Fréttablaðið - 29.06.2006, Blaðsíða 23
FIMMTUDAGUR 29. júní 2006 23
leika stórt hlutverk í þessari
fléttu, eftir að hafa verið komnir í
óþægilega stöðu sem minnihluta-
eigendur í Straumi. Andað hefur
köldu milli Björgólfs Thors og
Magnúsar um langa hríð, miklu
lengur en frá aðalfundi Straums
þegar allt fór í háaloft. Samkvæmt
heimildum Fréttablaðsins vildi
Björgólfur Thor losna við Magnús
úr Straumi í janúar með því að
kaupa fimmtán prósenta hlut
Eyjamannsins en Magnús tók það
ekki í mál. Björgólfur Thor sagði
sjálfur í viðtali við Fréttablaðið í
síðustu viku að hann hefði verið
tilbúinn að selja hlut sinn í mars
fyrir reiðufé, en ekki hlutabréf, en
enginn kaupandi var til staðar.
Hagnaður þeirra Kristins og
Magnúsar af fjárfestingu sinni í
Straumi er með ólíkindum en þeir
keyptu stóran hlut árið 2003 þegar
Straumur var lítið en stórhuga
fjárfestingafélag. Magnús keypti
tæp tíu prósent á genginu 4,55 en
salan fór fram á genginu 18,9. Þeir
félagar munu vera hæstánægðir
með viðskiptin og eru síður en svo
sestir í helgan stein, enda fá þeir
stóran hlut í FL Group, Magnús
fimmtán prósent og Kristinn tíu
prósent sem þýðir væntanlega að
þeir munu setjast síðar í sjö manna
stjórn. Ekki er þó víst að bandalag
þeirra nái lengra en sem því
nemur, en því má ekki gleyma að
þeir eru með óbeinum hætti hlut-
hafar í Straumi, og gleyma líklega
aldrei samskiptum sínum við
Björgólf.
Boltinn hjá Björgólfi
Eftir stendur að þau læti, sem
valdið hafa Straumi ómældum
skaða, eru horfin en valdamynstr-
ið í eigendahópnum hefur tekið
breytingum. Björgólfur Thor fer
áfram með meirihluta en minni-
hlutinn hefur margfaldað styrk
sinn eftir komu FL Group, félags í
eigu fjölda peningamanna, og
lætur seint vaða yfir sig. Ekki er
talið ólíklegt að mikið eigi eftir að
gerast í Straumi og á hlutabréfa-
markaði á næstunni. Boltinn er
hins vegar hjá Björgólfi sem
ræður stöðunni. Vill hann nánara
samstarf, uppskiptingu eða yfir-
töku?
BANDARÍKIN, AP Fólk sem hefur
ensku að móðurmáli leysir reikn-
ingsdæmi á annan hátt en það
sem elst upp við kínversku. Þetta
kemur fram í nýrri rannsókn á
virkni heilahvela við lausn á
reikningsdæmum.
Tveir hópar fólks, sem höfðu
annars vegar ensku og hins vegar
kínversku að móðurmáli, voru
látnir leysa einföld reiknings-
dæmi og notuðu báðir hóparnir
arabísku tölustafina, sem nýttir
eru í kínversku, ensku og
íslensku.
Báðir hóparnir leystu dæmin
án vandkvæða, og nýttu við það
þann hluta heilans sem notaður
er við lestur og skilning á magni.
Hins vegar kom það vísinda-
mönnunum á óvart að uppgötva
að þeir enskumælandi nýttu einn-
ig þann hluta heilans sem hefur
með tungumál að gera, á meðan
þeir kínversku notuðu þann hluta
heilans sem hefur með skilning á
myndrænum upplýsingum að
gera, að sögn Yiyuan Tang, kín-
versks háskólaprófessors sem
leiddi rannsóknina.
Talið er að rannsóknin geti
leitt til uppgötvana sem gætu
auðveldað samskipti mismunandi
þjóða og þjóðfélagshópa, því hún
útskýrir að hluta til mismuninn í
hugsun Bandaríkjamanna og Kín-
verja, að sögn Tang.
Rannsóknin var fjármögnuð
bæði af kínverskum og banda-
rískum aðilum og voru niðurstöð-
urnar birtar í bandarísku vís-
indatímariti á þriðjudag. - smk
Niðurstöður nýrrar könnunar á virkni heilahvela þegar kemur að stærðfræðinni:
Móðurmálið lykilatriði í lausn dæma
LEITAÐ LAUSNA Enskumælandi og kínverskumælandi fólk notar mismunandi hluta heilans
þegar kemur að lausn stærðfræðidæma.
HRÁSLAGAVEÐUR Rok og rigning ríkti í
New York í gær, þó að komið sé langt
fram á sumar. Gífurleg úrkoma víðs vegar
um norðausturhluta Bandaríkjanna und-
anfarið hefur neytt fjölmarga til að yfirgefa
heimili sín vegna flóða.FRÉTTABLAÐIÐ/AP
BJÖRGÓLFUR THOR BJÖRGÓLFSSON,
STJÓRNARFORMAÐUR STRAUMS-BURÐAR-
ÁSS Heldur utan um 38 prósent hlutafjár.
Talið er að hann muni eiga næstu leiki í
skákinni um völdin í Straumi.
FRÉTTASKÝRING
EGGERT ÞÓR AÐALSTEINSSON
eggert@frettabladid.is