Fréttablaðið - 25.06.2006, Page 20
Hann tekur á móti blaðamanni
með hlýlegu handtaki og brosir
feimnislega. Augun djúpstæð og
flöktandi líkt og hann sé annars
hugar. Kannski þegar farinn að
huga að myndatökunni sem stendur
fyrir dyrum.
Tim Flach er ljósmyndari sem
hefur sérhæft sig í ljósmyndun á
dýrum. Hróður hans er allnokkur
innan ljósmyndageirans þó að
almenningur þekki enn ekki vel
til verka hans. Hann er vinsæll
auglýsingaljósmyndari og hefur
tekið myndir fyrir stórar
auglýsingaherferðir Adidas, Sony,
Jaguar og flugfélag Singapúr, svo
fátt eitt sé nefnt.
Verk hans eru sýnd víða um
veröld í galleríum í New York,
London, Berlín og Tókýó. Auk þess
hefur hann komið fram í heimildar-
myndum á BBC-sjónvarpsstöðinni.
Nú síðast var sjónvarpsstöðin
Animal Planet að gera þátt um
ferð hans um Ísland, en hann var
staddur hér ekki alls fyrir löngu
þegar blaðamaður Fréttablaðsins
hafði uppi á honum á sveitasetr-
inu Ármóti í Vestur-Landeyjum
þaðan sem hann gerði út meðan á
dvöl hans stóð hér á landi.
Tilgangur heimsóknar Tims Flach
var fyrst og fremst að ljósmynda
íslenska hestinn. Er það hluti af
stærra verkefni en ætlunin er að
gefa út heila ljósmyndabók með
myndum af hestum.
„Ég hafði heyrt mikið um
íslenska hestinn enda er hann í
miklum metum hjá fólki innan
hestaheimsins,“ segir Tim þegar
hann er inntur eftir því af hverju
íslenski hesturinn hafi orðið fyrir
valinu í þessu verkefni hans. „Svo
skilst mér að á Íslandi séu fleiri
hestar á hvern íbúa en nokkurs
staðar annars staðar í heiminum,“
bætir hann kankvíslega við. Sjálfur
hafði hann ekki kynnst íslenska
hestinum áður en hann kom til
landsins en var búinn að mynda
sér skoðun á honum eftir nokk-
urra daga kynni í gegnum linsuna.
„Þeir virðast mjög ljúfir og bregð-
ast við fólki. Þá er félagsleg hegð-
un íslenska hestsins mjög virk,
ólíkt því sem gerist hjá mörgum
öðrum hestategundum sem alast
að stórum hluta upp í hesthúsi.
Náttúruleg hegðun er mun aug-
ljósari hjá íslenska hestinum enda
skilst mér að hann alist að stórum
hluta upp í hjörð,“ segir Tim, sem
fannst skemmtilegt hvað hestarnir
héldu vel saman og klóruðu hver
öðrum meðan á tökum stóð.
Áður en Tim kom til landsins
var hann búinn að kynna sér landið
og þá staði sem hann vildi nota til
myndatöku. „Íslenska landslagið
finnst mér eitt það allra stórfeng-
legasta í heiminum,“ segir Tim og
minnist sérstaklega heimsóknar
sinnar í Jökulsárlón sem hafði
mikil áhrif á hann. „Fjölbreyti-
leikinn er heillandi svo og birtan,
þó að veðrið hafi reyndar ekki
beint leikið við okkur,“ segir hann
kíminn og horfir löngunaraugum
út um gluggann á heiðskíran him-
ininn, en þetta er fyrsti
sólardagurinn frá því hann kom til
landsins og heimferðin er áætluð
daginn eftir.
Rigningarveðrið hefur þó ekki
dregið úr jákvæðni Tims. „Ég lít á
veðrið sem tækifæri til að horfa á
hlutina með öðrum augum, undir
kringumstæðum sem eru öðruvísi
en ekki endilega verri, þó að
auðvitað sé erfiðara að ná góðum
myndum í rigningu, sérstaklega
með tilliti til birtunnar,“ segir Tim
og glottir þegar hann tjáir blaða-
manni að Íslendingarnir sem hafi
aðstoðað hann hér hafi heldur
betur lent illa í leit hans að bestu
birtunni. „Ég vil taka myndir
mínar við sólarupprás eða sólar-
lag sem er kannski hálf óguðlegur
tími,“ segir hann afsakandi.
