Fréttablaðið - 20.05.2006, Blaðsíða 88

Fréttablaðið - 20.05.2006, Blaðsíða 88
56 20. maí 2006 LAUGARDAGUR sport@frettabladid.is HVAÐ? HVENÆR? HVAR? MAÍ 17 18 19 20 21 22 23 Laugardagur ■ ■ LEIKIR  14.00 Breiðablik og ÍBV mætast í Landsbankadeild karla í Kópavogi.  16.00 ÍA og KR mætast í Landsbankadeild karla á Akranesi. ■ ■ SJÓNVARP  15.45 Landsbankadeild karla Sýn. Bein útsending frá leik ÍA og KR.  16.00 Blak á RÚV. Bein útsending frá leik Íslands og Færeyja í undan- keppni Evrópumóts smáþjóða.  21.00 Box á Sýn. Bein útsend- ing frá bardaga Scott Harrison og Martin Honario um WBO beltið í fjaðurvigt. 2-1 Fylkisvöllur, áhorf: 930 Erlendur Eiríksson (6) TÖLFRÆÐIN Skot (á mark) 12–5 (5–3) Varin skot Jóhann 4 – Helgi Már 1 Horn 7–4 Aukaspyrnur fengnar 13–9 Rangstöður 0–3 0–1 Jóhann Þórhallsson (32.) 1–1 Sævar Þór Gíslason, víti (86.) 2–1 Christian Christiansen (90+3.) Fylkir GRINDA. 4–4–2 Helgi Már 7 Ray Anthony 4 Óðinn 6 *Kekic 8 Óskar Örn 7 (68. Óli Stefán 5) Eysteinn Húni 6 Paul McShane 5 Guðmundur Bjarn. 5 Andri Steinn 4 (62. Eyþór Atli 5) Jóhann Þórhalls. 6 Mounir Ahandour 7 Grindavík FYLKIR 4–4–2 Jóhann Ólafur Sig. 4 Jens Elvar 5 (81. Hrafnkell –) Guðni Rúnar 5 Ragnar 4 Arnar Úlfars. 4 (72. Andrés Már –) Páll Einarsson 5 Jón Björgvin 6 Peter Gravesen 6 Eyjólfur Héðins. 7 Sævar Þór 6 Christian Christians. 6 *Maður leiksins 2-1 Keflavíkurv., áhorf: 850 Jóhannes Valgeirsson (7) TÖLFRÆÐIN Skot (á mark) 8–8 (4–3) Varin skot Ómar 2 – Ingvar 1 Horn 2–3 Aukaspyrnur fengnar 11–9 Rangstöður 3–4 1–0 Hólmar Örn Rúnarsson (40.) 1–1 Davíð Þór Rúnarsson (69.) 2–1 Stefán Örn Arnarson (90+3.) Keflavík VÍKINGUR 4–4–2 Ingvar Kale 5 Höskuldur Eir. 6 Milos Glogovac 6 Grétar Sigurðs. 7 Valur Úlfars. 7 Jón Guðbrands. 4 (x. xx –) Carl Dickinson 5 (65. Jökull Elísab. –) Davíð Rúnarsson 6 Arnar Jón 7 Viktor Bjarki 8 Hörður Bjarnason 6 Víkingur KEFLAVÍK 4–3–3 Ómar Jóhanns. 6 Guðjón Antoníus. 6 Guðmundur Mete 7 Buddy Farah 6 (46. Magnús Þorst. 4) Geoff Miles 7 Baldur Sig. 5 Servino 6 (86. Stefán Örn –) Hólmar Örn 7 *Jónas Guðni 8 Símun Samuelsen 7 Guðmundur Stein. 6 *Maður leiksins FÓTBOLTI Eftir margra mánaða vangaveltur um framtíð Thierry Henry batt hann loks enda á þær í gær með einu pennastriki. Hann skrifaði þá undir fjögurra ára framlengingu á samningi sínum við Arsenal en hann hefur verið sterklega orðaður við Barcelona undanfarna mánuði. „Ég hugsaði um að fara á tíma- bili,“ viðurkenndi Henry. „Ég hugsaði með hjartanu og það sagði mér að vera áfram hjá Arsenal. Ég ætla að vera hér áfram og spila fyrir félagið sem ég ber mestar taugar til.“ Henry hrósaði líka stuðnings- mönnum liðsins, sem grátbáðu hann um að vera áfram. „Stuðn- ingsmennirnir hafa verið stór- kostlegir. Eftir að hafa tapað á miðvikudaginn gat ég ekki brugð- ist þeim,“ sagði Henry. - hþh Thierry Henry: Hjartað sagði „vertu áfram“ HENRY Að hann fari ekki frá Arsenal eru bestu tíðindi sem stuðningsmenn liðsins gátu hugsað sér og sárabót fyrir tapið gegn Barcelona í úrslitum Meistaradeildarinnar. NORDICPHOTOS/AFP Ísland í 18. sæti Íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu hefur hækkað sig upp um eitt sæti frá síðasta mánuði á heimslista FIFA. Liðið er nú í 18. sæti en Þjóðverjar tróna sem fyrr á toppnum, Bandaríkin eru í öðru sæti og Noregur í því þriðja. > Birgir Leifur komst áfram Kylfingurinn Birgir Leifur Hafþórsson frá Akranesi komst í gegnum niðurskurðinn á móti í Belgíu í gær. Birgir lék á einu höggi undir pari í gær og var því samtals á pari eftir tvo hringi. Fleiri íslenskir kylfingar voru á ferðinni í Evrópu í gær því Heiðar Davíð Bragason var að keppa á móti í Svíþjóð og hafnaði í 39.