Fréttablaðið - 12.07.2006, Qupperneq 19

Fréttablaðið - 12.07.2006, Qupperneq 19
 Heimild: Almanak Háskólans Smáauglýsingasími 550 5000 Auglýsingasími Allt 550 5880 Þú getur pantað smáauglýsingar á visir.is FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA ATVINNA BRÚÐKAUP TILBOÐ O.FL. Hrönn Sturlaugsdóttir fer árlega til Taílands en heimsótti það fyrst fyrir átján árum í bakpokaferðalagi ásamt eiginmanni sínum og fimm ára dóttur. „Fólk skildi ekki fyrst hvað við værum að gera til Taílands, enda margir með fordóma gagnvart landinu,“ segir Hrönn sem fór síð- ast til Bangkok í mars á þessu ári með eigin- manninum, Jasoni Steinþórssyni, og þaðan til Myanmar. Hrönn finnst sorglega lítið fjallað um menningu Taílands á Vesturlöndum. „Við förum talsvert í leikhús í Bangkok. Þótt leik- sýningar fari fram á taílensku, kemst inni- haldið til skila þar sem tjáningin er svo leik- ræn. Það auðveldar líka skilning að vera búinn að kynna sér um hvað leikritið fjallar.“ Hrönn segir þau hjónin heimsækja lista- söfn í Bangkok og finnst taílensk list nú undir meiri vestrænum áhrifum en áður. „Ég er líka á kafi í taílenskum og austrænum bókmennt- um, enda mikill lestrahestur og með BA-próf í bókmenntafræði. Bókabúðir eru líf mitt og yndi og ég reyni alltaf að grafa eitthvað upp til að fara með til Íslands, enda finnst mér næstum því jafn gaman að lesa um framandi lönd og að ferðast til þeirra.“ Að sögn Hrannar er taílensk matargerð síðan kafli út af fyrir sig. „Tom Jan súpan er þjóðarréttur Taílendinga. Henni mætti lýsa sem soði uppfullu af rækjum, en froskakjöt kemur líka til greina. Hún getur verið tær eða rjómakennd, eftir því hvort kókosmjólk er bætt út í. Phathai núðlur með fiskisósu, hnet- um og vorlauk eru líka vinsælar.“ Hrönn finnst maturinn, menningin og mannlífið gera Bangkok einstaka og hlakkar hún til að komast þangað aftur á næsta ári. Hún segir ferðalög innanlands verða að duga þangað til. roald@frettabladid.is Froskakjöt er lostæti Hrönn hefur ferðast um Asíu þvera og endilanga og meðal annars farið til Taílands, Víetnams, Indónesíu, Nepals, Kína, Myamar, Laos og Kambódíu.FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA GÓÐAN DAG! Í dag er miðvikudagurinn 12. júlí, 193. dagur ársins 2006. Sólarupprás Hádegi Sólarlag Reykjavík 3.31 13.33 23.33 Akureyri 2.42 13.18 23.50 Bryggjuhátíðin á Stokkseyri verður haldin um helgina. Hátíðin hefst annað kvöld með tónleikum á Draugabarnum og alla helgina verður nóg um að vera fyrir þá sem leggja leið sína í bæinn. Ferðamenn í Eyjafirði ættu að finna margt við sitt hæfi þessa dagana. Í gamla bænum í Laufási er til að mynda nóg um að vera og á fimmtudagskvöld verður kvöldvaka þar fyrir gesti og gangandi. Á sunnudaginn verða líka heyannir í Laufási en þá geta gestir fylgst með göml- um heyskaparháttum. Páfinn í Róm fékk nýjan bíl á dögunum. Það var Volvo XC90 sem varð fyrir valinu. Forstjóri Volvo á Ítalíu afhenti páfanum lykla að nýja bílnum eftir messu á Péturstorginu í síðustu viku. Talsmenn Volvo sögðu það mik- inn heiður að páfinn skyldi velja Volvo sem sinn einkabíl. ALLT HITT [ FERÐIR BÍLAR ] SÉRMERKTA SLÓÐA OG SVÆÐI SÁRVANTAR Þeim sem stunda motocross og enduro hefur fjölgað gríðarlega á síðustu árum enda mikið að gerast í íþróttinni hér á landi. BÍLAR 2 MÍLANÓ ER MARGSLUNGIN Mílanó er áhugaverð heim að sækja, þar er góður maður og skemmtilegt að versla. FERÐIR 4 MS drykkjarvörur í ferðalagið MS mjólkurdrykkirnir eru prótein- og kalkríkir og stútfullir af næringarefnum. Veldu þér ískaldan mjólkurdrykk í handhægum umbúðum í næstu verslun.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.