Fréttablaðið - 29.06.2006, Blaðsíða 77
FRÉTTIR AF FÓLKI
Söngvarinn Eric Benet segir að fyrrum eiginkona sín,
leikkonan Halle Berry, ljúgi
blákalt þegar hún heldur því
fram að hann hafi haldið framhjá
henni 27 sinnum. Berry
segist ekki vilja greiða
fyrrum eiginmanni sínum
peninga sem þau hafi
samið um enda finnist
henni það ekki við hæfi
í ljósi framhjáhalds
hans. Benet er ósáttur
við að Berry skuli básúna
einkamál þeirra í fjölmiðlum og hefur
beðið hana að hætta því.
Anna Nicole Smith vill ekki tjá sig um andlát helsta andstæðings
síns í baráttunni um auðævi fyrrum
eiginmanns hennar. Eins og
kunnugt er giftist Anna
Nicole milljarðamær-
ingnum J. Howard árið
1994 þegar hún var
26 ára og hann 89
ára. Síðan hann lést
árið 1995 hefur Anna
átt í harðri baráttu
um auðævi hans í
dómssölum við stjúpson
Howard, Pierce, en hann lést
sjálfur í síðustu viku. Anna
Nicole segist, af virðingu
við fjölskyldu hins látna,
ekki ætla að tjá sig um málið
í fjölmiðlum.
Söngkonan Britney Spears segist njóta
þess mun meira að
vera ólétt í þetta
skiptið, enda hafi
hún nú lært hvernig
eigi að forðast paparazzi-
ljósmyndara sem fylgja
henni hvert sem hún fer.
Þegar Britney gekk með
soninn Sean Preston í fyrra þorði hún
varla út úr húsi vegna ljósmynd-
aranna en það er allt breytt.
„Nú kann ég þetta. Ég fer
í minnst þrjá göngutúra á
dag og nýt þess að vera
með syni mínum í friði,“
segir Britney.
Tom Cruise ætlar ekki að
dreifa myndum
af dóttur
sinni Suri til
fjölmiðla.
Ástæða
þess er
sú að Vísindakirkjan, sem hann tilheyrir,
leyfir slíkt ekki. Tom og heitkona hans
Katie Holmes eignuðust dóttur-
ina í apríl en hafa enn ekki
látið sjá sig saman.
Reglur Vísindakirkj-
unnar banna að farið
sé út úr húsi með
ungabörn nema
brýna nauðsyn
beri til og
því heldur
Tom sig
að mestu
heima
með
dótturinni.