Fréttablaðið - 15.05.2006, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 15.05.2006, Blaðsíða 2
2 15. maí 2006 MÁNUDAGUR HNÍFSSTUNGA Í HAFNARFIRÐI Íbúar Hafn- arfjarðar eru slegnir yfir árásinni en mörg hafnfirsk ungmenni urðu vitni að því þegar pilturinn var stunginn í bakið í fyrrinótt. Félagi piltsins sem var stunginn var ekinn niður af árásarmönnunum. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN KOSNINGAR Samkvæmt skoðana- könnun Gallup styrkist meirihluti Samfylkingarinnar í bæjarstjórn í Hafnarfirði. Samfylkingin fengi 54,6 prósent atkvæða en fékk 50,2 prósent atkvæða í kosningunum. Sjálfstæðisflokkurinn mældist með 35 prósent atkvæða í könnun- inni en hann hlaut 40,6 prósent í síðustu kosningum. Vinstri hreyfingin - grænt fram- boð mældist með 6,4 prósent í könn- uninni en í kosningunum árið 2002 fékk hún tvöfalt minna fylgi. Framsóknarflokkurinn mældist með 3,9 prósent en í kosningunum fyrir fjórum árum fékk hann 6,3 prósent. - mh Könnun í Hafnarfirði: Samfylkingin eykur sinn hlut Kveikti í brettum Ölvaður karlmaður kveikti í vörubrettum um hálfþrjú leytið í fyrrinótt í Grafarholti. Slökkvilið höf- uðborgarsvæðisins var kallað til eftir að tilkynnt hafði verið um brunann og gekk slökkvistarf greiðlega. LÖGREGLUFRÉTT Með hass í bílnum Þrír piltar á unglingsaldri voru teknir með hass í bíl sínum skammt frá barnaleikvelli við Suðurlandsbraut um ellefu leytið í fyrrakvöld. Í bílnum fundust einnig tól til neyslu. Piltarnir voru færðir á lögreglu- stöð til skýrslutöku. LÖGREGLUFRÉTTIR VERÐLAUN Þjóðminjasafn Íslands er eitt þriggja safna sem hlaut sérstaka viðurkenningu fyrir framúrskarandi árangur í sam- keppni Evrópuráðs safna um safn Evrópu árið 2006. Alls voru 60 söfn úr Evrópu tilnefnd og hlaut Cosmo Caixa, vísindasafn í Barcelona aðalverðlaunin. „Þetta hefur mikla þýðingu fyrir Þjóðminjasafnið og það er mikill heiður að það sé nú komið í hóp bestu safna í Evrópu,“ segir Margrét Hallgrímsdóttir þjóð- minjavörður. Þjóðminjasafnið var opnað á ný eftir breytingar árið 2004. „Þetta er viðurkenning á því mikla upp- byggingarstarfi sem hefur staðið yfir,“ sagði Margrét. -bog Þjóðminjasafn Íslands: Eitt besta safn í Evrópu ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS Hlaut viður- kenningu fyrir framúrskarandi árangur í samkeppni Evrópuráðs safna um safn Evrópu árið 2006. BANDARÍKIN, AP Eftir að nýlega kom í ljós að Þjóðaröryggisráð Banda- ríkjanna, NSA, hefur haldið leyni- legar skrár yfir innanlandssímtöl landsmanna eftir árásirnar 11. sept- ember 2001, hefur George W. Bush verið gagnrýndur fyrir að hafa veitt heimild fyrir þeim. Umræðan setur einnig ráðningu herforingjans Michaels Hayden í stöðu yfirmanns CIA í voða, þar sem hann var áður yfirmaður NSA og hafði yfirumsjón með hlerunum. Margir telja frama Haydens hanga á bláþræði þar sem yfir- heyrslur vegna málsins hefjast yfir honum næsta fimmtudag. Þar mun Hayden þurfa að útskýra fyrir ráði á vegum leyniþjónustunnar af hverju ráðist var í framkvæmd áætlunarinnar án sérstaks dómsúr- skurðar. Bæði demókratar og repúblik- anar hafa gagnrýnt eftirlitsáætlun- ina. Rebúblikaninn Arlen Specter, sem fer fyrir öldungadeildarnefnd dómsmála, telur Hayden verða að veita betri innsýn í verkefnið sem hann hafði umsjón með. Repúblikaninn Chuck Hagel hefur trú á getu Haydens til að gefa ráðinu greinargóða mynd af eftir- litsáætluninni. Í nýlegu viðtali á sjónvarpsstöðinni ABC segir Hagel að einungis þurfi að sannfæra bandarísku þjóðina um að verndun á einkalífi þegnanna sé jafn mikil- væg og varnir gegn hryðjuverkum. Efast Hagel ekki um að það takist. - re Óljóst hvort Michael Hayden taki við stöðu yfirmanns leyniþjónustunnar: Framinn hangir á bláþræði Michael Hayden, til vinstri, og þingmaðurinn Ron Wyden á blaðamannafundi í Capitol Hill síðastliðinn föstudag. INDÓNESÍA, AP. Vísindamenn hafa í rúman mánuð varað við að Mer- api, eitt skæðasta eldfjall eyjunn- ar Jövu í Indónesíu, geti gosið á hverri stundu. Indónesísk stjórn- völd hafa fyrirskipað íbúum hættusvæða að flytja sig í öruggt skjól. Flestir íbúanna hafa hlýtt fyrirmælum stjórnvalda en aðrir neita að láta flytja sig í burtu. Gjósi eldfjallið má búast við miklu sprengigosi. Líkur eru á að sjóðandi heit vikuraska, grjót og gas, muni eyða öllu lífi á