Fréttablaðið - 20.05.2006, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 20.05.2006, Blaðsíða 6
 20. maí 2006 LAUGARDAGUR SAMGÖNGUMÁL Laugavegssamtökin og Þróunarfélag miðborgarinnar hafa sent frá sér yfirlýsingar þar sem fyrirætlunum borgarstjórnar um að fækka bílastæðum í mið- borginni er mótmælt harðlega. Í nýrri samgöngustefnu borgar- innar er vitnað í þróunaráætlun frá árinu 1999 þar sem segir að „fækka skuli bílastæðum í göturými í mið- borginni“. Í ályktun sinni segist stjórn Laugavegssamtakanna „furða sig á því, að nú þegar mið- borgin er að ná sér eftir áralanga lægð, skuli borgaryfirvöld veitast að henni með þessum hætti“. Sam- tökin segja einkabílinn vera ferða- máta Íslendinga og að nær væri að fjölga stæðum en fækka þeim ef styrkja eigi miðborgina. Árni Þór Sigurðsson, formaður umhverfisráðs Reykjavíkur, segir í yfirlýsingu sem hann sendi frá sér í gær að stefnan sé byggð á Þróun- aráætlun miðborgar sem hags- munaaðilar í miðborginni hafi meðal annarra átt þátt í að móta. Hvergi í stefnunni sé það markmið sett fram að fækka bílastæðum í miðborginni, einungis að þau fari í vaxandi mæli í bílastæðahús. Þróunarfélag miðborgarinnar segir samþykktina aðför að rekstri í miðborginni. Það fagnar því að fjölga eigi bílastæðum í bílastæða- húsum, en segir það ekki mega verða til þess að öðrum stæðum sé fækkað. Félagið telur þá mynd sem dregin er upp af borgarstjórn, að án bílastæða verði miðborgin iðandi af mannlífi, ekki raunhæfa. - sh Samtök í miðborginni mótmæla nýrri samgöngustefnu Reykjavíkurborgar: Segja veist að miðborginni BÍLASTÆÐI Fækka á bílastæðum á götum miðborgarinnar samkvæmt stefnu borgarstjórnar. GENF, AP Nefnd á vegum Samein- uðu þjóðanna segir að Banda- ríkjamenn eigi að loka fangabúð- um sínum við Guantanamo-flóa á Kúbu og ekki nota leynileg fang- elsi í stríði sínu gegn hryðjuverka- mönnum. Nefnd gegn pyntingum, sem hefur eftirlit með framkvæmd alþjóðasamnings Sameinuðu þjóð- anna gegn pyntingum, sendi í gær frá sér ellefu blaðsíðna skýrslu um frammistöðu Bandaríkjamanna, sem eru aðilar að samningnum. Nefndin hefur fjölmargt við framferði Bandaríkjamanna að athuga. Meðal annars segir í skýrsl- unni að Bandaríkin verði að „útrýma“ öllum tegundum pynt- inga, sem hermenn eða aðrir á vegum Bandaríkjanna beita í Afganistan, Írak og annars staðar þar sem fangelsi eru undir banda- rískri stjórn. Bandaríkin verði að kanna til þrautar allar ásakanir um pyntingar og draga þá sem hafa gerst sekir um slíkt fyrir dóm. Bandaríkin eiga „að hætta að loka fólk inni við Guantanamo-flóa og loka fangabúðunum,“ segir einnig í skýrslunni. Áhyggjum er meðal annars lýst af því að föng- um sé haldið þar í lengri tíma án þess að lagalegt mat liggi fyrir á nauðsyn þess. Einnig verði Banda- ríkjamenn að gæta þess að senda ekki neina fanga aftur til landa þar sem þeir eigi á hættu að sæta pyntingum. Einnig verði bandarísk stjórn- völd að „kanna og upplýsa um til- vist“ allra leynilegra fangelsa og hvernig meðferð fangar þar sæta. Nefndin, sem skipuð er tíu sjálfstæðum sérfræðingum, gerir einnig athugasemdir við ástandið í fangelsum innan Bandaríkjanna, sérstaklega hvað varðar kynferð- islegt ofbeldi gagnvart föngum. Einnig þurfi