- 43. sæti. „Ég tel okkur hafa verið að næla í efnilegasta leikmann DHL-deildarinnar,“ sagði Óskar Bjarni Óskarsson, þjálfari handboltaliðs Vals, þegar nýr leikmaður félagsins var kynntur í gær. Sá leikmaður er Ernir Hrafn Arnarson úr Aftureldingu en hann verður tvítugur á árinu og hefur verið lykilmaður hjá U21 landsliðinu. „Valur er með spennandi hóp og gott þjálfarateymi og ég tel mig geta bætt mig mikið sem leikmann í þeirra her- búðum,“ sagði Ernir en mörg lið vildu fá hann til sín. „Ég tel það vera mikilvægt fyrir mig að takast á við nýja áskorun á þessum tímapunkti. Það voru fimm lið sem höfðu samband við mig en á end- anum stóð valið milli Vals og Aftureld- ingar. Ég er mjög spenntur og hlakka til að takast á við ný verkefni hjá Val.“ Óskar Bjarni var hæstánægður með af fá Erni en hann er hægri skytta. „Þetta er þvílíkur happafengur enda frábær leikmaður. Fyrir okkar lið er þetta mikill styrkur í alla staði. Ernir hefur sýnt hvað hann er mikill karakter enda var erfitt fyrir hann að fara úr Aftureldingu, hann rauk ekki strax burt þótt þeir hafi fallið. Hann hefur miklar taugar til félagsins en hann sem handboltamað- ur ákvað að velja okkur,“ sagði Óskar. Valsmenn ætla ekki að láta staðar numið á leikmannamarkaðnum. „Við erum mjög ánægðir með okkar ungu leikmenn sem spiluðu gríðarlega vel síðasta tímabil. Þrátt fyrir að hafa misst Baldur og Sigga þá stigum við upp og að mínu mati hefðum við átt að fara aðeins lengra. Við ætlum okkur meira og þurf- um tvo til þrjá leikmenn í viðbót til að styrkja hópinn. Við viljum einn örvhentan leikmann í hópinn í viðbót og svo ætti hitt að ráðast. Ég tel að þetta munu skýrast í næstu viku. Viðræður við ákveðna leikmenn ganga mjög vel og við vonumst til að það hafi hjálpað mikið til að hafa landað Erni,“ sagði Óskar. ERNIR HRAFN ARNARSON: SKRIFAÐI UNDIR ÞRIGGJA ÁRA SAMNING VIÐ VALSMENN Í GÆR. Mikill happafengur fyrir Val FÓTBOLTI Jose Mourinho, knatt- spyrnustjóri Chelsea, staðfesti í gær að félagið væri til í að hlusta á tilboð í Eið Smára Guðjohnsen, en mikið hefur verið rætt um framtíð Eiðs síðustu vikur. „Staðan hjá Eiði er sú að hann er frábær knattspyrnumaður. Við viljum halda honum en erum samt tilbúnir að ræða við félög sem hafa verulegan áhuga á honum,“ sagði Mourinho. Búast má við áhuga víðs vegar að úr Evrópu næstu daga. Mourinho sagði við sama tæki- færi að Didier Drogba fengi ekki að fara frá félaginu en hann hefur lýst yfir áhuga á að komast burt frá London. - hbg Mál Eiðs Smára Guðjohnsen: Chelsea opið fyrir tilboðum EIÐUR SMÁRI Til sölu fyrir rétt verð. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY IMAGES FÓTBOLTI Fylkismenn voru betri aðilinn framan af fyrri hálfleik, en besta færi þeirra fékk Christian Christiansen en hann skallaði yfir úr dauðafæri eftir sendingu frá Peter Gravesen. Skömmu síðar komust Grindvíkingar yfir þegar Jóhann Þórhallsson skoraði þriðja mark sitt í deildinni með skoti sem lak framhjá illa staðsettum Jóhanni Ólafi Sigurðssyni, mark- manni Fylkis. Leikurinn var leiðinlegur á löngum köflum í síðari hálfleik þegar hvorugt liðið virtist hafa áhuga á því að skora. Sinisa Kekic hirti alla bolta sem komu nálægt Grindavíkurmarkinu en gestirnir treystu á leifturhraða Ahandour. Hann fékk margar sendingar fram en gekk illa að koma sér í almenni- leg færi. Ahandour gerði sig svo sekan um mikinn vitleysisgang þegar hann sparkaði til Guðna Rúnars Helgasonar sem hafði ýtt við honum. Ahandour fékk umsvifa- laust rautt spjald og pressa Fylkis- manna hófst. Þeir uppskáru að lokum víti þegar boltinn fór í hendina á Ray Anthony Jónssyni, Grindvíkingar urðu alls ekki sátt- ir en Sævar Þór Gíslason skoruði örugglega úr vítinu. Allir