Tíminn - 18.09.1977, Page 33
Sunnudagur 18. september 1977
33
Hér sést greinilega hvernig vatn
hefur komizt inn, og skilin á
milli bleytunnar og þess sem
þurrt er.
kvæöi svo og fyrir böm sem
bjuggu viö slæmar heimilisaö-
stæöur eöa heimilisleysi. Það
voru bæjar- og sveitarfélög i
Reykjaneskjördæmi sem ræddu
þessi mál upphaflega. Einnig
mun Þjóðkirkjan hafa áformað
að reisa i Krísuvik sumarbúðir
og kom til tals að tengja saman
sumarbúðastarfsemina og um-
ræddan skóla. Sumarbúðimar
hafa enn sem komið er ekki ris-
ið, nema grunnar að þremur
húsum skammtfrá skólahúsinu.
Þar hefur sem sé ekkert drabb-
azt niður nema grunnarnir.
Nefnd var sett i máliö i ráð-
herratið Gylfa Þ. Gislasonar, til
að kanna allar aðstæöur varð-
andi fyrirhugaða skólabygg-
ingu i Krisuvik. Niðurstaðan af
störfum nefndarinnar var m.a.
á þá leið að brýnt væri að koma
þarna upp skóla fyrir böm með
hegðunarvandkvæði, ásamt
sumarbúðum. Nefndin lagði til
að leitað yrði til fjárveitinga-
valdsins eftir f járveitingum svo
og til bæja- og sveitarfélaga á 9.
kjörsvæði barnakennara á
Reykjanesi, þ.e. i Hafnarfirði,
Garðahreppi, Seltjarnarnesi og
þar fyrir sunnan.
Arið 1974 hófust svo fram-
kvæmdir viö skólabygginguna,
og i téðri dagbók, sem kom upp
úr skrifborðinu áðurnefnda,
mátti lesa að siðustu steypu var
lokiö um 20. des. 1974.
Blaöiö hafði samband við
Helga Jónasson, fræðslustjóra i
Reykjanesumdæmi, til þess að
fregna nánar, hvað gerzt hefði
eftir að steypuvinnu var lokið i
des. ’74. Sagði Helgi, að gengið
hefði veriðfrá húsinu að utan og
það verið gert tilbúiö undir tré-
verk að innan veturinn ’75-’76.
Meðöðrum orðum hefur ekkert
verið aðhafzt þar i u.þ.b. tvö ár,
og eru skemmdir þegar orönar
töluverðar. Þegar Helgi var
spurður hverju þessi seinagang-
ur sætti, var svarið stutt og lag-
gott, ekkertféheföifengizt til að
ljúka skólanum og hefja þar
starfsemi. Skólinn hefði ekki
verið á dagskrá hjá fjár-
veitingavaldinu á yfirstandandi
ári. Sagðist hann vonast til að fé
yrði veitt til skólans á næsta ári,
og yrði þá væntanlega hægt að
hefja þar starfrækslu næsta
haust.
Þegar Helgi var spurður að
þvi hve miklir peningar væru
komnir i bygginguna sagðist
hann ekki hafa handbærar ná-
kvæmar tölur, en gizkaði á að
upphæðin væri á bilinu 60-100
milljónir.
Staöreyndir eru I stuttu máli
Bleytan frá svalahuröinni hefur borizt inneftir öllu gólfi.
þessar: I Krisuvik hefur risið
skólabygging, sem ætluö er
börnum með hegðunarvand-
kvæði eða þeimsem viö slæmar
heimilisaðstæður og af þeim sök
um dregizt af tur úr i námi, ekki
þó þannig að þau þurfi á sér-
kennslu að halda. 1 áliti nefndar
þeirrar, sem kannaði málið á
sinum tima, var tekið fram, að á
þessu svæði, þ.e. Reykjanesum-
dæmi, væri þörfin fyrir sllkan
skóla einna brýnust. Um
tveggja ára skeið hefur þessi
bygging staðið auö, engum til
gagns nema þá kannski helzt
sauðfé og hrossum, sem þar
hafa leitað skjóls i illviðrum.
Það er niðurdröbbun greinileg
og yfirvöldum til skammar.
Bregða verður skjótt og hart
við,ef ekki eiga að koma til lag-
færingar fyrir tugi milljóna
króna. Það er mannúðarmál aö
skóli þessi komist sem fyrst i
gagnið.
Svalahurðin, sem nefnd er f greininni. t gegnum neöri rúðuna má
greina vatnsborðið á svölunum. Takiö einnig eftir bleytunni um-
hverfis hurðina og hvernig hún hefur skemmt út frá sér.
Séð inn eftir einum ganginum I skólahúsinu.