að huga sérstaklega að stöðu kvenna og barna sem sitja í fangelsi. Mannréttindasamtök víða um heim lýstu í gær ánægju sinni með skýrsluna. „Skilaboðin frá pyntinganefnd- inni eru afdráttarlaus um að stefna Bandaríkjanna og framkvæmd hennar jafnt heima fyrir sem erlendis brýtur þær grundvallar- reglur sem banna pyntingar og misþyrmingar,“ sagði til dæmis Jamil Dakwar frá bandarísku samtökunum American Civil Liberties Union. gudsteinn@frettabladid.is FRÁ FANGABÚÐUNUM VIÐ GUANTANAMO-FLÓA Bandaríkin ættu að loka fangabúðum sínum á Kúbu, segir nefnd á vegum Sameinuðu þjóðanna í skýrslu sinni.FRÉTTABLAÐIÐ/AFP Hafa staðið sig illa Bandaríkjamenn standa sig engan veginn í að framfylgja alþjóðlegum samningi gegn pyntingum, að því er segir í nýrri úttekt nefndar á vegum Sameinuðu þjóð- anna. Lögð er áhersla á að pyntingum verði hætt og fangabúðunum á Kúbu lokað. BYGGÐAMÁL „Frumvarp iðnaðar- ráðherra er á forræði iðnaðar- nefndar Alþingis og þess vegna er það með endemum ósvífið að ráð- herrarnir séu í hrossakaupum sín á milli um breytingar á byggða- og nýsköpunarfrumvarpinu án vitundar nefndarmanna,“ segir Steingrímur J. Sigfússon, formað- ur Vinstri grænna. „Sem þing- ræðissinna rennur mér þetta ráð- herraræði til rifja. Þetta lítur æ meira út eins og hér sitji ríkis- stjórnarbundið þing.“ Með breytingum freistar Val- gerður Sverrisdóttir iðnaðarráð- herra þess að efla fylgi við frum- varpið. Áform um að tengja byggðamál við tæknirannsóknir og nýsköpun hafa mætt andstöðu í röðum þingmanna Sjálfstæðis- flokksins. „Þessi vinnubrögð eru í stíl við annað sem frá iðnaðarráðherra hefur komið í þessu máli og fleir- um í vetur,“ segir Helgi Hjörvar, Samfylkingunni, en hann á sæti í iðnaðarnefnd. „Hún tilkynnir úti í bæ um breytingar á málum sem eru í meðförum þingnefndar. Þetta er fyrir neðan allar hellur og ég sé ekki hvernig ráðherrann ætti að geta fengið frið um málið nema með því að gefast alveg upp á því að gera nýsköpun og tækni- rannsóknir á Íslandi að byggða- stefnu Framsóknarflokksins,“ segir Helgi. - jh Ósvífið að breyta frumvarpi án samráðs við þing, segir formaður Vinstri grænna: Blómstrandi ráðherraræði STEINGRÍMUR J. SIGFÚSSON „Sem þing- ræðissinna rennur mér þetta ráðherraræði til rifja.“ Plúsferðir · Lágmúla 4 · 105 Reykjavík · Sími 535 2100 www.plusferdir.is Krít Netverð á mann miðað við að 2-4 fullorðnir ferðist saman. Brottför 22. maí. Innifalið: Flug, gisting í 7 nætur á Skala, flugvallarskattar og íslensk fararstjórn. Benidorm Netverð á mann miðað við að 2-4 fullorðnir ferðist saman. Brottför 24. maí. Innifalið: Flug, gisting í 7 nætur á Halley, flugvallarskattar og íslensk fararstjórn. Portúgal-Albufeira Netverð á mann miðað við að 2-4 fullorðnir ferðist saman. Brottför 23. maí. Innifalið: Flug, gisting í 7 nætur á Mirachoro, flugvallarskatt- ar og íslensk fararstjórn. Mallorca Netverð á mann miðað við að 2-4 fullorðnir ferðist saman. Brottför 23. maí. Innifalið: Flug, gisting í 7 nætur á Pil Lari Playa, flugvallarskatt- ar og íslensk fararstjórn. 2 fyrir 1 TILBOÐ Bókaðu strax besta Plúsferðaverðið 23. maí 24. maí 22. maí 29.950kr. 29.770kr. 23. maí 29.980kr. 29.990kr.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.