Fréttablaðið - 12.07.2006, Síða 32

Fréttablaðið - 12.07.2006, Síða 32
MARKAÐURINN 12. JÚLÍ 2006 MIÐVIKUDAGUR8 Í upphafi þessa árs tók Samkeppniseftirlitið þá ákvörðun að afnema hámarkstaxta leigu- bifreiða en um langa hríð hafa leigubílstjórar tekið gjald fyrir akstur í samræmi við slíka taxta. Taldi það ekki lengur við hæfi að sam- keppnisyfirvöld kæmu að verðlagningu á markaðnum en hingað til hefur hámarksöku- taxtinn verið gefinn út af Bandalagi íslenskra bifreiðastjóra (BÍLS) að undangengnu sam- þykki Samkeppniseftirlitsins. Eftir gildistöku ákvörðunarinnar þann 1. júlí var fyrirtækj- um sem reka leigubifreiðar óheimilt að hafa hvers konar samstarf eða samskipti um öku- taxta og önnur verðlagsmál eða annað sem stríðir gegn viðkomandi lögum. Samkvæmt úrskurðinum var það hvers og eins bílstjóra að ákveða sína taxta þar sem leigubílstjór- ar eru sjálfstæðir rekstraraðilar sem selja stöðvunum þjónustu sína. ÓLÍKAR SKOÐANIR Á ÁGÆTI BREYTINGANNA Íslenski leigubílamarkaðurinn virðist því vera að þokast í áttina að frjálsræði. Það hugnast ekki öllum sem að honum koma jafn vel. Benda þeir sem því eru mótfallnir meðal annars til Svíþjóðar þar sem reynslan af því að afnema höft á leigubílamarkaði er fremur döpur. Það verður þó að líta til þess að þar var markaðurinn að fullu gefinn frjáls, bæði hvað varðar takmörkun á fjölda atvinnuleyfa og hámarkstaxta. Þetta leiddi til glundroða á markaðnum. Til að mynda voru niðurboð svo algeng í fyrstu að fjölmargir lögðu upp laup- ana. Í kjölfarið á því fylgdi okur sem enn er til staðar, ekki síst á grandlausum ferðamönnum sem þekkja ekki rétt sinn. Hinum sem hugn- ast breytingin vel telja að frjáls samkeppni eigi að geta þrifist á þessum markaði sem á öðrum. Hún sé jafnan það fyrirkomulag sem hefur verið valið til þess að bæta kjör neyt- enda og samkvæmt því ættu aðstæður þeirra að batna með breytingunum. UNDANÞÁGUR FRÁ REGLUNUM H r e y f i l l - B æ j a r l e i ð i r var fyrst leigu- bílastöðva til að sækja um að fá að halda Höftum hleypt af leigubílamarkaði Hinn 1. júlí áttu grundvallarbreytingar sér stað á leigubílamarkaði þegar Samkeppniseftirlitið afnam hámarksöku- taxta leigubifreiða. Skiptar skoðanir eru um ágæti breytinganna. Telja sumir að kraftar frjálsrar samkeppni fái sín ekki notið með gamla skipulaginu. Aðrir segja breytingarnar mistök sem komi sér illa fyrir bílstjóra jafnt sem við- skiptavini þeirra. Hólmfríður Helga Sigurðardóttir skoðaði við hverju er að búast af íslenskum leigubílamarkaði. FRELSI EÐA OKUR? Skiptar skoðanir eru um hvort ákvörð- un Samkeppnisstofnunar um að afnema hámarksökutaxta leigubifreiða verði til góðs fyrir neytendur. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM „Markmiðið með því að afnema hámarksökutaxta er að nýta samkeppnislögin neytendum til hagsbóta. Það er arfur frá gamalli tíð að samkeppnisyfirvöld komi að verðlagningu á þessum markaði, sem við teljum ekki eðlilegan lengur,“ segir Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins. Hann segir það liggja í hlutarins eðli að kraftar samkeppninnar fái sín ekki notið þegar hámarks- verð er ákveðið fyrir heila grein í heild með aðkomu hins opinbera. Með því að hverfa frá því skipulagi og heimila leigubílastöðvunum að vera hver með sinn hámarkstaxta sé verið að skapa jarðveg fyrir samkeppni milli leigu- bílastöðva. Páll segir Samkeppnis- eftirlitið hafa tekið mið af neytendasjónarmiðum þegar ákvarðanir um undanþág- ur voru teknar. „Við höfðum heyrt áhyggjuraddir um að frjálsræði á markaðnum gæti orðið til þess að einhverjir bílstjórar kynnu að freistast til að hlunnfara viðskiptavini við tilteknar aðstæður, til dæmis að nóttu til í vondu veðri þegar barist er um bíl- ana. Þessu mætum við með því setja sem eitt af skilyrð- unum fyrir því að vera með hámarkstaxta innan hverrar stöðvar, að fram komi á skilti í hverjum bíl hver hámarks- taxtinn er. Þannig getur neyt- andinn sjálfur haft eftirlit með þeim taxta sem honum er boðinn og gegnsæi er tryggt í verðlagningu.“ Undanþágurnar frá bann- ákvæðunum voru veittar tímabundið til eins árs og hyggst Samkeppniseftirlitið taka málin til endurskoðunar að ári til að sjá hvernig til hefur tekist. Páll segir að vert sé að endurskoða það reglu- verk sem til staðar er til að efla samkeppni. Vel geti hugs- ast að ganga þurfi lengra til að skapa frjósaman jarðveg fyrir samkeppni á leigubíla- markaðnum. Hann nefnir sem dæmi að hugsanlega mætti breyta reglum um fjöldatak- markanir atvinnuleyfa, þar sem takmarkanir á þeim hafi að sjálfsögðu áhrif á sam- keppni. „Ýmissa leiða má leita til að glæða samkeppni á þessu sviði. Hún á að geta þrifist á þessum markaði sem öðrum þar sem samkeppni hefur reynst vera neytendum til hagsbóta.“ Skapar jarðveg fyrir samkeppni PÁLL GUNNAR PÁLSSON, FOR- STJÓRI SAMKEPPNISSTOFNUNAR Samkeppnisstofnun tók neytendasjón- armið með í reikninginn þegar ákvörð- un um undanþágu frá bannákvæðum samkeppnislaga var tekin. Benda þeir sem eru því mótfallnir meðal annars til Svíþjóðar þar sem reynslan af því að afnema höft á leigu- bílamarkaði er fremur döpur. Það verður þó að líta til þess að þar var markaðurinn að fullu gefinn frjáls, bæði hvað varðar takmörkun á fjölda atvinnu- leyfa og hámarks- taxta. Þetta leiddi til glundroða á markaðnum. Til að mynda voru niðurboð svo algeng í fyrstu að fjölmargir lögðu upp laupana.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.