Fréttablaðið - 17.06.2006, Síða 29
Heimild: Almanak Háskólans
Smáauglýsingasími
550 5000
Auglýsingasími Allt
550 5880
Þú getur pantað
smáauglýsingar á visir.is
FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA ATVINNA BRÚÐKAUP TILBOÐ O.FL.
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík 2.55 13.29 24.03
Akureyri 1.34 13.13 24.56
GÓÐAN DAG!
Í dag er laugardagurinn
17. júní, 168. dagur ársins
2006.
Eitt af því sem einkennir þjóðhátíðardaginn okkar eru
heilmiklar skrúðgöngur sem gengnar eru um borg og
bý með skyrtuklædda skáta í fararbroddi.
„Skrúðgöngur og fánaborgir eru bara pínulítill hluti af
skátastarfinu. Við stundum mikið útilíf, eins og klettaklifur,
útilegur og svoleiðis,“ segir Diljá Rut Guðmundudóttir, 15
ára dróttskáti í skátafélaginu Ægisbúum.
Diljá verður í fánaborg Skátasambands Reykjavíkur á
Austurvelli í dag. Þetta er önnur fánaborgin hennar en það
þykir ákveðið stöðutákn að vera boðið að taka þátt. „Fána-
borgin er eiginlega virðingartákn. Núna eru í henni um
tuttugu skátar úr fjórum eða fimm félögum í Reykjavík.
Við stöndum heiðursvörð í kirkjugarðinum í Suðurgötu
þegar kransinn sem fer á leiði Jóns Sigurðssonar er borinn
inn og göngum svo niður á Austurvöll. Þar stöndum við
heiðursvörð til að votta forseta, forsætisráðherra og fjall-
konu virðingu,“ segir Diljá.
Í fánaborg er einn fánaberi og einn fánavörður um hvern
fána. Hlutverk fánavarðar er að grípa fánann ef eitthvað
kemur fyrir, eins og ef líður yfir fánaberann. „Ég hef ekki
lent í því persónulega en ég hef séð fólk hníga niður. Þetta
gerist af því að við erum ekki á hreyfingu og stöndum graf-
kyrr. Göngustjórarnir reyna samt að passa vel upp á okkur.
Ef einhverjum líður illa er hann fluttur og færður í skugga.
Fáninn er númer eitt, tvö og þrjú, enda tákn íslensku þjóð-
arinnar og okkur finnst verðugt að vernda fánann.“
Fáninn númer
eitt, tvö og þrjú
Diljá Rut er ein af tuttugu skátum sem standa heiðursvörð á Austurvelli á þjóðhátíðardaginn.
Ný bílasala á Selfossi í eigu B&L
opnaði í vikunni þegar fyrirtækið
festi kaup á Betri bílasölunni
sem hefur verið starfrækt þar í
bæ í 15 ár. Fyrirtækið verður til
húsa í nýlegum 300 fermetra
sýningarsal í Hrísmýri 2a. Öll
merki B&L, bæði á nýjum bílum
og notuðum eru til sölu á nýju
bílasölunni.
Á morgun verður gengið á milli
nokkurra þekktra hella í nágrenni
Reykjavíkur undir fararstjórn
Ragnars Jóhannessonar. Brottför
frá BSÍ klukkan 10.30. Gengið
verður
meðal
annars um
Skáta-
hella
nyrðri
og syðri, Fosshelli og Selgjár-
hella nyrðri og syðri. Áætlað er
að gangan muni taka um 4-5
klukkustundir og gengnir verða
11 kílómetrar.
ALLT HITT
BÍLAR FERÐIR
RÓMARVEFURINN.IS
Hreinasta gullnáma fyrir þá sem vilja
fræðast um Ítalíu.
FERÐIR 5
ÖFLUGRI OG FAL-
LEGRI SANTA FE
B&L hefur kynnt til sögunnar
nýja útgáfu hins vinsæla
borgarjeppa Hyundai Santa Fe.
BÍLAR 2
Handbók með ítarlegum upplýsingum, kortum o.fl. fylgir!
Fæst á ESSO, í veiðivöruverslunum og á www.veidikortid.is
Bestu kaupin!