Fréttablaðið - 20.05.2006, Side 44

Fréttablaðið - 20.05.2006, Side 44
2 Það eru ekki allir svona fótógenískir. Hér grínast hún aðeins í ræstingarkonu hótelsins enda er Silvía mikill húmoristi. Það var nóg af skemmtilegum hlutum á sviðinu og sennilega hefur engum leiðst við að horfa á atriðið okkar. Eitthvað sem ekki er hægt að segja oft þegar kemur að Eurovision. Það voru ekki allir sem púuðu á Silvíu. Það voru ekki hlýjar móttökur sem súperstjarnan Silvía Nótt fékk á sviði í Eurovision-keppninni á fimmtudaginn. Púið yfirgnæfði alla þá sem höfðu kjark til að fagna drottningunni og frammi- staðan nægði ekki til að tryggja okkur sæti í aðalkeppninni. Hins vegar toppaði „sjóið“ henn- ar Silvíu algjörlega alla áhuga- mennina sem á undan komu og óhætt er að segja að við höfum lokað undankeppninni með stór- um hvelli. Auðvelt var að sjá áhrif Silvíu á hinum keppendun- um sem margir hverjir skörtuðu búningum sem voru eins og léleg eftirlíking af öllum þeim skraut- legu flíkum sem ungfrú Nótt hefur skartað. Stórstjarnan okkar virðist þó vera frekar lítil í sér þrátt fyrir alla stórkarlalegu stæl- ana og gat ekki leynt vonbrigðum sínum eftir keppnina. Hún skældi og vældi á pabba sinn og gekk að lokum út í fússi, enda átti hún augljóslega betri árangur skilinn. Silvía með langflottasta atriðið 16“ Pizza með tveimur áleggjum Wanted Snakk 2 lítra kók 1.490 krónur ef þú sækir 5 68 68 68 MjóddDalbraut 1Hjarðarhaga 45 „Ég er ekki góð í Eurovision og ekki með keppnina á hreinu,“ segir Ingibjörg Elín Viðardóttir. Spurð um íslensku keppendurna stendur ekki á svarinu: „Silvía Nótt er alger snillingur, en uppá- haldslagið mitt er Nína. Ég man ekki eftir Nínu á sviði, ég var heldur ung. Lagið hefur bara svo frábæran hrynjanda og grípur mann alveg.“ Eyjólfur Kristjánsson samdi lagið um Nínu og söng með Stefáni Hilmarssyni, sem samdi textann, í Eurovision. Það var af lesendum Fréttablaðsins og Vísi valið besta íslenska Eurovision- lagið hingað til í febrúar á þessu ári. Ingibjörg Elín segir óákveðið hvar hún verði í kvöld, en hún verði þó örugglega í einni af menntaskólaútskriftarveislunum sem hún er boðin í. „Hver veit nema ég verði svo kannski bara í partíi heima hjá mér!“ Lagið Nína klikkar ekki - segir Ingibjörg Elín Viðarsdóttir FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRÐUR ■■■■ { evrovision } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.