Fréttablaðið - 29.06.2006, Blaðsíða 18
29. júní 2006 FIMMTUDAGUR18
nær og fjær
„ORÐRÉTT“
Hapro farangurskassi
er snjöll lausn til að koma öllum farangrinum fyrir í bílnum.
Kletthálsi 13 // s. 587 6644 // www.gisli.is
Sterku kerrurnar frá
Camp-let í mörgum stærðum
Fortjöld frá Isabella fyrir fellihýsi,
ferðabíla og hjólhýsi. Örugglega
bestu fortjöld sem fáanleg eru.
Verð frá 19.900
Farangurs
kassar
Það sem upp á vantar
Hestakerrur frá Camp-let sem bera af Ný hentug skjóltjöld í garða
frá Isabella. Verð frá 24.900 kr.
Fjórir Íslendingar ætla að
taka þátt í 100 kílómetra
ofurmaraþonhlaupi í Lapp-
landi aðfararnótt laugar-
dags. Þetta eru hlaupararn-
ir Elín Ruth Reed, Pétur
Franzson, Gunnar Richter
og Ellert Sigurðsson.
Fjórmenningarnir verða í hópi 47
hlaupara sem munu þreyta þetta
ofurmaraþon. Hlaupararnir eru
alls staðar að úr heimnum.
„Þetta er eitt af fáum næturhlaup-
um í heiminum. Það er startað
klukkan tíu á föstudagskvöldið og
svo er hlaupið alla nóttina. Þetta
er norðar en Reykjavík og bjart
nánast allan sólarhringinn,“ segir
Elín.
„Við völdum þetta hlaup aðal-
lega svo að við myndum ekki
lenda í miklum hita því að hita-
stigið þarna er svipað og hér að
nóttunni en annars er þetta bara
ævintýri. Þetta er á óvenjulegum
stað og fáir sem fara þarna, það
er út úr allri alfaraleið.“
Ofurmaraþonhlaupið verður
ræst í litlum bæ sem heitir Adak í
sænska hluta Lapplands. Hlaupið
er svo að segja tvískipt, 50 kíló-
metrar eru á möl og í skógi og 50
kílómetrar á malbiki. Hlaupaleið-
in er hæðótt og er hlaupið í kring-
um nokkur vötn sem tengjast
saman.
Adak er svo lítill bær að þar er
hvorki hótel né veitingastaður.
Fjórmenningarnir fengu auða
íbúð til umráða og munu liggja
þar á dýnum þær nætur sem þau
verða á svæðinu. Aðrir þátttak-
endur munu gista í skólastofum
og á tjaldsvæði.
Elín á von á því að hlaupið geti
tekið frá átta tímum. Sjálf á hún
von á að vera 11-12 klukkustundir
á hlaupum og telur að það verði
helst mýflugur sem skapi óvissu.
„Það má búast við að það verði
mikið mý á svæðinu og ég veit
ekki hvernig það kemur út,“ segir
hún.
Hlaupararnir hafa undirbúið
sig í hálft ár og hlaupið að meðal-
tali um 95 kílómetra á viku. Frá
áramótum hefur hópurinn hlaup-
ið sjö hlaup sem eru lengri en 35
kílómetrar. ghs@frettabladid.is
Taka þátt í nætur-
hlaupi í Lapplandi
OFURMARAÞON Í LAPPLANDI Ofurmaraþonhlaupararnir Ellert Sigurðsson, Pétur Franzson, Gunnar Richter og Elín Ruth Reed. Hlaupið verð-
ur ræst klukkan tíu á föstudagskvöldið og hlaupið alla nóttina. „Þetta er bara ævintýri,“ segir Elín. FRÉTTABLAÐIÐ/PÁLL BERGMANN
„Ég get ekki sagt að vand-
ræði Dorrit við að komast
frá Ísrael komi mér á óvart
í sjálfu sér. Það virðast vera
einhverjar reglur í gildi í
Ísrael um að maður verði
að framvísa sínu ísraelska
vegabréfi í Ísrael ef maður
er með slíkt vegabréf á
annað borð. Ég hefði ekki
boðið í það á sínum tíma ef
eitthvað hefði komið upp
á hjá okkur hjónum í sam-
bandi við vegabréf þegar við
vorum að ferðast frá Ísrael. Við hefð-
um sjálfsagt þurft að gefa heilmiklar
skýringar þannig að það kemur ekki
á óvart að heyra sögur af fólki sem
lendir í erfiðleikum að komast út
úr Ísrael,“ segir Stefán Haraldsson,
formaður Farfugla.
