Fréttablaðið - 15.05.2006, Síða 69

Fréttablaðið - 15.05.2006, Síða 69
Frambjóðendur Sjálfstæðisflokks- ins í Kópavogi fyrir sveitarstjórn- arkosningarnar er samhentur hópur hæfra einstaklinga sem láta verkin tala. Á stefnuskrá okkar er fjárstyrkur til allra barna á grunnskólaaldri til íþrótta- og tómstunda því við vitum hvað slíkt hefur mikið for- varnargildi. Við viljum þannig jafna tækifæri allra til að leggja stund á íþróttir og tómstundir og leggja heimilum lið vegna kostn- aðar. Um leið drögum við úr brott- falli barna úr íþróttum og tóm- stundum. Við ætlum að auka sjálfstæði grunn- og leikskóla og veita foreldrum val en við viljum að fjármagn verði látið fylgja nemanda óháð því hvar hann sækir skóla. Við munum tryggja samfellt skóla- og tónmenntastarf með sérstökum tónmenntastofum við alla grunnskóla Kópavogs. Við ætlum að koma upp fjölskyldu- garði í Fossvogsdal þar sem fjöl- skyldan getur notið samveru- stunda í notalegu umhverfi. Nú þegar hafa leikskólagjöld í Kópvogi verið lækkuð um þrjátíu prósent. Við munum jafnframt beita okkur fyrir því að fjölskyld- ur með fleiri en eitt barn á leik- skólaaldri greiði aðeins gæslu fyrir eitt barn í einu. Við viljum tryggja stöðugt starfsmannahald á leikskólum með því að gera aðbún- að starfsfólks sem bestan, bæði hvað varðar endurmenntun og möguleika fyrir ófaglærða leið- beinendur til að afla sér menntun- ar. Leikskólamálin eru einn af mik- ilvægustu málaflokkunum í bæjarfélaginu okkar og því leggj- um við ofurkapp á að leikskóla- málin verði til fyrirmyndar. Í prófkjörsbaráttu Sjálfstæðis- flokksins í Kópavogi í janúar sl. lagði ég mikla áherslu á fjölskyldu- málin og í stefnuskrá minni segir orðrétt: „Ég vil stuðla að auknu sjálf- stæði skóla og leikskóla hvað varð- ar námsefni og kennsluaðferðir. Skólastjórnendur ættu að fá svig- rúm til að þróa sínar aðferðir í kennslu og þar með auka val for- eldra um slíkt. Ég vil stuðla að betri nýtingu skólahúsnæðis með það að markmiði að samræma betur tómstundir og nám.“ Æskilegt væri að íþróttir og tón- listarnám, sérstaklega yngstu barn- anna, gæti að einhverju leyti farið fram innan veggja skólans áður en vinnudegi foreldra lýkur til að börn og foreldrar geti varið meiri tíma saman og dregið úr því álagi sem fylgir sífelldum akstri í lok dags. Huga þarf sérstaklega að tómstund- um fyrir eldri börn og unglinga.“ Þessi áhersluatriði er að finna í stefnuskrá flokksins og sýnir það hversu vel sjónarmið allra sjálf- stæðismanna fá að njóta sín og hversu samtaka við sjálfstæðis- menn í Kópavogi erum í vinnu okkar og stefnumótun. Sameigin- lega höfum við sett fram öfluga stefnuskrá sem við treystum okkur fyllilega til að standa við. Við sjálf- stæðismenn í Kópavogi höfum lagt metnað okkar í að byggja upp öflugt bæjarfélag og styrkja innviði bæj- arins undanfarin kjörtímabil. Við viljum áfram vera í forystu svo tryggja megi hagsæld Kópavogs- búa. Til þess þurfum við þitt atkvæði. Höfundur skipar 7. sæti á fram- boðslista Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi. Það besta fyrir fjölskylduna RAGNHEIÐUR K. GUÐMUNDSDÓTTIR MARKAÐSSTJÓRI SKRIFAR UM FJÖLSKYLDUMÁL MÁNUDAGUR 15. maí 2006 Frí sólgleraugu í þínum styrkleika (gler og umgjörð) ef þú kaupir gleraugu með styrleika hjá okkur. Gjáin, Kópavogi • JL-húsið, Hringbraut, Reykjavík • Apótekarinn, Akureyri
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.