Fréttablaðið - 20.05.2006, Blaðsíða 44
2
Það eru ekki allir svona fótógenískir.
Hér grínast hún aðeins í ræstingarkonu hótelsins enda er Silvía mikill húmoristi.
Það var nóg af skemmtilegum hlutum á
sviðinu og sennilega hefur engum leiðst
við að horfa á atriðið okkar. Eitthvað sem
ekki er hægt að segja oft þegar kemur að
Eurovision. Það voru ekki allir sem púuðu á Silvíu.
Það voru ekki hlýjar móttökur
sem súperstjarnan Silvía Nótt fékk
á sviði í Eurovision-keppninni á
fimmtudaginn. Púið yfirgnæfði
alla þá sem höfðu kjark til að
fagna drottningunni og frammi-
staðan nægði ekki til að tryggja
okkur sæti í aðalkeppninni.
Hins vegar toppaði „sjóið“ henn-
ar Silvíu algjörlega alla áhuga-
mennina sem á undan komu og
óhætt er að segja að við höfum
lokað undankeppninni með stór-
um hvelli. Auðvelt var að sjá
áhrif Silvíu á hinum keppendun-
um sem margir hverjir skörtuðu
búningum sem voru eins og léleg
eftirlíking af öllum þeim skraut-
legu flíkum sem ungfrú Nótt
hefur skartað. Stórstjarnan okkar
virðist þó vera frekar lítil í sér
þrátt fyrir alla stórkarlalegu stæl-
ana og gat ekki leynt vonbrigðum
sínum eftir keppnina.
Hún skældi og vældi á pabba
sinn og gekk að lokum út í fússi,
enda átti hún augljóslega betri
árangur skilinn.
Silvía með langflottasta atriðið
16“ Pizza með tveimur áleggjum
Wanted Snakk
2 lítra kók
1.490 krónur
ef þú sækir
5 68 68 68 MjóddDalbraut 1Hjarðarhaga 45
„Ég er ekki góð í Eurovision og
ekki með keppnina á hreinu,“
segir Ingibjörg Elín Viðardóttir.
Spurð um íslensku keppendurna
stendur ekki á svarinu: „Silvía
Nótt er alger snillingur, en uppá-
haldslagið mitt er Nína. Ég man
ekki eftir Nínu á sviði, ég var
heldur ung. Lagið hefur bara svo
frábæran hrynjanda og grípur
mann alveg.“
Eyjólfur Kristjánsson samdi
lagið um Nínu og söng með
Stefáni Hilmarssyni, sem samdi
textann, í Eurovision. Það var af
lesendum Fréttablaðsins og Vísi
valið besta íslenska Eurovision-
lagið hingað til í febrúar á þessu
ári.
Ingibjörg Elín segir óákveðið
hvar hún verði í kvöld, en hún
verði þó örugglega í einni af
menntaskólaútskriftarveislunum
sem hún er boðin í. „Hver veit
nema ég verði svo kannski bara
í partíi heima hjá mér!“
Lagið Nína
klikkar ekki
- segir Ingibjörg Elín
Viðarsdóttir
FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRÐUR
■■■■ { evrovision } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■