Tíminn - 18.09.1977, Qupperneq 8
8
Sunnudagur 18. september 1977
r
Hvalur fundinn á reki 1899 á Seyðisfirði.
I undanfarandi þáttum var
m.a. vikiö að hvalveiðum Norð-
manna og stöövum þeirra á
Vestfjörðum.Þegarhvalitók að
þrjóta þar vestra fluttu Norð-
menn sig um set til Austfjarða
(Berg og Ellefsen) og veiddu
eystra meðan þar var éitthvað
að hafa, en hurfu þá þaöan til S-
Afriku — og hafa lengi stundað
hvalveiðar i Suðurhöfum.
Hér er birt mynd frá árinu
1899 af hval sem Fr. Wathne
fann á reki er hann fluttist til
Seyðisfjarðar. Myndin af mann-
inum i bátnum (PeterFrederik-
sen) gefur- til kynna stærö
hvalsins sem orðinn var mjög
uppblásinn en þó hirðandi aö
einhverju leyti.
Frá Seyöisfiröi beinum viö för
vestur í Miöfjörö, inn af HUna-
flóa og litum á aldamótamynd
af heyskaparfólki að Syðri-Völl-
um. Þá var fjölmennara en nú á
mörgum sveitaheimilum — og
munar miklu.
Næst kemur „óþekkt” mynd.
Kannast einhver viö þennan
hvitmálaða sveitabæ meö
tveimur útihúsum? Hvitur
fjallstoppurinn i bakgrunni get-
ur e.t.v. gefið bendingu um
staðinn.
Annaö elzta hús Reykjavikur
er talið vera Aðalstræti 10, rúm-
lega tveggja alda gamalt,
„stendur eitt eftir af verk-
smiðjuhúsunum (innréttingum)
Skúla fógeta.” Húsiö mun reist I
fyrsta lagi um 1764, og er
Stjórnarráðið (gamla fangahús-
ið) taliö heldur eldra. Margir
hafa átt heima i gamla húsinu
Aðalstræti 10 (kaupmenn, land-
læknir, biskup, lögregluþjónn
o.fl). og nú er þar verzlun Silla
og Valda. Mikil útlitsbreyting
varðþarna ekki alls fyrirlöngu,
þegar eldur kom upp I næsta
húsi — sambyggðu. Hefur það
hús nýlega verið að mestu rifið,
svo gafl gamla hússins kemur i
ljós. Sjá mynd.
Loks er mynd frá Borgarnesi
og mun vera hús þau, sem köll-
uð voru Salka, þar sem annar
tveggja kaupstaða i Borgarnesi
var, þegar á siðari hluta 19. ald-
ar.
f
Ingólfur Davíðsson:
Byggt og búið
í gamla daga íss
Syöri-Vellir I Miöfiröi um 1900 — Heyskaparfólk
• ..................................................................................
'iöalstræti 10 (nú Silli og Valdi) 13/8 1977
»
Hvaöa bær er þetta?
Kaupfélagshús I Borgarnesi um 1930.