Fréttablaðið - 29.06.2006, Blaðsíða 4
4 29. júní 2006 FIMMTUDAGUR
����������������������������������������� ������������
�������������
������������
������������
�����������������������������������������������������������������
����
�����
�����
�
��� ��� ��
�������������� ���
��������������
�����
GENGIÐ
GENGI GJALDMIÐLA 28.06.2006
Bandaríkjadalur 76,30 76,66
Sterlingspund 138,95 139,63
Evra 95,83 96,37
Dönsk króna 12,847 12,923
Norsk króna 12,114 12,186
Sænsk króna 10,376 10,436
Japanskt jen 0,6558 0,6596
SDR 112,09 112,75
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
KAUP SALA
132,9201
Gengisvísitala krónunnar
FJÁRSVIKAMÁLIÐ Innra eftirlitið hjá
Tryggingastofnun ríkisins brást í
þau fjögur ár sem meint fjár- og
bótasvik starfsmanns stofnunar-
innar áttu sér stað. „Auðvitað má
segja að innra eftirlitið og þær
reglur sem um það eiga að gilda
hafi brugðist að einhverju leyti.
Það liggur fyrir,“ segir Sigurður
Þórðarson ríkisendurskoðandi.
Hann telur málið einfalt. Einum
starfsmanni hafi verið búin þau
skilyrði að geta ákvarðað bætur
og afgreitt þær sjálfur til gjald-
kera án þess að nokkur annar hafi
komið að málinu. Þetta eigi ekki
að geta gerst. „Menn bera traust
til fólks og svo bregst þetta
traust,“ segir hann.
Fulltrúar Ríkisendurskoðunar
munu skoða verkferla og vinnulag
innan Tryggingastofnunar, þannig
að fjár- og bótasvik geti ekki átt
sér stað aftur með sama hætti.
„Við skoðum þá áhættupunkta
sem eru fyrir hendi og hvernig
menn standa að verklagi,“ segir
Sigurður. Hann telur að stjórnend-
ur stofnunarinnar hafi verið svo
uppteknir af meðal annars breyt-
ingum á upplýsingakerfum, að
innra eftirlitið hafi setið á hakan-
um.
Kona, sem starfað hafði sem
þjónustufulltrúi hjá Trygginga-
stofnun í rúm tuttugu ár, er sökuð
um að hafa svikið út 75 milljónir,
og er þetta talið eitt stærsta trygg-
ingasvikamál Íslandssögunnar.
Alls tengjast tuttugu manns mál-
inu, þar á meðal sonur konunnar
og tengdadóttir, auk 29 ára manns.
Allt þetta fólk tók við peningum
gegn ákveðinni þóknun, að sögn
NFS. Nokkrir fjórmenninganna
hafa játað aðild. Konan og sonur
hennar búa í félagslegri íbúð í
Breiðholti. Konunni var sagt upp
um áramótin vegna mikilla veik-
inda og fjarvista frá vinnu og tók
uppsögnin gildi 1. júní. Samkvæmt
heimildum blaðsins fór nýr starfs-
maður, sem tók við starfi konunn-
ar, að spyrja spurninga og í kjölfar
þess kviknaði grunur.
Kristinn H. Gunnarsson, stjórn-
arformaður Tryggingastofnunar,
býst við að forstjórinn gefi stjórn-
inni skýrslu um málið á næsta
stjórnarfundi. „Við munum sjálf-
sagt fara yfir eftirlitsþættina í
stofnuninni, en það var í sjálfu
sér innra eftirlitið sem uppgötvaði
málið.“ ghs@frettabladid.is
Grunur kviknaði
með nýjum manni
Innra eftirlit hjá Tryggingastofnun ríkisins brást, meðal annars vegna þess að
stjórnendur stofnunarinnar voru uppteknir af breytingum á upplýsingakerfum.
Ríkisendurskoðun endurskoðar verkferla og vinnulag.
TRYGGINGASTOFNUN RÍKISINS Fjársvikakonunni var sagt upp vinnunni um áramótin vegna
mikilla fjarvista og tók uppsögnin gildi 1. júní. Grunur um svikin kviknaði þegar nýr starfs-
maður tók til starfa og hóf að spyrja spurninga.
MOSKVA, AP Fjörutíu og tvö þúsund
Rússar deyja árlega úr neyslu
heimatilbúins landa, að því er
Rashid Núrgalíeff, innanríkisráð-
herra Rússlands, greindi frá.
Hann lét einnig hafa eftir sér að
drykkjusýki Rússa væri „þjóðar-
harmleikur,“ sem hefði fækkað
Rússum stórlega frá falli Sovét-
ríkjanna. Á árunum 1991 til 2001
jókst áfengisneysla í Rússlandi
um fjörutíu prósent, samkvæmt
mati Alþjóðaheilbrigðismálastofn-
unarinnar.
Rússum fækkar nú um sjö
hundruð þúsund manns á ári og er
fólksfækkunin rakin til ringul-
reiðar í efnahagsmálum, sem
hefur skaðað heilbrigðiskerfi
landsins til muna. Fæðingartíðni
er lægri og lífslíkur minni en áður,
einungis 66 ár að meðaltali. - kóþ
Rússar þykja drykkfelldir:
Landadrykkjan
drepur marga
LANDABRUGGARI Í MOSKVU Svo margir
falla í valinn í Rússlandi eftir neyslu „sama-
gonka“ að jaðrar við faraldur.
NORDICPHOTOS/AFP
SIGURÐUR
ÞÓRÐARSON
KRISTINN H.
