Fréttablaðið - 12.05.2006, Side 88
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000
����������
���������������������
Einkennilegt pláss Kósóvó. Virk-ar á mann eins og utan við allan
veruleika. Samt ótal sögur. Eins og
af karlinum sem á veitingahúsið
Marco Polo. Af einhverjum ástæð-
um var þessi maður, sem býr lengst
inni í landi, sjómaður hér áður fyrr.
Meira að segja útgerðarmaður. Átti
sinn bát og allt.
EINN daginn var bátnum stolið en
stuttu síðar frétti karlinn af honum
einhvers staðar í á sem gengur í
Miðjarðarhafið. Hann samdi við
jaxla í sínu landi um að sækja dall-
inn og greiddi þeim væna fúlgu
fyrir. Þeir fundu dallinn og mis-
munuðu honum niður eftir ánni en á
leiðinni heim, hittu þeir athafna-
menn sem buðu þeim hærra verð
fyrir hann en upphaflegur eigandi
hafði greitt þeim fyrir að sækja
hann. Auðvitað seldu þeir hæstbjóð-
anda skektuna sem þeir áttu ekkert
í. Mánuði seinna frétti fyrrverandi
útgerðarmaðurinn að báturinn hefði
sokkið í Miðjarðarhafið.
NÚ rekur hann veitingahús sem
býður upp á þurrt, grátt ket eins og
svo margir staðir í Kósóvó. Lítur út
eins og úrbeinaður hryggur en er
svo fíngert að maður getur eigin-
lega ekki ímyndað sér að það komi
af stærra dýri en ketti. Búið að
bjástra við að steikja það lengi dags
svo skósólafílíngurinn blívi. Kalla
þetta nautaket. Franskar með. Biðji
maður um sósu, er auðvitað alveg
sjálfsagt að maður fái sveppasósu.
Sósan sú er gúllassúpa sem nokkrum
sneiðum af dósasveppum hefur
verið fleygt út í.
FYRIR utan veitingahúsið nokkur
stykki úr herskara flökkuhunda
sem ganga um Pristínaborg að
kjamsa í sig það sem gestir leifa.
Ærinn skammtur. Þeir eru lúsugir,
skítugir og með hundaæði. Plága í
plássinu. Ekki alls fyrir löngu,
þegar innfæddir voru farnir að vera
nokkuð til friðs og hættir að plaffa
hver annan niður á öllum götuhorn-
um, var hluti af alþjóðahernum,
norski hlutinn, fenginn til þess að
nýta rólega daga í að fækka í liði
flökkuhunda. Þeir réðust í málið af
þaulhugsaðri herkænsku – en
nokkrum dögum seinna fréttist
heim til Noregs að herinn þeirra
væri að slátra hundum, saklausum
dýrum, í Kósóvó. Það varð allt vit-
laust og herinn steinhætti að skjóta
hunda. Nú fjölgar þeim ört.
MÁTTUR dýraverndarsamtaka í
hinum vestræna heimi hefur heila-
þvegið lýðinn svo gersamlega með
sinni pólitísku rétttrúnaðarstefnu
að það er vísast að innan tíðar verð-
um við öll étin af albönskum flökku-
hundum og hvölum úr gæludýra-
fjölskyldunni Keikó.
Kattahryggir og
flökkuhundar
KIA umboðið á Ís landi er í e igu Heklu hf . Laugavegi 172 • Reykjavík • s ími 590 5000
KIA Picanto
393 kr.
KIA Picanto 1,0 LX 5 gíra beinskiptur 5 dyra
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
á dag*
Ótrúlegt en satt
KIA Picanto er lipur, fallegur og nútímalegur
og sparneytinn smábíll með skynsamlegri
rýmisnýtingu og veglegum aukabúnaði. Það sakar
svo ekki að verðið á sér ekki hliðstæðu. KIA
Picanto fimm dyra kostar aðeins 1.195.000 kr.
Picanto er einnig fáanlegur sjálfskiptur, einn fárra
smábíla. Fæst einnig með aflmikilli 75 hestafla
og sérlega sparneytinni dísilvél.
Taktu þátt í HM leik KIA og þú átt
möguleika á frábærri ferð fyrir tvo á
úrslitaleik HM í sumar. Allir sem kaupa
KIA bíl hjá KIA umboðinu til 15. júní eiga
möguleika á þessari frábæru ferð.
*11.807 kr. á mánuði m.v. 30% útborgun og
bílasamning hjá SP fjármögnun í 84 mánuði.
A
u
ka
b
ú
n
að
u
r á
m
yn
d
: á
lfe
lg
u
r
KIA umboðið er eini viðurkenndi sölu- og þjónustuaðili KIA á Íslandi.
3 ára ábyrgð.
10-11 Hjarðarhaga
10-11 Lágmúla
10-11 Langarima
10-11 Engihjalli
10-11 Staðarbergi
...sólarþríhyrninginn!
Opið
allan
Alltaf opið!