Fréttablaðið - 12.07.2006, Síða 25
Í leikfangaútrás | Hamleys-leik-
fangakeðjan, sem er í eigu Baugs,
Pálma Haraldssonar í Fons og
stjórnenda, hyggst opna sérleyf-
isverslanir í Mið-Austurlöndum á
næstu árum.
Ráðleggja sölu | Glitnir hefur
gefið út nýtt verðmat á HB
Granda sem er langt undir síðasta
markaðsgengi og metur bankinn
hlutinn í HB Granda á 7,4 krónur.
Starfa saman | Icelandic Group
og Alfesca eru á lokastigi við-
ræðna um kaup þess síðarnefnda
á frystiverskmiðju dótturfélags
Alfesca, Delpierre, í Frakklandi.
Október sennilegur | Líklegt er
að SPH og SPV sameinist seint í
október fallist Fjármálaeftirlitið
og stofnfjáreigendur á samrunaá-
ætlun stjórna.
Auka hlutafé | Á aðalfundi Eddu
útgáfu var tekin ákvörðun um
að auka hlutafé um 555 milljón-
ir króna. Páll Bragi Kristjónsson
hættir sem forstjóri útgáfunnar.
Hugleiða sölu | Króatíska rík-
isstjórnin er sögð tilbúin að ræða
sölu á hlut sínum í samheitalyfja-
fyrirtækinu Pliva svo fremi sem
kaupandinn mæti ákveðnum kröf-
um.
Stýrivextir hækkaðir |
Seðlabanki Íslands brást við
versnandi verðbólguhorfum með
því að hækka stýrivexti um 0,75
prósentustig og standa þeir nú í
þrettán prósentum.
Vantar fé | Björgólfur Thor
Björgólfsson sagði í ræðu í boði til
heiðurs forseta Grikklands helsta
veikleika íslenskra fyrirtækja að
þau skorti erlent fjármagn.
Kínverskt rannsóknarfar
Sendir tónlist
úr geimnum
14
AEM í Lundúnum
Sogar til sín
gullgrafara
6
Sögurnar... tölurnar... fólkið...
Miðvikudagur 12. júlí 2006 – 26. tölublað – 2. árgangur Veffang: visir.is – Sími: 550 5000
F R É T T I R V I K U N N A R
Leigubílar
Höftunum hleypt
af markaðnum
8-9
G
O
TT
F
Ó
LK
M
cC
A
N
N
Peningabréf ISK/EUR/USD/GBP eru fjárfestingarsjó›ir í skilningi laga nr.
30/2003, um ver›bréfasjó›i og fjárfestingarsjó›i. Sjó›irnir eru reknir af
Landsvaka hf., rekstrarfélagi me› starfsleyfi FME. Landsbankinn er
vörslua›ili sjó›anna. Athygli fjárfesta er vakin á flví a› fjárfestingar-
sjó›ir hafa r‡mri fjárfestingarheimildir skv. lögunum heldur en
ver›bréfasjó›ir. Um frekari uppl‡singar um sjó›ina, m.a. hva› var›ar
muninn á ver›bréfasjó›um og fjárfestingarsjó›um og fjárfestingar-
heimildir sjó›anna, vísast til útbo›sl‡singar og útdráttar úr útbo›s-
l‡singu sem nálgast má í afgrei›slum Landsbankans auk uppl‡singa
á heimasí›u bankans, landsbanki.is.
Örugg ávöxtun
í fleirri mynt
sem flér hentar USD
5,1%*
EUR
3,5%*
Markmið
Peningabréfa er
að ná hærri ávöxtun en
millibankamarkaður og
gjaldeyrisreikningar. Enginn
munur er á kaup-
og sölugengi.
Peningabréf
Landsbankans
GBP
5,2%*
* Nafnávöxtun á ársgrundvelli frá 1. apríl - 1. júlí 2006.
Óli Kristján Ármannsson
skrifar
Í rétta átt stefnir í útlánum bankanna, að sögn
Davíðs Oddssonar, formanns banka-
stjórnar Seðlabankans. Í lok maí voru
útlán bankanna rétt rúmum 40 pró-
sentum meiri en ári fyrr, samanborið
við rúm 44 prósent mánuði fyrr og rúm
46 prósent í mars.
Á vaxtaákvörðunardögum Seðla-
bankans bæði í mars og í lok maí árétt-
aði Davíð að ekki sæust þess enn merki
að dregið hefði nægilega úr útlánum í
bankakerfinu. Hámark útlána virðist
hafa verið í september í fyrra, en þá
voru þau rúmum 60 prósentum meiri
en ári fyrr.
„Við teljum að bankarnir séu að
taka sig á í þessum efnum og að vís-
bendingar séu um það þótt tiltölulega
skammur tími sýni það,“ sagði Davíð
á blaðamannafundi sem haldinn var í
tilefni af stýrivaxtaákvörðun og útgáfu
Peningamála fyrir helgi. „Með sama
hætti sjáum við að bankarnir bregð-
ast hraðar við með vaxtabreytingum en áður,
þannig að þeir fylgja vel eftir samtölum sínum við
Seðlabankann og því sem við höfum verið að beina
til þeirra. Enda er það svo að ekki er síst mikilvægt
fyrir þá að vel takist til, ekki síður en fyrir alla
aðra í landinu.“
Sérfræðingar hafa vísað til þess
að minni útlán bankanna skýrist að
nokkru af því að endurfjármögnun
íbúðalána sé að stórum hluta lokið, auk
þess sem í útlánsstefnu fjármálafyrir-
tækja sé nú aukið aðhald, en hámarks-
lán hafa verið lækkuð og skilyrði fyrir
útlánum hert.
