Fréttablaðið - 25.06.2006, Side 69

Fréttablaðið - 25.06.2006, Side 69
SUNNUDAGUR 25. júní 2006 29 Bogomil Font hefur lokið upptökum á sinni fyrstu plötu í ellefu ár með tríó- inu Flís. Platan nefnist Bananaveldið og er vænt- anleg í búðir eftir um það bil tvær vikur. „Þetta verða gamlir kalypsóar frá Trínidad í nýjum búningi með íslenskum textum. Þetta er lífs- glöð og sprellgjörn tónlist sem menn eins og Harry Belafonte eru þekktir fyrir,“ segir Sig- tryggur Baldursson, hægri hönd Bogomils Font. „Eitt af einkenn- um þessarar tónlistar er afskap- lega fyndnir og oft á tíðum óvenjulegir textar. Við létum íslenskuna kenna á því með þessa texta. Sumum er snarað beint yfir úr frummálinu en sumir fá nýtt innihald í takti tíðarandans,“ segir Sigtryggur. „Þetta er svona þjóðfélagsgagnrýni og góðlátlegt nöldur. Það er mikið til verið að nöldra yfir veðurfarinu og óþrifn- aði kvenna. Þarna er kvenfyrir- litning og skepnuskapur í hverju horni. Ég reikna nú með að hlust- endur sjái í gegnum þetta endar eru þetta flest hálfgerð öfug- mæli,“ segir hann. Sigtryggur kynntist meðlim- um Flís eftir að hafa verið nágranni þeirra í æfingahúsnæði Klink og Bank. Gaukaði hann þá að þeim afritum af 78 snúninga plötu með Roaring Lion, sem er einn af kalypsó-kóngunum sem voru uppi snemma á síðustu öld. „Strákarnir í Flís tóku af mér lof- orð um að leyfa Bogomil að gera með sér plötu. Þetta er fyrsta plata kallsins í ellefu ár síðan hann gerði plötuna Kurt Weill. Hann er í þessu „historical“ dæmi,“ segir Sigtryggur, sem bætir því við að samstarfið með Flís hafi verið mjög skemmti- legt. Flís, sem er skipuð þeim Davíð Þór Jónssyni, Valdimar Kolbeini Sigurjónssyni og Helga S. Helga- syni, gaf á síðasta ári út plötuna Vottur með lögum sem Haukur Morthens gerði vinsæl á sínum tíma. Naut platan mikilla vin- sælda og hlaut einróma lof gagn- rýnenda. Margir bíða því eflaust spenntir eftir samstarfi Flísar og stuðboltans Bogomils, sem sló í gegn á sínum tíma með Milljóna- mæringunum. Flís og Bogomil munu kynna plötuna í fyrsta sinn á Akureyri þann 6. júlí og daginn eftir verða þeir á Þjóðlagahátíðinni á Siglu- firði. freyr@frettabladid.is Fyrsta platan í ellefu ár FLÍS OG BOGOMIL Fyrsta plata Flís og Bogomils Font, Bananaveldið, kemur út eftir tvær vikur. Sambúð rithöfunda og stjórnmálamanna er merkilegt viðfangs- efni og vakti einatt harðar deilur á síðustu öld. Það er friðvæn- legra yfir þeim umræðum nú hér á Vesturlöndum, sumpart vegna þess að þessir hópar láta sér hvor annan í léttu rúmi liggja, sumpart af því að bókmenntir hafa ekki jafn miðlæga stöðu í sjálfsvitund fólks og þær höfðu áður. Þó eru enn dæmi þess sem betur fer, líka hérlendis, að rithöfundar hafi merkjanleg áhrif á pólitíska umræðu – eins og þegar Hallgrímur Helgason bjó til hugtakið um bláu höndina og Andri Snær skrifaði um Drauma- landið. En það er – líka sem betur fer – ekki sama heift í umræð- unni og á árum áður, þegar menn hreyttu skömmum hver í annan í samanbitinni beiskju kalda stríðsins. Millistríðsárin