nærliggj- andi svæði. - re Varað við gosi á Indónesíu: Eldgosaspár hunsaðar REYKJARMÖKK LEGGUR FRÁ MERAPI Búist er við að sprengigos hefjist í eldfjall- inu Merapi innan skamms tíma. Enn neita margir íbúar að yfirgefa svæðið þrátt fyrir fyrirskipanir stjórnvalda. FRÉTTABLAÐIÐ/AP Loftslagsbreytingar. Milljónir manna munu líða hörmungar vegna breytinga á loftslagi. Afleiðingar af hlýnun jarðar eru flóð, hungursneyð, sjúkdómar og þurrkar. Kemur þetta verst niður á fátækari þjóðum heims. Slíkt ástand gæti leitt til óeirða. Hjálparsam- tök hvetja iðnaðarríkin til að sporna gegn hlýnun jarðar. UMHVERFISMÁL KJARAMÁL SFR, stéttarfélags í almannaþjónustu, og forsvars- menn Svæðiskrifstofu um málefni fatlaðra, handsöluðu kjarasamn- inga um átta leytið í gærkvöldi. Samið var um launahækkanir fyrir starfsmenn á sambýlum og öðrum starfsstöðvum fyrir fatlaða. Hækkunin nemur að meðaltali tólf til fimmtán prósentum. Friðrik Atlason, einn af fulltrúum SFR í samninganefnd segir þá hækkun standast þau markmið sem lagt var upp með í viðræðunum. „Þetta eru sambærileg laun og sveitarfélögin greiða fyrir þessi störf.“ Samningar verða kynntir fyrir trúnaðarmönnum í hádeginu í dag og undirritaðir seinni part dags. Fyrirhuguð setuverkföll starfs- manna í vikunni verða rædd með trúnaðarmönnum í dag. - jóa Samið við starfsfólk sambýla og starfsstöðva fatlaðra. Setuverkfalli verður aflýst: Hækka um 12 til 15 prósent SAMNINGAR HANDSALAÐIR Fulltrúar samninganefndar SFR og Svæðiskrifstofu um málefni fatlaðra náðu samningum í gærkvöldi. Samningar verða undirritaðir seinni partinn í dag. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN LÍKAMSÁRÁS Piltur var stunginn í bakið í Holtunum í suðurbæ Hafn- arfjarðar um þrjú leytið í fyrri- nótt. Hann var fluttur á bráðadeild Landspítalans í Fossvogi. Áverkar piltsins voru alvarlegir og var hann fluttur af slysadeild á gjör- gæsludeild þar sem gert var að sárum hans. Pilturinn missti mikið blóð en undir morgun var hann sagður úr lífshættu og var hann útskrifaður af gjörgæsludeild í kjölfarið. Félagi piltsins var ekinn niður er árásarmennirnir fóru af vett- vangi á bifreið sinni. Hann hlaut ekki alvarlega áverka, en fullvíst þykir að keyrt hafi verið á hann af ásettu ráði. Lögreglan í Hafnarfirði fékk tilkynningu um árásina um þrjú leytið og voru sjúkraflutninga- menn þegar kallaðir til. Fjölmörg vitni voru að árásinni en flest þeirra voru ungmenni sem héldu til á þeim slóðum þar sem piltarn- ir urðu fyrir árásinni. Yfirheyrsl- ur yfir þeim klárast á næstu dögum. Árásarmennirnir voru farnir af staðnum þegar lögreglan kom á vettvang en vitni gátu gefið lög- reglu greinargóðar upplýsingar um hverjir hefðu verið að verki. Nokkru eftir árásina stöðvaði lögreglan bifreið á Kaldárselsvegi og handtók þrjá pilta og eru þeir grunaðir um árásina. Sá yngsti er sextán ára gamall en elsti nítján ára. Piltarnir þrír voru yfirheyrðir í gær en að sögn Kristjáns Ó. Guðnasonar, aðstoðaryfirlög- regluþjóns í Hafnarfirði, þykja málsatvik vera skýr. Rannsókn málsins heldur áfram í dag. „Það liggur fyrir játning vegna stung- unnar. Það hefur ekki enn verið ákveðið hvort farið verður fram á gæsluvarðhald yfir öllum mönn- unum eða einungis þeim sem tal- inn er eiga mesta hlutdeild að málinu.“ magnush@frettabladid.is Unglingur stunginn og ekið var á annan Piltur slasaðist alvarlega er hann var stunginn í suðurbæ Hafnarfjarðar um þrjú leytið í fyrrinótt. Hann var fluttur á gjörgæsludeild en hann er nú úr lífs- hættu. Maður á tvítugsaldri hefur játað að hafa stungið piltinn í bakið. SPURNING DAGSINS Af hverju er svona lítil eftir- spurn eftir framboðinu ykkar, Eysteinn? Ætli ástæðan sé ekki sú að við höfum ekki verið nógu duglegir að koma skilaboðum okkar til skila. Samkvæmt skoðanakönnun Fréttablaðsins fær A-listi, sameiginlegt framboð Framsókn- arflokks og Samfylkingar í Reykjanesbæ aðeins tvo til þrjá bæjarfulltrúa kjörna en Sjálfstæðisflokkurinn fær að minnsta kosti átta. Pilts leitað Lögreglan á Húsavík, ásamt björgunarsveitum á Norðurlandi, leituðu að sautján ára gömlum pilti sem fór fótgangandi frá Grímsstöðum á Fjöll- um í fyrrinótt. Pilturinn var illa búinn. Þegar Fréttablaðið fór í prentun stóð leit að piltinum enn yfir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.