Seðlabankinn upplýsti á fimmtudag
um ákvörðun sína um hærri stýrivexti
og hefur því hækkað þá um 215 punkta
á rúmum þremur mánuðum. Á mánu-
dag tók gildi síðasta hækkun upp á 75
punkta þannig að stýrivextir eru nú 13
prósent. Aukavaxtaákvörðunardagur
verður svo 16. ágúst og telja sérfræð-
ingar auknar líkur á að vextir verði
einnig hækkaðir þá. Með hækkun
stýrivaxta bregst bankinn við versn-
andi verðbólguhorfum, en samkvæmt
spá hans gæti verðbólga farið í ellefu
prósent og haldist þannig fram á næsta ár.
Hægir á í út-
lánum banka
Vísbendingar eru um að útlán bankanna séu að dragast
svo saman að Seðlabankanum sé það hugnanlegt. Öllum
til hagsbóta, segir Davíð Oddsson seðlabankastjóri.
Frá kaupum FL Group á 24,2 pró-
senta hlut í Straumi-Burðarási
hefur markaðsvirði Straums fall-
ið um þrjátíu milljarða króna. FL
Group borgaði fyrir þennan fjórð-
ungshlut Kristins Björnssonar og
Magnúsar Kristinssonar á geng-
inu 18,9 en um hádegisbil í gær
kostaði hluturinn 16,1 krónu.
Gengisþróun Straums á þess-
um tímum er eflaust ekki sú sem
kaupendur eða aðrir hluthafar
bjuggust við að yrði. Hlutur FL
Group hefur rýrnað að minnsta
kosti um sjö milljarða.
Samkvæmt upplýsingum
Markaðarins vildi Lífeyrissjóður
verzlunarmanna (LV) fá 19,1 í
fimm prósenta hlut sinn í Straumi
sem var auglýstur opinberlega til
sölu. Ef LV selur bréfin í dag fær
sjóðurinn 1,6 milljörðum minna
fyrir sinn snúð. - eþa
Milljarðatap í
Straumi
B R E Y T I N G
Ú T L Á N A B A N K A
Þróun útlána án gengis- og verðuppfærslu:
2005 Aukning í %
september 60,45
október 53,88
nóvember 56,22
desember 51,00
2006
janúar 49,62
febrúar 47,43
mars 46,37
apríl 44,38
maí 40,38
Heimild: Hagdeild Seðlabanka Ísl.
Tölurnar sýna 12 mánaða hlutfalls-
breytingu á lokatölum útlána hjá
bönkunum.
Gott til síðasta dropa
Heildarhagnaður sautján félaga í
Kauphöll Íslands dregst verulega
saman á milli fyrsta og annars árs-
fjórðungs. Þetta er aðallega rakið
til bankanna.
Á fyrsta ársfjórðungi, sem var
algjört mettímabil, högnuðust félög-
in alls um tæpa 69,8 milljarða króna
en miðað við spár greiningardeilda
Glitnis banka og Landsbankans má
búast við að heildarhagnaður verði
rúmir 26,5 milljarðar á öðrum árs-
fjórðungi. Er þetta meira en 43
milljarða viðsnúningur eða 62 pró-
senta samdráttur.
Heildarhagnaður bankanna
fjögurra, Glitnis, KB banka,
Landsbankans og Straums, lækkar
úr 61 milljörðum króna í rúmlega
átján milljarða milli fjórðunga.
Samanlagður hagnaður fyrirtækj-
anna sautján nemur því um 96
milljörðum króna á fyrri hluta árs.
Þrátt fyrir samdrátt er bönk-
unum spáð mestum hagnaði á
nýliðnum ársfjórðungi. Gert er
ráð fyrir að KB banki hagnist um
tíu milljarða króna, Glitnir um sjö
milljarða og Landsbankinn um 2,9
milljarða. Nú bregður hins vegar
svo við að FL Group og Straumi
er spáð tapi á fjórðungnum, FL
Group 1,4 milljörðum en Straumi
um 1,8 milljörðum. Einnig er gert
ráð fyrir að HB Grandi og TM hafi
tapað yfir einum milljarði króna.
Avion Group, Actavis og
Bakkavör skila góðum hagnaði
gangi spárnar eftir. - eþa / Sjá bls. 12
Samdráttur milli fjórðunga
Hagnaður sautján félaga lækkar um 43 milljarða á milli ársfjórðunga.
Baugur hyggst auka umsvif sín
á Bandaríkjamarkaði eftir því
sem fram kemur í viðtali við Jón
Ásgeir Jóhannesson í Wall Street
Journal í gær. Baugur hefur, sam-
kvæmt heimildum Markaðarins,
þegar keypt hluti í bandaríska
lággjaldaflugfélaginu JetBlue.
Í greininni er tæpt á
Baugsmálinu og haft eftir
Jóni Ásgeiri að það sé fyrst
og fremst af pólitískum toga
og stafi af langvarandi erjum
milli forsvarsmanna Baugs og
Davíðs Oddssonar, seðlabanka-
stjóra og fyrrum forsætisráð-
herra. Blaðið hefur eftir Davíð
Oddssyni að hann beri ekki kala
til Baugsmanna, þótt honum þyki
einstaka kaupsýslumenn, og þar
á meðal Jón Ásgeir, hafa of mikil
völd á Íslandi. - hhs
Auka umsvif
vestanhafs
JÓN ÁSGEIR JÓHANNESSON, FOR-
STJÓRI BAUGS Baugur hyggur á auknar
fjárfestingar í Bandaríkjunum.