Fréttablaðið - 29.06.2006, Blaðsíða 61
ÚTFARIR
13.00 Auðbjörg Björnsdóttir, Hrafnistu
Hafnarfirði, áður Flókagötu 61,
Reykjavík, verður jarðsungin frá
Háteigskirkju.
13.00 Leifur Sigurðsson, rennismíða-
meistari, Sogavegi 168, Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Bústaða-
kirkju.
13.00 Hulda Guðmundsdóttir, Álftamýri
6, Reykjavík, verður jarðsungin frá
Fossvogskirkju.
14.00 Elfa Guðrún Reynisdóttir verður
jarðsungin frá Húsavíkurkirkju.
14.00 Helgi Sigurðsson, Brautarhóli, Sval-
barðsströnd, verður jarðsunginn frá
Svalbarðsstrandarkirkju.
15.00 Þorkell Nikulásson, fisksali,
Hæðargarði 29, Reykjavík, verður
jarðsunginn frá Laugarneskirkju.
15.00 Engilbert Hannesson, fyrrverandi
bóndi, Bakka, Ölfusi, verður jarð-
sunginn frá Hveragerðiskirkju.
HUGLEIKUR DAGSSON Hugleikur hefur
vakið mikla athygli fyrir teiknimyndasögur
sínar og þykja þær skörp ádeila á íslenskt
samfélag og erlent, en mörgum hefur þótt
þær grófar. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
AFMÆLI
Ágúst Guðmundsson
leikstjóri er 59 ára.
Sigurjón Þórðarson
þingmaður er 42 ára.
Guðmundur Stephensen
borðtennismeistari er 24 ára.
Þennan dag árið 1974 var
Maria Estela Isabel Martinez
de Peron svarin í embætti
sem leiðtogi Argentínu. Þar
með varð frú Peron, sem var
fyrrverandi kabarettdansari,
fyrsti kvenforseti landsins. Eig-
inmaður hennar, forsetinn Juan
Peron, hafði afsalað sér völdum
vegna alvarlegra veikinda en
hinn 78 ára gamli Peron hafði
þá ekki sést opinberlega í tvær
vikur.
Frú Peron, sem almenningur
kallaði ávallt Isabelitu, var
þriðja eiginkona Juans Peron
og varð varaforseti þegar hann
sneri aftur til valda í septemb-
er 1973 en hann hafði verið
í útlegð frá árinu 1955 eftir
valdarán í landinu. Þau kynntust
á næturklúbbi í Panama meðan
Peron var í útlegð. Eftir að Juan
Peron sneri úr útlegðinni árið
1973 vann hann stórsigur í
kosningum og kom á næstu
mánuðum á nokkrum stöðug-
leika í Argentínu. Hann dó 1. júlí
árið 1974 en Isabel varð forseti
til ársins 1976. Þá var henni
steypt af stóli af herforingja-
stjórn Jorge Rafael Videla.
Isabelitu tókst aldrei að vinna
hjörtu argentínsku þjóðarinnar.
Hún lifði ætíð í skugga Evu
Peron sem var önnur eiginkona
Juans Peron. Evita var dáð af
stórum hluta þjóðarinnar en
varð aldrei forseti og dó úr
krabbameini árið 1952.
ÞETTA GERÐIST: 29. JÚNÍ 1974
Kabarettdansari verður forseti Argentínu
MERKISATBURÐIR
1941 Þýski kafbáturinn U 564 sökkvir
flutningaskipinu Heklu suður af
Grænlandi. Þrettán farast en sjö
er bjargað af fleka eftir rúma tíu
sólarhringa.
1951 Ríkharður Jónsson skorar fjögur
mörk í landsleik gegn Svíum, þar
sem Íslendingar unnu með fjórum
mörkum gegn þremur.
1980 Vigdís Finnbogadóttir er kjörin
forseti Íslands. Hún var fyrsta
konan í heiminum sem kosin var
þjóðhöfðingi í lýðræðislegum
kosningum.
1995 Bandaríska geimskutlan Atlantis
kemur til geimstöðvarinnar MIR.
1996 Ólafur Ragnar Grímsson er kjörinn
fimmti forseti Íslands.
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI
Jón Sigurðsson
forstjóri Össurar er 50
ára.