér áhyggjufullur á hliðarlínunni í vetu en
Notts tapaði mörgum leikjum og rétt slapp við fall. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY IMAGES
HANDBOLTI Í lok handboltavertíð-
ar hefjast vangaveltur um fram-
tíð leikmanna en ljóst má vera að
einhverjar hreyfingar verða á
mönnum og þá sérstaklega hjá
þeim sem eru í neðri deildinni og
geta ekki hugsað sér að spila þar.
Þeir tveir leikmenn sem eru
hvað mest í umræðunni eru
markvörðurinn Björgvin Páll
Gústavsson og Mosfellingurinn
Ernir Hrafn Arnarson.
Björgvin Páll var í láni hjá
ÍBV í vetur frá HK en hann stað-
festi í samtali við Fréttablaðið í
gær að hann yrði ekki áfram í
Eyjum. Einnig væri ljóst að hann
yrði ekki áfram hjá HK þar sem
hann gæti ekki starfað með þjálf-
ara liðsins, Miglius Astrauskas,
en ósætti þeirra á milli varð til
þess að hann fór upphaflega til
Eyja.
Fréttablaðið hefur heimildir
fyrir því að val Björgvins standi
á milli Fram og Hauka.
„Ég er samningsbundinn HK
og er að fá mig lausan þaðan. Ég
veit af áhuga fjögurra liða og það
er allt opið í stöðunni,“ sagði
Björgvin Páll í gær en heimilda-
menn Fréttablaðsins telja líklegt
að hann fari í Fram.
Mosfellingurinn Einar Ingi
Hrafnsson og Víkingurinn Brjánn
Bjarnason hafa líka verið orðaðir
mjög sterklega við Íslandsmeist-
arana í Safamýrinni.
Ernir Hrafn Arnarson er
einnig eftirsóttur en talið er að
val hans standi á milli Vals og
Stjörnunnar. „Ég er óákveðinn.
Ég ætla að klára prófin í skólan-
um fyrst og tek svo ákvörðun.
Það eru tvö til þrjú lið sem ég er
að skoða af alvöru,“ sagði Ernir
Hrafn í gær en heimildamenn
Fréttablaðsins hallast að því að
hann fari í Val.
- hbg
Stóru liðin slást um efnilegustu handboltamenn landsins:
Björgvin í Fram og Ernir í Val?
BJÖRGVIN PÁLL GÚSTAVSSON Ver að öllum
líkindum annað hvort mark Fram eða
Hauka næsta vetur.
> Gunnar til HK
Gunnar Magnússon, sem þjálfaði lið
Víkings/Fjönis í DHL-deild karla í vetur,
hefur verið ráðinn aðstoðarþjálfari
hjá HK auk þess sem hann mun hafa
yfirumsjón með þjálfun yngri flokka hjá
félaginu. Gunnar skrifaði undir þriggja
ára samning en þrátt fyrir að vera aðeins
29 ára býr hann yfir umtalsverðri reynslu
sem þjálfari. Þá hefur einnig verið geng-
ið frá samningum
við Litháann Migli-
us Astrauskas
um að hann
verði
áfram
aðalþjálfari
HK en hann
tók við liðinu fyrir
síðasta tímabil
og náði ágætum
árangri í vetur.
Rúnar hættur
Handboltakappinn Rúnar Sigtryggson
hefur hætt störfum sem framkvæmda-
stjóri Þórs á Akureyri eftir aðeins tæpt
ár í starfi. Rúnar kom heim úr atvinnu-
mennsku fyrir ári síðan og gekk í raðir
Þórs og gerðist framkvæmdastjóri
félagsins við sama tækifæri. Formaður
félagsins, Sigfús Ólafur Helgason, tekur
við starfinu af Rúnari.
FÓTBOLTI Samkvæmt árlegri spá
þjálfara, fyrirliða og forráða-
manna liða í Landsbanka-
deild karla munu Íslands-
meistarar FH verja
titilinn á tímabilinu sem
hefst nú á sunnudaginn.
FH fékk 268 stig í efsta
sætið en saman í 2.-3. sæti
eru ÍA og KR með 247.
Nýliðum Víkings er
spá falli úr deildinni en
þeir höfnuðu í 10. og
neðsta sæti spánnar. Sam-
kvæmt spánni verða það
Eyjamenn sem fylgja Víkingum
niður en ÍBV fékk 82 stig.
Athygli vekur að rétt eins og í
spá Fréttablaðsins, Sýnar og NFS
er Skagamönnum spáð góðu gengi
í ár, en sem kunnugt er hefur
félagið fengið góðan
liðsstyrk í bræðrunum
Þórði og Bjarna Guð-
jónssyni sem og Arnari
Gunnlaugssyni. Ólafur
Þórðarson, þjálfari ÍA,
segir að spáin hafi ekki
komið honum á óvart.
„Við lentum í 2.-3. sæti í
fyrra og ætlum ekki að
standa okkur verr en þá
svo að þetta er í sam-
ræmi við okkar eigin
væntingar. Framan af sumri í
fyrra vorum að slípa saman nýtt
lið en nú þekkja leikmenn betur
hver annan,” sagði Ólafur. - vig
Spá fulltrúa liða í Landsbankadeildinni var kynnt í gær:
FH-ingar verja titilinn
SPÁIN
1. FH 268
2.-3. ÍA 247
2.-3. KR 247
4. Valur 225
5. Keflavík 170
6. Fylkir 150
7.-8. Breiðablik 91
7.-8. Grindavík 91
9. ÍBV 82
10. Víkingur 79
ÞJÁLFARAR LIÐA Í LANDSBANKADEILDINNI Þeir voru að sjálfsögðu mættir á árlegan kynning-
arfund deildarinnar í Smárabíó í gær og stilltu sér upp fyrir ljósmyndara. FRÉTTABLAÐIÐ/ÓMAR