Samband stjórnmála og skálda var þó örugglega flóknast, og afleiðingar þess afdrifaríkastar, á millistríðsárunum, þessum stórsóknartíma stéttastjórnmála. Það var ekki bara að skáldin hafi heillast af og látið berast með fjöldahreyfingum tímans, heldur voru stjórnmálamenn vel meðvitaðir um áhrifamátt hins ritaða orðs áður en aðrir miðlar tóku völdin. Orð voru til alls fyrst, og rithöfundar höfðu orðið. Stalín kallaði þá verkfræðinga sálarinnar og vildi virkja þá í þágu sinna þjóðfélagslegu stór- framkvæmda og Hitler lék sínu eitraða peði, Göbbels, á taflborði bókmenntanna og lét sameina öll höfunda-, útgáfu og bóksalafé- lög undir hans stjórnsýslu. Lesendur sem höfðu kannski dáð suma sagnamenn fyrir mannúð og skilning sáu þá allt í einu komna í herbúðir þessara óálitlegu einræðisherra. Knut Hamsun, höfundur Viktoríu og Gróðurs jarðar, studdi stjórnvöld nasista jafnvel eftir að þau hernámu Noreg og Romain Rolland, sem hafði skrifað af svo miklum skilningi um hinn einræna listamann van Gogh, var orðinn sendi- boði Stalíns. Íslendingar fóru ekki varhluta af þessu: Þórbergur Þórðarson og Halldór Laxness hylltu Sovétríkin á einræðistíma Stalíns, og Guðmundur Kamban og Gunnar Gunnarsson gáfu í hæsta máta hæpnar yfirlýsingar um ágæti þýskra stjórnvalda eftir valdatöku Hitlers, þótt þeir síðarnefndu hafi ekki gengið jafn langt og þeir fyrrnefndu. Jóhann Jónsson Sá sem skoðar bókmenntasöguna á millistríðsárunum verður því auðveldlega gripinn efasemdum um pólitíska glöggskyggni skálda. Þeim mun merkilegra er að rekast á menn sem héldu haus í þessum ólgusjó. Einn þeirra, skáldið Jóhann Jónsson, vinur Þórbergs, Gunnars og Halldórs, bjó í Þýskalandi; var þar rúmliggjandi berklasjúklingur síðustu árin fyrir valdatöku nas- ista uns hann lést 1. september 1932. Árið 1930, eftir kosningar í Þýskalandi þar sem nasistar fengu tæpan fimmtung atkvæða og urðu næst stærsti flokkurinn, skrifaði hann vini sínum Gunnari Gunnarssyni: „Við, sem erum þeim örlögum háðir, að hafa fengið lífsskoðun okkar í skóla gömlu menningarinnar, sem leið undir lok 1914, verðum aldrei annað en framandi menn í okkar eigin lífi“. Hann á ekki samleið með kynslóð sem ólst upp við hungur og verðbólgu og lítur á skaðræðismanninn Hitler sem foringja, fellur fyrir hatri og pólitískum frösum, þetta fólk hefur enga hefð, enga andlega reynslu, ekkert lifandi samband við andlega fortíð þjóðar sinnar, skrifar Jóhann. Nálgun hans minnir einna helst á afstöðu Stefans Zweig einsog hún kom fram í bók hans Veröld sem var. Það kann að vera að sambýliskona Jóhanns, þýska leikkonan Elisabeth Göhlsdorf sem var virk í menningar- félögum þýska sósíaldemókrata, hafi haft þarna áhrif. En dæmi hans sannar þann lærdóm sem hægt er að draga af sambúð rit- höfunda og stjórnmálaafla á 20. öld: Þau skáld hafa sloppið best frá henni sem héldu sér í gagnrýninni fjarlægð frá valdinu og handhöfum þess hvort heldur er á sviði peninga eða pólitíkur. Reyndar á sama einnig við, að breyttu breytanda, um ritstjórnir dagblaða. Skáld og stjórnmál