biðu eftir lokaflautinu þegar sigurmarkið kom á 94. mín- útu. Sævar Þór var með boltann úti á kanti, hann sendi fyrir þar sem Christian Christiansen skall- aði boltann í markið og tryggði Fylkismönnum 2-1 sigur. „Svona á að gera þetta, skora bara nógu seint svo hinir geti ekki jafnað,“ sagði glaðbeittur Leifur Garðarsson, þjálfari Fylkis, eftir leikinn. „Það sem við gerðum var að bíða rólegir allan leikinn, við vorum með boltann mikinn meiri- hluta af leiknum og verðskulduð- um þetta. Við töluðum um það fyrir leikinn af það gæti tekið rúmar 90 mínútur að klára þetta og það gerði það.“ Leifur var mjög sáttur við sína menn en Fylkismenn unnu sann- gjarnan sigur í gær. „Í báðum leikjunum hefur hugarfarið verið 110 prósent og það er það sem máli skiptir. Baráttan var til fyrir- myndar og ég hafði allan tímann trú á mínum mönnum,“ sagði Leif- ur Garðarsson. hjalti@frettabladid.is Ótrúlegur endasprettur Fylkir skoraði tvö mörk á lokamínútum leiks síns gegn Grindavík og hirti öll stigin þrjú í dramatískum leik í Árbænum. Fylkir er því með fullt hús eftir tvo leiki í deildinni. Mounir Ahandour hjá Grindavík sá rautt í leiknum. BARÁTTA Það var hart tekist á þegar Fylkir tók á móti Grindavík. Hér berjast Fylkismaðurinn Páll Einarsson og Grindvíkingurinn Jóhann Þórhallsson um knöttinn. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM FÓTBOLTI „Þetta er rosalega sætt, ég klúðraði mjög góðu færi rétt eftir að ég kom inná en náði sem betur fer að skora síðan,“ sagði Stefán Örn Arnarson, sem var hetja Keflvíkinga í gær og skor- aði sigurmarkið með síðustu spyrnunni í leiknum gegn Víking- um eftir að hafa komið inn sem varamaður. Stefán skoraði mark- ið þegar þrjár mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma en hann kom til Kefla- víkur úr Víking. „Víkingar voru sterkir í seinni hálfleiknum og voru lík- legri til að klára leikinn. Ég fann fyrir því þegar ég kom inn að vörnin hjá þeim var orðin þreytt. Ég veit að Ingvar ver aldrei hægra megin þannig að ég setti hann bara þar. Það var mikil- vægt fyrir okkur að ná okkar fyrsta sigri,“ sagði Stefán. Það tók sinn tíma fyrir liðin að finna rétta gírinn í Keflavík, það var talsverður vindur og bæði lið byrjuðu varfærnislega. Víkingar fengu fyrsta alvöru færið þegar fyrri hálfleikur var rúmlega hálfnaður en Davíð Þór Rúnars- son náði ekki að fóta sig og skaut framhjá eftir góða sendingu frá Arnari Jóni Sigurgeirssyni. Ísinn var síðan brotinn fimm mínútum fyrir hálfleik. Hólmar Örn Rúnarsson átti ekki í vand- ræðum með að leika á varnar- mann Víkinga og skaut hörku- skoti að marki sem Ingvar náði ekki að verja. Rétt áður voru heimamenn stálheppnir að lenda ekki undir þegar Ómar Jóhanns- son varði þrumuskot frá Grétari Sigfinni Sigurðssyni. Litlu mátti muna að Keflavík næði að skora annað mark eftir stundarfjórðungs leik í seinni hálfleik. Höskuldur Eiríksson, fyrirliði Víkings, gerði þá slæm mistök en skot frá Simun Samu- elsen fór í stöngina. Víkingar náðu síðan að jafna með glæsi- legu marki en Davíð Þór lék þá á varnarmenn heimamanna og skoraði með óverjandi skoti. Víkingar voru meira með bolt- ann í seinni hálfleik og voru lík- legri en illa gekk að reka smiðs- höggið. Þeirra sterkasti maður var Viktor Bjarki Arnarson sem var sífellt skapandi og helsta vopn liðsins í sóknarleiknum. Einbeitingarleysi í viðbótartíma varð þeim að falli og löng send- ing fram rataði á Stefán Örn, sem gerði allt rétt. Keflvíkingar hafa því fengið sín fyrstu stig en Vík- ingar eru enn stigalausir. - egm Mikil dramatík í Keflavík þegar Víkingar komu í heimsókn: Stefán Örn kláraði gömlu félagana
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.