Stefán var á ferðalagi á vegum Far-
fugla í Ísrael í janúar 2000. Hafði verið
þar á fundi og framlengdu þau hjónin
dvöl sína. Þau ætluðu að fljúga frá Tel
Aviv og mættu á flugvöllinn snemma
morguns en Stefán var þá fárveikur.
Þegar þau voru búin að innrita sig og
fara í gegnum ítarlega vopnaleit voru
þau tekin í yfirheyrslur hvort
á sínum borðsendanum. „Við
vorum spurð um það hvað
við hefðum verið að gera
í Ísrael, hvert við hefðum
ferðast í landinu, við vorum
mikið spurð út í fundinn, á
hverra vegum hann væri,
hvaða fólk hefði staðið að
honum, við hverja við hefð-
um talað og um hvað, hverja
við hefðum hitt og hver hefði
skipulagt það. Þetta var ekki
nein ferðamannakönnun.
Þetta voru vopnaðir landamæraverðir
sem yfirheyrðu okkur um okkar ferðir
og við vissum reyndar fyrirfram að slíkt
væri gert. Það er umtalað og það vita
allir sem fara til Ísrael. Það er auðvelt
að komast inn í landið en erfitt að
komast út úr landinu. En manni fannst
þetta vera óþægileg og nærgöngul
yfirheyrsla,“ segir hann.
Hjónin voru langa hríð í yfirheyrslu
hvort í sínu lagi. „Ég var svo veikur
að ég hafði ekkert tímaskyn en fyrir
rest frekjaðist ég svolítið, sagðist vera
fárveikur og myndi gubba og þá var
mér sleppt,“ segir hann.
SJÓNARHÓLL
FERÐALÖG TIL OG FRÁ ÍSRAEL
Nærgöngul yfirheyrsla
„Hún gekk bara mjög vel og þetta
var bara æðislegt,“ segir Bjarki
Birgisson aðspurður um hvernig
hjólreiðaferðin hafi gengið en hann
og Gyða Rós Bragadóttir komu í
bæinn á föstudag úr hjólreiðaferð
sinni um landið. Ferðin var farin til
að vekja athygli á börnum með
geðraskanir og er til styrktar
Barna- og unglingageðdeildar
Landspítalans (BUGL).
„Það er bara ánægjulegt að vera
búinn að þessu, gaman að verða
fyrsti einstaklingurinn til að bæði
hjóla og labba hringinn í kringum
Ísland,“ segir Bjarki en í fyrra
gekk hann hringinn ásamt Guð-
brandi Einarssyni undir kjörorð-
inu Haltur leiðir blindan. Þau eru
sammála um að það sem hafi verið
eftirminnilegast úr ferðinni var
hversu veðrið var breytilegt, allt
frá sól og hita til stórhríðar. Erfið-
ast segja þau að hafi verið mót-
vindurinn og brattar brekkur, og
heiðarnar reyndust strembnar.
„Við bjuggumst við að Kambarnir
yrðu erfiðastir en þeir voru eigin-
lega léttastir,“ segir Bjarki.
Gyða segir ferðina hafa verið
bæði skemmtilega og erfiða og
leiðinlegast hafi verið þegar veðrið
lék þau grátt með kulda og vindi.