Tónleikar verða haldnir í Fossa- túni í dag. Sungin verða lög af plöt- unum Íslensk ástarljóð sem kom út sumarið 2004 og Íslensk ástar- lög sem kom út fyrr í sumar. Eru þetta útgáfutónleikar síðarnefndu plötunnar, sem er nú í efsta sæti Tónlistans yfir vinsælustu plötur landsins. Tónleikarnir verða í beinni útsendingu á Rás 2 frá klukkan 16.05 og sér Margrét Blöndal um útsendinguna. Tónleikar í Fossatúni RAGNHEIÐUR GRÖNDAL Söngkonan Ragn- heiður Gröndal syngur í Fossatúni í dag. Hitt húsið stendur fyrir verkefninu Skapandi sum- arstörf fyrir ungt listafólk. Alls munu sjötíu ungmenni setja svip sinn á borgina í sumar og gleðja gesti og gangandi með verkum sínum. Að sögn Ásu Hauksdóttur, deild- arstjóra menningarmála hjá Hinu húsinu, verður listafólkið á ferð og flugi um alla borg í sumar. „Þau koma síðan saman í mið- borginni þrjá föstudaga í sumar þar sem allir hóparnir leggja list sína á borð fyrir áhorfendur en það köllum við föstudagsflipp.“ Tvær ungar myndlistarkonur, Eva Ísleifsdóttir og Katrín Inga, eru meðal þátttakenda í Skapandi sumarstörfum og sýndu þær verk sitt í Pósthússtrætinu fyrir helgi. „Það er svo títt með alla list að almenningur getur ekki tengst henni með neinum virkum hætti heldur er hann hlutlaus og óvirk- ur áhorfandi. Þessu vildum við breyta með okkar verki og því gengum með þá hugmynd í mag- anum að hanna verk sem væri aðgengilegt öllum.“ Katrín Inga segir þetta verk vera hljóðskúlptúr sem beri nafn- ið Hljóðvirki til samskipta. „Hug- myndin að baki listaverkinu er sú að það losi um hömlur samborg- aranna til að tjá sig. Þetta er í raun áskorun á fólk að virkja sköpunargleðina í sér en hún býr í öllum,“ bætir Katrín Inga við. „Hljóðverkið er gríðarlega stórt eða allt að sex metrar að lengd en það skiptist í þrjá hluta. Fyrsti hluti þess fæddist 17. júní og var afhjúpaður í miðbæ Reykjavíkur en það er tveir og hálfur metri að lengd. Það var gríðarleg stemming sem skapað- ist við opnunina og við vorum kampakátar með viðbrögð gesta,“ heldur Katrín Inga áfram. Hún segir verkið búið til úr fjórum strengjum sem settir eru í risa- stóran kassa sem sé eins og bassi. Annar hluti hljóðverksins segir Katrín Inga vera risastórar trommur sem þær muni afhjúpa þann 7. júlí á Laugaveginum. „Þá mun fjöldi fólks geta fengið útrás fyrir að hamra á trommur með berum höndum,“ segir hún hlæj- andi. „Að síðustu leggjum við áherslu á raddir eða þann 14. júlí, en þann hluta fyllum við með hljóðnemum svo að fólk geti feng- ið útrás með raddböndunum.“ - brb Sex metra hljóðlistaverk í miðborginni UNGAR LISTAKONUR Katrín Inga og Eva með hljóðlistaverkið sitt. HALLDÓR GUÐMUNDSSON > SKRIFAR UM BÓKMENNTIR Orð voru til alls fyrst, og rithöfundar höfðu orðið. Stalín kallaði þá verkfræðinga sálarinnar og vildi virkja þá í þágu sinna þjóðfélagslegu stórframkvæmda og Hitler lék sínu eitr- aða peði, Göbbels, á taflborði bókmenntanna og lét sameina öll höfunda-, útgáfu og bóksalafélög undir hans stjórnsýslu.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.