GUNNARSSON
STJÓRNMÁL Jón Sigurðsson, iðnaðar-
og viðskiptaráðherra, segist gefa
kost á sér í embætti formanns
Framsóknarflokksins, en kosning-
ar fara fram á flokksþingi í ágúst.
„Ég er tilbúinn að taka við þeim
skyldum sem mér eru lagðar á
herðar,“ segir Jón. Hann segir
marga flokksmenn hafa komið að
máli við hann og hvatt hann til að
gefa kost á sér.
„Jón er hinn vænsti maður sem
Halldór hefur kallað fram á sjón-
arsviðið,“ segir Siv Friðleifsdóttir,
heilbrigðis- og tryggingamálaráð-
herra. Hún vildi ekki segja hvort
hún ætlaði sjálf að gefa kost á sér
til formanns. „Ég hef starfað lengi
í Framsóknarflokknum og tel mig
hafa nægan tíma til að íhuga þessi
mál. Ég hef ekki tekið neina
ákvörðun.“
Aðspurður um hvort Halldór
Ásgrímsson hafi hvatt hann sér-
staklega til að gefa kost á sér,
segir Jón að hann láti ekki draga
sig út í eitt eða neitt. „Ég tek þessa
ákvörðun sjálfur og síðan taka
fulltrúar sína ákvörðun á flokks-
þingi. Ég treysti þeim fullkomlega
fyrir að velja rétt.“
Ekki náðist í Guðna Ágústsson,
landbúnaðarráðherra og varafor-
mann Framsóknarflokksins, vegna
málsins, þrátt fyrir ítrekaðar til-
raunir. - sþs
Jón Sigurðsson gefur kost á sér sem formaður Framsóknarflokksins:
Halldór kallaði Jón fram
JÓN SIGURÐSSON, IÐNAÐAR- OG VIÐ-
SKIPTARÁÐHERRA Segist ekki láta draga
sig út í eitt né neitt heldur hafi hann tekið
ákvörðunina sjálfur. Siv Friðleifsdóttir segir
Halldór hafa kallað Jón fram á sjónarsviðið.
DÓMSMÁL Karlmaður var í gær
dæmdur, í Héraðsdómi Reykja-
ness, í sjö mánaða skilorðsbundið
fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn
tveimur stúlkum.
Maðurinn var ákærður fyrir að
hafa ítrekað nuddað kynfæri
stúlknanna innan klæða þeirra, en
stúlkurnar voru sex og átta ára
þegar atvikið átti sér stað.
Maðurinn játaði brot sín fyrir
dómi og var dæmdur, auk skil-
orðsins, til að greiða eldri stúlk-
unni 250 þúsund krónur og þeirri
yngri 150 þúsund. Honum var
einnig gert að greiða sakarkostn-
að sem hljóðar upp á um hálfa
milljón króna. - æþe
Dæmdur á Reykjanesi:
Kynferðisbrot
gegn stúlkum
Tengivagn velti Vörubíll með
tengivagn lenti utan vegar í nágrenni
við Námaskarð í fyrrakvöld, með þeim
afleiðingum að tengivagn sem hann dró
velti. Vörubíllinn hafði mætt bíl sem vék
ekki nóg og þurfti því að fara út í kant
sem gaf sig. Tengivagninn er gjörónýtur
en engin meiðsl urðu á fólki.
Ferðafólk utan vegar Bíll með
ferðafólki lenti út af Dettifossvegi
eystri í fyrrakvöld. Engin meiðsl urðu
á ferðafólkinu en bíllinn er talsvert
skemmdur.
LÖGREGLUFRÉTTIR
LÍKAMSÁRÁS Tveir menn á tvítugs-
aldri voru ákærðir í gær fyrir lík-
amsárás á rúmlega fertugan mann
fyrir utan skemmtistaðinn Vitann
í Sandgerði í júnímánuði í fyrra.
Réðust þeirra á manninn með
spörkum og hnefahöggum með
þeim afleiðingum að hann rotað-
ist. Fórnarlambið hlaut ýmsa
áverka vegna árásarinnar, þar á
meðal rifbeinsbrot.
Ákæruvaldið krefst refsingar
og þolandinn fer fram á ríflega
átta hundruð þúsund krónur í
skaðabætur. - æþe
Líkamsárás í Sandgerði:
Rot og rif-
beinsbrot
AFMÆLI Landsbanki Íslands fagnar
120 ára afmæli sínu á laugardag
með dagskrá á fjórtán stöðum
víðsvegar um land.
„Það var tekin ákvörðun hjá
bankaráði að minnast þessara
tímamóta með veglegum hætti og
munum við gera það í heilt ár, en
upphaf afmælisársins og hápunkt-
urinn verður núna á laugar-
daginn,“ segir María Björk
Óskarsdóttir, framkvæmdastjóri
afmælisnefndar bankans.
Landsbankinn er elsti banki
landsins og tók fyrst til starfa í
Bakarabrekku í Reykjavík sem
síðar var nefnd Bankastræti eftir
honum. Í tilefni afmælisins kemur
út söguannáll Landsbankans sem
Eggert Þór Bernharðsson sagn-
fræðingur hefur tekið saman. - öhö
Landsbanki Íslands:
Fagnar 120 ára
afmæli í ár
AFMÆLIÐ KYNNT María Björk Óskarsdóttir,
Björgólfur Guðmundsson og Kjartan Gunn-
arsson kynna afmælisdagskrána.