„Ég bjóst ekki við því að það myndi
fara að snjóa eða koma hálka,
maður hélt að það yrði komið
sumar,“ segir Gyða.
Bjarki segist ætla að taka sér
hvíld í tvö ár frá hringferðum en
útilokar ekki að sú þriðja verði
farin í framtíðinni. Það sem tekur
við núna hjá þeim er frí og að hvíla
sig vel. ■
Fengum alls konar veður
BJARKI OG GYÐA VIÐ HEIMKOMUNA ÁSAMT
INGIBJÖRGU PÁLMADÓTTUR Þau hafa verið
tæpar sex vikur í ferðinni en hringvegurinn
er 2.700 kílómetra langur.
STEFÁN
HARALDSSON
„Ég er að setja mig inn í nýja starfið þessa dagana
og kynna mér starfsemi Alcoa og kynna mér
afstöðu sveitastjórna á svæðinu“ segir Kristján Þ.
Halldórsson rekstrarverkfræðingur sem nýverið
var ráðinn verkefnisstjóri samfélagsmála hjá Alcoa
á Norðurlandi. Kristján býr ásamt fjölskyldu sinni
á Kópaskeri og hefur búið það undanfarin fjórtán
ár, en hann er fæddur og upp alinn upp í nágreni
Kópaskers. Hann þekkir því aðstæður á norðurlandi
mjög vel.
Kristján segist munu verða eitthvað á ferðinni
næstu vikur vegna nýja starfsins en síðar í sumar
verði væntanlega komið upp fastri aðstöðu á
Húsavík.
„Alcoa auglýsti eftir verkefnisstjóra í samfélags-
málum hér á svæðinu vegna fyrirhugaðs álvers á
Bakka við Húsavík og þar sem ég hef mikinn áhuga
á framgangi þess máls, sem er afar mikilvægt
fyrir okkur hér á Norðurlandi, ákvað ég að sækja
um starfið. Það stóð líka þannig á að ég var milli
verkefna og það hentaði því vel núna að taka þetta
verk að mér.“
Kristján hefur gaman af því að takast á við
krefjandi og fjölbreytt verkefni. Hann er nú nýlega
kominn frá Frakklandi, þar sem hann gekk ásamt
vinum sínum og eiginkonu á fjallið Mont Blanc.
„Þetta var ólíkt því sem ég hef prófað áður. Það
var gaman að kynnast þessu svæði og sjá hvernig
menn bera sig að. Við fengum heimamenn með
okkur og það var gaman að læra af snjöllu fólki á
svæðinu.“
Kristján segist hlakka til að takast á við þau fjöl-
mörgu verkefni sem bíða hans sem verkefnisstjóri
samfélagsmála hjá Alcoa. „Það er mikið hagsmuna-
mál fyrir okkur að af þessum framkvæmdum
verði og ég mun vinna ötullega að því.“
HVAÐ ER AÐ FRÉTTA? KRISTJÁN Þ. HALLDÓRSSON, VERKEFNISSTJÓRI SAMFÉLAGSMÁLA HJÁ ALCOA Á NORÐURLANDI
Hef gaman af krefjandi verkefnumÓhreinir menn
„Viðkomandi hljóta að hafa
verið ansi þurfandi fyrir bað.“
ÓLAFUR HELGI KJARTANSSON,
SÝSLUMAÐUR Í ÁRBORG, UM
ÞJÓFNAÐ Á HEITUM POTTI ÚR
SUMARBÚSTAÐ Á SVÆÐINU.
FRÉTTABLAÐIÐ, 28. JÚNÍ.
Frestanir
„Það þarf að hægja á undir-
búningi nýs tónlistarhúss og
fresta hátæknisjúkrahúsi“
GUNNAR BIRGISSON, BÆJARSTJÓRI
Í KÓPAVOGI, UM FRAMKVÆMDIR
RÍKISINS. MORGUNBLAÐIÐ, 28.
JÚNÍ.