Tim segist hafa byrjað töluvert
seint að taka myndir. Hann
útskrifaðist frá St. Martins School
of Art í London árið 1983 þar sem
hann lagði helst áherslu á mynd-
list en fór síðan í meira mæli að
nota ljósmyndir í verk sín. „Það
má kannski segja að ég hafi tekið
myndir í tuttugu ár og finnst ég
vera að læra eitthvað nýtt á
hverjum degi,“ segir Tim sem
vinnur myndir sínar talsvert
mikið, skýrir línur sem hann vill
leggja áherslu á, dregur fram
æskilega birtu og eyðir út hlutum
sem honum finnst skemma heildar-
myndina. Hann reynir að setja
viðfangsefni sitt, sérstaklega dýr,
í umhverfi sem liggur ekki
endilega beint við. Þetta gerir
hann til að vekja spurningar fólks
og fá það til að velta myndunum
fyrir sér.
Eins og áður sagði hefur Tim
starfað töluvert við auglýsinga-
ljósmyndun. Hann segir verkefnið
sem hann vinnur að nú talsvert
frábrugðið þeirri vinnu. „Í aug-
lýsingabransanum þarf maður að
vinna mikið með fólki og leysa
ýmis vandamál. Því fylgir lítil
einstaklingsupphefð enda átak
samstillts hóps að verki. Hér hins
vegar ræð ég algerlega ferðinni,“
segir Tim sem lítur á þetta sem
tækifæri til að útvíkka það sem
hann hefur verið að fást við
undanfarin ár. Þá langar hann til
að almenningur þekki verk hans
en þau hafa hingað til verið betur
þekkt meðal annarra ljósmynd-
ara. „Ég vil deila upplifun minni
á hestinum með fjöldanum en
ekki aðeins afmörkuðum hópi
fólks.“
Tim á enn langt í land með
vinnu sína við fyrstu bókina.
Björtustu vonir benda til þess að
hún geti verið komin í verslanir
eftir um tuttugu mánuði, enda
verða í bókinni mörg hundruð
myndir og framundan eru ferðalög
um allan heim. „Ég er frá
Bretlandi en mér líður stundum
eins og hirðingja án heimalands.
Ég hef verið mikið á ferðinni. Til
dæmis verð ég heima í einn dag
áður en ég held til Kaliforníu og
síðan til Mongólíu, en þetta er
yndislegt líf,“ segir Tim sem langar
að koma aftur til Íslands fljótlega.
„Þá langar mig að fylgja hestinum
eftir til dæmis á ferðalagi sem
mér skilst að sé frábært,“ segir
Tim og getur nú ekki lengur setið
kyrr. Það er mikið verk fyrir
höndum, enda þarf að nýta sólar-
geislana meðan þeir gefast.
25. júní 2006 SUNNUDAGUR20
Ljósmyndarinn Tim Flach hefur vakið athygli
fyrir óvenjulegar dýralífsmyndir. Hann var staddur
hér á landi til að taka myndir af íslenska hestinum
í stórbrotinni náttúru og fylgdi sjónvarpsstöðin
Animal Planet honum hvert fótmál. Sólveig
Gísladóttir renndi austur fyrir fjall og ræddi við
ljósmyndarann.
Hesturinn, birtan og ljósmyndarinn
VIÐ JÖKULSÁRLÓN Tim Flach valdi sér áhugaverða tökustaði og lét flytja hesta á staðinn. Hann reyndi að nota sérstæða birtuna við sólarupprás og sólarlag til að ná sem bestum myndum. FRÉTTABLAÐIÐ/TIM FLACH
Í HRAUNBREIÐU Andstæðurnar hrópast á. Hinn rauði litur hestsins undirstrikar græna
ljómann frá mosanum.
VIÐ TÖKUR Tim Flach var glaður þegar sólin fór loks að skína.BIRTAN OG HRAUNIÐ Tim Flach stendur á hestakerru til að ná sem
bestu sjónarhorni á hestinn og hraunið.