Fréttablaðið - 29.06.2006, Blaðsíða 37
FIMMTUDAGUR 29. júní 2006
Sími: 568 5170
Verið velkomin
Gallar
Bómullar og velúr
gallar fyrir konur
á öllum aldri
Einnig vesti
og buxur
Stærðir 10 - 20
hefst í dag
Úr háborg tískunnar
BERGÞÓR BJARNASON SKRIFAR FRÁ PARÍS
Soldes, saldi, rbajas, sales...
Þá eru þær byrjaðar með trukki
og dýfu sumarútsölurnar hér í
París. Stund sem margir hafa
beðið eftir með óþreyju. Nú
aðeins degi fyrir upphaf sumar-
fría þegar hálf borgin fer af
stað og eyðir heilum degi í
umferðahnútum um land allt á
leið sinni suður í sólina. Það er
nefnilega þannig að það sem
þarf fyrir sumarfríið, eins og
stuttbuxur, boli, sundföt og
fleira er hægt að kaupa á hálf-
virði áður en haldið er í fríið.
Auðvitað er ýmislegt sem ekki
er lengur hægt að finna í réttri
stærð eða lit en alltaf er hægt
að gera góð kaup. Ég tala nú
ekki um í ár þegar almenningur
hefur beðið eftir sumrinu fram
yfir miðjan júní og kaupmenn í
venjulegum búðum horfðu á
hlýrabolina og munstruðu sum-
arkjólana rykfalla á lagernum.
Þeir höfðu gefið upp vonina um
að selja eitthvað af viti vegna
kulda. Þess vegna er næsta víst
að víða er nóg til fyrir útsölurn-
ar enda 15 prósent ársveltunnar
sem kemur inn meðan á þeim
stendur. Það er því til mikils að
vinna næstu sex vikurnar.
Tískuhúsin hafa að vanda staðið
fyrir hinum kolólöglegu einka-
útsölum fyrir góða viðskipta-
vini löngu fyrir opinbera dag-
setningu á útsölunum því í
Frakklandi standa útsölur yfir í
sex vikur samkvæmt lögum og
eru bannaðar þess á milli. Að
auki er vetrarlínan nú þegar í
útstillingargluggum og þeir
sem eru alltaf á undan kaupa nú
þegar vetrarfatnaðinn meðan
nóg úrval er.
Eftirlitsstofnun um ólöglega
verslunarhætti sendir út fulltrúa
sína um þessar mundir í tísku-
húsin og reynir að góma glóð-
volga þá sem stunduðu einkaút-
sölurnar. Fyrir nokkrum árum
gerðist það hjá Yves Saint Laur-
ent-tískuhúsinu að sölukona
nokkur ákvað, eftir að viðskipta-
vinur hafði nauðað lengi í henni
um að njóta útsöluafsláttarins
fyrirfram, að taka áhættuna og
tryggja þannig sölu dagsins sem
hafði fram að þessi ekki verið
upp á marga fiska. Viðskiptavin-
urinn gerði sér svo lítið fyrir,
eftir að hafa borgað, og dró fram
skilríki frá eftirlitsstofnuninni
fyrrnefndu. Tískuhúsið var sekt-
að um 76.000 evrur (rúmlega 7
milljónir íslenskra króna). Sölu-
konan var rekin og framkvæmda-
stjórinn sömuleiðis. Það er því
vissara að þekkja viðskiptavin-
inn vel.
Svo eru þeir sem draga fram
gamalt útsöludót frá síðasta ára-
tug og bjóða á lágu verði meðan
á útsölum stendur til að nurla
saman nokkrar krónur í viðbót.
Það sérkennilega er að það er
hægt að selja hvaða hörmung
sem er, ef rétt verð er í boði. En
þetta gætu orðið síðustu útsöl-
urnar með þessu formi. Við-
skiptaráðuneytið hugar að breyt-
ingum þar sem tilboð eru í gangi
meira eða minna allt árið og þá
hafa útsölur dálítið tapað mark-
miði sínu.
bergthor.bjarnson@wanadoo.fr
Nú hefur Lancome sett á markað Aqua
Flash Bronzer, fyrsta sjálfbrúnandi
vatnið. Vatnið er borið á með baðmull
og gefur húðinni karamellulitaðan og
náttúrlegan tón.
Í vatninu er DHA og virkt efni sem
sér um endingargóðan og jafnan lit sem
myndast á innan við klukkustund.
Sjálfbrúnandi vatn
Vatnið er sléttir og
styrkir.
Aqua Fusion Teinté er nýtt litað dagkrem
frá Lancôme. Það frískar upp á litarhátt-
inn og gefur létta og náttúrulega áferð.
Í kreminu er aquacellular, raka-
gefandi samsetning, sem líkir eftir
náttúrulegum raka húðarinnar. Kremið
er olíulaust og með sólarvörn SPF 15.
Kremið er fáanlegt í þremur litum
sem ætti að henta öllum.
Náttúruleg áferð
Kremið setur
á húðina
ferskan blæ.