Fréttablaðið - 10.06.2006, Page 39
LAUGARDAGUR 10. júní 2006 3
C-Buggy á að komast hvert
sem er og henta við öll tæki-
færi, nema auðvitað ef það
rignir.
Ef árshátíð Citroën væri haldin á
Íslandi á næsta ári mundi sennilega
kveða við annan tón í hönnunar-
deildinni. Citroën C-Buggy hug-
myndabíllinn, sem frumsýndur var
í Madrid fyrir skemmstu, er í það
minnsta ekki beinlínis sérsniðinn
fyrir Íslandsmarkað.
Sögur herma að tilgangurinn
hafi verið að smíða flottan og reffi-
legan bíl sem kæmist hvert sem er
en endurspeglaði um leið þá hönn-
un og þau gildi sem Citroën stendur
fyrir.
Hætt er við að Íslendingum
þætti lítið til koma ef bíllinn kæmi í
sölu hérlendis nema honum yxi ein-
hvers konar veðravörn á leiðinni.
Það verður ekki frá Frökkum
tekið að þeir búa til fallega bíla og
ef marka má meðfylgjandi auglýs-
ingamynd hentar hann býsna vel til
aksturs á tunglinu, ekki síður en
sólríkum lendum Suður-Evrópu.
Fer hvert sem er...
C-Buggy er enn á hugmyndastiginu og því ekki öll von úti. Kannski man einhver eftir
þakinu í næstu umferð, þó ekki væri nema lítilli blæju.
ÁRALÖNG HEFÐ LÖGÐ NIÐUR
VEGNA KVARTANA.
Nemendur í Freedon Area-skólanum
í Pennsylvaníu í Bandaríkjunum
mega ekki lengur koma á dráttarvél-
um í skólann.
Í kjölfar kvartana annarra vegfarenda
hafa staðaryfirvöld ákveðið að fram-
fylgja, í fyrsta sinn í manna minnum,
löggjöf sem kveður á um að dráttar-
vélar megi aðeins nota á bújörðum
en ekki venjulegum vegum.
Málið er allt hið undarlegasta,
ekki síst ef tekið er tillit til þess að
dráttavélaaksturinn á sér aðeins stað
einu sinni ári. Það er gömul hefð við
skólann að nemendur úr dreifbýli aki
slíkum farartækjum til skóla síðasta
dag skólaársins.
Ekki á traktor í skólann
Það verður að teljast hæpið að þessi sé á
leiðinni í skólann.
Frá klukkan 10 til 17 í dag verður
vélasvið Heklu með opið hús í
Klettagörðum 8-10. Meðal annars
verður boðið upp á ökuleikni á
vörubílum, lyftarakeppni og
kranakeppni. Auk þess gefst gest-
um kostur á að reynsluaka nýjum
gerðum af Caterpillar-beltagröf-
um og hjólaskóflum og Scania-
dráttarbíl með Närko City Trailer.
Keppnin hefst klukkan 13 og
stendur til 15.30. Verðlaun verða
veitt fyrir besta árangur í öllum
greinum og að sjálfsögðu verður
gestum boðið upp á léttar veiting-
ar.
Nánari upplýsingar á www.
hekla.is/opidhus
Opið hús hjá
Vélasviði
Reynsluakstur og keppni af
ýmsum toga.
Meðal þess sem gestum opins húss gefst
kostur á er að reynsluaka Caterpillar-tækj-
um.Ef það er eitthvað sem borgar sig
ekki að gera þegar maður fer í
bíltúr þá er það að búast við því
að hann gangi áfallalaust fyrir
sig. Svo mikið hef ég lært. Mér
þótti samt sérlega biturt að gata
tvö ný jeppadekk í sama túrnum
fyrir ári og annað svo illa að því
þurfti að henda. Eða hvernig
þætti þér að kaupa tvö stór sjón-
vörp, henda öðru þeirra daginn
eftir og rispa skjáinn á hinu með
garðhrífu?
Götuð dekk eru því miður
öllu algengari en garðhrífur í
sjónvarpsherbergjum. Þegar
jeppafólk gatar dekk uppi á
fjöllum er sjaldgæft að vara-
dekk í fullri stærð sé með í för,
til þess eru þau of þung og fyr-
irferðarmikil. Næsta dekkja-
verkstæði er ekki endilega
hentug lausn heldur og því þarf
önnur ráð, eins og til dæmis að
tappa dekkið.
Viðgerðartappa er hægt að
nota jafnt í stóra sem litla hjól-
barða og á sumum bensínstöðv-
um fást einföld tappasett sem
sniðugt væri að bæta í verk-
færatösku bílsins (sem mætti
útvega í sama bíltúr, sé hún ekki
til nú þegar). Tappasett sam-
anstendur vanalega af töppum
(og þá er skýringin á nafninu
komin), nál og lími.
Viðgerðin fer þannig fram að
tappi er þræddur í nálaraugað
og lím borið á hann. Nálinni er
síðan stungið í gatið þangað til
fjórðungur tappans stendur út
úr því. Þá er nálinni kippt snöggt
út og tappinn situr eftir. Yfir-
leitt þarf fleiri en einn tappa en
það fer eftir stærð gatsins.
Einnig eru til sjálflímandi tapp-
ar og þá er límið óþarft.
Þegar viðgerð er lokið og
límið hefur þornað er dekkið
pumpað til fulls, hlustað og
vatni hellt yfir. Standist við-
gerðin skoðun eru tappaendarn-
ir skornir af, nánast upp við
dekk. Útstæðir endar geta
nefnilega hegðað sér óæskilega
þegar á ferð er komið, til dæmis
ákveðið að taka ekki þátt í ferða-
laginu.
Rétt er að taka fram að stórar
rifur og göt sem eru á vondum
stað eða í vondri stefnu geta
lekið áfram þrátt fyrir alla
heimsins tappa. Í flestum tilfell-
um duga þeir þó vel til, í það
minnsta að næsta dekkjaverk-
stæði, þó svo að það sé í tveggja
dagleiða fjarlægð. Vart þarf að
minna fólk á að fylgjast reglu-
lega með viðgerða dekkinu á
leiðinni.
Töppun dekkja er einföld
aðgerð og á allra færi. Engu að
síður getur verið gott að fórna
nokkrum töppum í að æfa sig á
ónýtu dekki áður en haldið er út
í hinn stóra heim. Með reynsl-
una og nálina að vopni ertu klár
í hvaða ferð sem er.
Mundu svo bara að heilla
vinnufélagana reglulega með
ferðasögum á borð við „...þá
sprakk hjá okkur eitt dekk.
Alveg í tætlur. En ég tappaði
það bara...“
Tappaðu það bara...
Áfram veginn
Einar Elí Magnússon kemst leiðar sinnar