Fréttablaðið - 20.05.2006, Blaðsíða 33
Heimild: Almanak Háskólans
Smáauglýsingasími
550 5000
Auglýsingasími Allt
550 5880
Þú getur pantað
smáauglýsingar á visir.is
FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA ATVINNA BRÚÐKAUP TILBOÐ O.FL.
www.utivera.is er vefur sem
aldrei verður mælt nógu mikið
með. Á vefunum má ógrynni
af upplýsingum sem tengjast
útiveru. Þar má einnig finna stór-
sniðuga búnaðarprófun. Meðal
þess sem er prófað eru mæld
og borin saman gæði hitabrúsa,
loftdælna, bakpoka og ýmislegt
annað.
BMW Z4 Coupé verður sýndur
hjá B&L á mánudagskvöldið
kemur og verður um heims-
frumsýningu að ræða. Þetta er
í fyrsta skipti sem viðburður af
þessari stærðargráðu er haldinn
hér á Íslandi og verður engu til
sparað. Viðburðurinn fer fram í
salarkynnum BMW umboðsins á
Íslandi, B&L að Grjóthálsi 1. Frétt
fengin af www.fib.is.
Hrafnabjörg er næsti áfanga-
staður Útivistar. Ferðin er farin á
morgun og lagt verður af stað frá
BSÍ klukkan hálf ellefu. Hrafna-
björg er fjall sem er 763 metrar
á hæð við austanvert Þingvalla-
vatn. Vegalengd er
um 15 kílómetrar og
göngutíminn um
fimm til sex
klukkustundir.
ALLT HITT
[FERÐIR BÍLAR]
ÍTALÍA HEFUR ALLT
AÐ BJÓÐA
Ferðaskrifstofan Heimsferðir er
með vikulegt flug í sumar til
Bologna og Trieste. Þaðan
liggja leiðir til allra átta.
FERÐIR 6
GÓÐAN DAG!
Í dag er laugardagurinn
20. maí, 140. dagur ársins
2006.
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík 3.57 13.24 22.54
Akureyri 3.20 13.09 23.01
Höfuðborgarbúar hafa án efa orðið
varir við lítinn Mini Rover sem sniglast
eftir götum bæjarins. Þar er á ferð Jón
Páll Leifsson, rekstrarstjóri Elísabetar
trygginga, á forstjórabílnum.
„Venjulega eru forstjórar á bílum sem kosta
tvær milljónir plús en ég keyri um á bíl sem
kostar 300 þúsund mínus,“ segir Jón Páll
Leifsson en hann ekur um á forstjórabíl
Elísabetar sem býður bílatryggingar og lán.
Bíllinn endurspeglar hugmyndafræði Elísa-
betar, hann er án yfirbyggingar líkt og
Elísabet sem er eingöngu á netinu. „Bíllinn
er líka ódýr, bæði að kaupa hann og í rekstri,
hentar betur einstaklingum en stórum fjöl-
skyldum, svipað og tryggingarnar hjá Elísa-
betu.“
Bílinn keypti Jón Páll í Þýskalandi fyrir
240 þúsund krónur en þar í landi er mikið
úrval af bílategundinni. Jón Páll segir það
hins vegar hafa tekið tíma að finna rétta bíl-
inn. „Þegar ég kom til landsins með bílinn
sá minn yfirmaður hjá TM tryggingum
hann og heillaðist. Yfirmaðurinn minn keyr-
ir 2006 árgerð af BMW og hann heimtaði að
við skiptum á bílum yfir helgina. Ég gat
engu ráðið enda er hann bossinn þannig ég
„neyddist“ til að vera á Bimmanum yfir
helgina,“ segir Jón Páll og hlær. „Af öllum
bílum sem ég hef keyrt finnst mér skemmti-
legast að keyra Mini Roverinn. Hann er
kannski meira fyrir augað en líkamann en
það er ákveðið sport að keyra blæjubíl. Ég
keyri samt ekkert hratt enda er Elísabet
skjaldbaka,“ segir Jón Páll sem lúsast áfram
í umferðinni og vekur kátínu annarra öku-
manna fyrir vikið. „Síðan er ekkert mál að
leggja þessu kríli. Best væri fyrir vinnufé-
laga að eiga tvo, þá væri hægt að deila einu
stæði.“ johannas@frettabladid.is
Vill ekkert annað
en skjaldbökubílinn
Jón Páll Leifsson lúsast áfram á skjaldbökumerktum Mini Rover í umferðinni. Roverinn tekur hann fram yfir alla aðra bíla. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
SNJÓHJÓL Á
SNÆFELLSJÖKLI
Á morgun kynnir Bovin
Ísland ehf. nýjung í
ferðamáta á snjó.
BÍLAR 2
Nú stendur skráning í
Jónsmessunæturgöngu
Útivistar sem hæst.
Upplifðu stemninguna
Jónsmessunæturganga
á Fimmvörðuháls