Fréttablaðið - 29.06.2006, Page 61

Fréttablaðið - 29.06.2006, Page 61
ÚTFARIR 13.00 Auðbjörg Björnsdóttir, Hrafnistu Hafnarfirði, áður Flókagötu 61, Reykjavík, verður jarðsungin frá Háteigskirkju. 13.00 Leifur Sigurðsson, rennismíða- meistari, Sogavegi 168, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Bústaða- kirkju. 13.00 Hulda Guðmundsdóttir, Álftamýri 6, Reykjavík, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju. 14.00 Elfa Guðrún Reynisdóttir verður jarðsungin frá Húsavíkurkirkju. 14.00 Helgi Sigurðsson, Brautarhóli, Sval- barðsströnd, verður jarðsunginn frá Svalbarðsstrandarkirkju. 15.00 Þorkell Nikulásson, fisksali, Hæðargarði 29, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Laugarneskirkju. 15.00 Engilbert Hannesson, fyrrverandi bóndi, Bakka, Ölfusi, verður jarð- sunginn frá Hveragerðiskirkju. HUGLEIKUR DAGSSON Hugleikur hefur vakið mikla athygli fyrir teiknimyndasögur sínar og þykja þær skörp ádeila á íslenskt samfélag og erlent, en mörgum hefur þótt þær grófar. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA AFMÆLI Ágúst Guðmundsson leikstjóri er 59 ára. Sigurjón Þórðarson þingmaður er 42 ára. Guðmundur Stephensen borðtennismeistari er 24 ára. Þennan dag árið 1974 var Maria Estela Isabel Martinez de Peron svarin í embætti sem leiðtogi Argentínu. Þar með varð frú Peron, sem var fyrrverandi kabarettdansari, fyrsti kvenforseti landsins. Eig- inmaður hennar, forsetinn Juan Peron, hafði afsalað sér völdum vegna alvarlegra veikinda en hinn 78 ára gamli Peron hafði þá ekki sést opinberlega í tvær vikur. Frú Peron, sem almenningur kallaði ávallt Isabelitu, var þriðja eiginkona Juans Peron og varð varaforseti þegar hann sneri aftur til valda í septemb- er 1973 en hann hafði verið í útlegð frá árinu 1955 eftir valdarán í landinu. Þau kynntust á næturklúbbi í Panama meðan Peron var í útlegð. Eftir að Juan Peron sneri úr útlegðinni árið 1973 vann hann stórsigur í kosningum og kom á næstu mánuðum á nokkrum stöðug- leika í Argentínu. Hann dó 1. júlí árið 1974 en Isabel varð forseti til ársins 1976. Þá var henni steypt af stóli af herforingja- stjórn Jorge Rafael Videla. Isabelitu tókst aldrei að vinna hjörtu argentínsku þjóðarinnar. Hún lifði ætíð í skugga Evu Peron sem var önnur eiginkona Juans Peron. Evita var dáð af stórum hluta þjóðarinnar en varð aldrei forseti og dó úr krabbameini árið 1952. ÞETTA GERÐIST: 29. JÚNÍ 1974 Kabarettdansari verður forseti Argentínu MERKISATBURÐIR 1941 Þýski kafbáturinn U 564 sökkvir flutningaskipinu Heklu suður af Grænlandi. Þrettán farast en sjö er bjargað af fleka eftir rúma tíu sólarhringa. 1951 Ríkharður Jónsson skorar fjögur mörk í landsleik gegn Svíum, þar sem Íslendingar unnu með fjórum mörkum gegn þremur. 1980 Vigdís Finnbogadóttir er kjörin forseti Íslands. Hún var fyrsta konan í heiminum sem kosin var þjóðhöfðingi í lýðræðislegum kosningum. 1995 Bandaríska geimskutlan Atlantis kemur til geimstöðvarinnar MIR. 1996 Ólafur Ragnar Grímsson er kjörinn fimmti forseti Íslands. 550 5000 AUGLÝSINGASÍMI Jón Sigurðsson forstjóri Össurar er 50 ára.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.