Fréttablaðið - 12.07.2006, Blaðsíða 33

Fréttablaðið - 12.07.2006, Blaðsíða 33
H A U S MARKAÐURINN 9MIÐVIKUDAGUR 12. JÚLÍ 2006 Ú T T E K T Höftum hleypt af leigubílamarkaði Hinn 1. júlí áttu grundvallarbreytingar sér stað á leigubílamarkaði þegar Samkeppniseftirlitið afnam hámarksöku- taxta leigubifreiða. Skiptar skoðanir eru um ágæti breytinganna. Telja sumir að kraftar frjálsrar samkeppni fái sín ekki notið með gamla skipulaginu. Aðrir segja breytingarnar mistök sem komi sér illa fyrir bílstjóra jafnt sem við- skiptavini þeirra. Hólmfríður Helga Sigurðardóttir skoðaði við hverju er að búast af íslenskum leigubílamarkaði. einum taxta fyrir sína félagsmenn. Veitti Samkeppniseftirlitið þeim undanþágu til eins árs, að ákveðnum skilyrðum uppfyllt- um. Þurfa taxtarnir að vera sýnilegir í bíl- unum og hagsmunafélag bílstjóra stofnað, þar sem bílstjórarnir eru viðskiptahópur Hreyfils og verða að hafa sitt að segja um taxtann. Á markaðssvæði Hreyfils, sem nær yfir höfuðborgarsvæðið og út á Reykjanes, starfa fimm leigubílastöðvar og á svæðinu er hámarksfjöldi atvinnu- leyfa 560. Hreyfill hefur um 60 til 65 pró- senta markaðshlutdeild, BSR um 20 til 25 prósenta markaðshlutdeild og hinar sem starfa á svæðinu og deila með sér afgangn- um af markaðnum eru Borgarbílastöðin, Bifreiðastöð Hafnarfjarðar og Aðalstöðin í Keflavík. BSR fylgdi í kjölfarið á Hreyfli og flest eða öll hinna munu hafa sótt um undanþágu undanfarna daga. FYRSTA SKREFIÐ Í ÁTT AÐ FRJÁLSRÆÐI Þótt nú hafi verið opnað fyrir verðsam- keppni milli leigubílastöðva munu neyt- endur sennilega finna lítið fyrir breyting- unum fyrst um sinn. Þegar leigubílamark- aðurinn er skoðaður er líka nauðsynlegt að líta til þess að fjöldatakmarkanir eru á ökuleyfum og að öllum leigubílum er gert skylt að hafa afgreiðslu á leigubílastöð sem hefur fengið starfsleyfi Vegagerðarinnar. Það er því viðbúið að fullkomin samkeppni muni seint ríkja á markaðnum þrátt fyrir að hámarkstaxtinn hafi verið afnuminn. Fyrsta skrefið að frjálsari markaði hefur þó verið stigið. Tíminn mun svo leiða í ljós hvort það verði gæfuspor fyrir íslenska neytendur. Eftir niðurstöðu Sam- keppniseftirlitsins um undanþágu Hreyfils frá nýjum bannákvæðum samkeppnislaga taldi Gísli Tryggvason, talsmaður neytenda, að leggja þyrfti mat á hvort þörf væri á frekari mótvægisaðgerð- um vegna hagsmuna og rétt- inda neytenda eða aðgerða til að auka neytendavernd. Gísli segist sammála því að það samrýmist ekki starf- semi samkeppnisyfirvalda að ákveða verð á mark- aði. Hann hafi þó fyrst og fremst skoðað hvort eitt- hvað þyrfti að gera til að hindra að breytingin yrði bagaleg fyrir neytendur. Gísli leit einkum á tvennt: Í fyrsta lagi á hugsanlega hættu á ónóg- um verðupplýsingum við upphaf leigubifreiðar- ferðar. Þar sem reglur laga og skilyrði eru skýr um að verðskrár þurfi að vera sýnilegar, og Samkeppniseftirlitið setti það sem sérstakt skilyrði fyrir undanþágunni, telur hann ekki ástæðu til að óttast að verðupplýsingar verði óljósar, svo fremi sem eftirlitið verði virkt. Í öðru lagi skoðaði Gísli hugsanlega hættu á upp- boðsstemningu við sérstak- ar aðstæður, þegar leigu- bílastjórarnir geta í skjóli stöðu sinnar sett fram hvaða taxta sem er. Taldi hann meiri ógn stafa af því. „Eftir að hafa ráðfært mig við ýmsa hagsmuna- aðila mæltist ég til þess við samgönguráðherra að hann setti inn í reglugerð skyldu um að kynna betur viðurlögin við brotum á reglum. Bílstjórum er skylt að hafa gjaldmæli og gjaldskrá, þannig að þeim er ekki heimilt að víkja frá henni eftir geðþótta, hvort sem hún er frá bifreiðastöð eða bílnum sjálfum.“ Gísli lagði ekki mat á réttmæti þess að afnema hámarkstaxtann og tók því ekki tillit til þess hvort breytingin hefði í för með sér verðhækkun eða -lækk- un fyrir neytendur þótt vissulega hefði hann sínar skoðanir á því. „Undanþága Samkeppniseftirlitsins var bara veitt til eins árs að sinni. Ég benti á það í tilmælunum að bæði samkeppnisyfirvöld og neytendasamtökin hafa gagnrýnt þetta lokaða kerfi leigubílaleyfa. Ef samkeppnin heldur ekki verðinu niðri, eða kemur í veg fyrir hækkun, get ég ímyndað mér að það komi til þess að kerfið verði end- urskoðuð að ári. Samkeppni er það fyrirkomulag sem almennt hefur verið valið til þess að bæta nýtingu framleiðsluþátta og kjör neytenda og samkvæmt því ættu aðstæður neyt- enda að batna með breyt- ingunum. Ég vona að það gerist og fylgist spenntur með.“ Hættan mest á uppboðsstemningu TALSMAÐUR NEYTENDA, GÍSLI TRYGGVASON Gísli Tryggvason mæltist til þess við samgönguráðherra að hann setti inn í reglugerð skyldu um að kynna betur viðurlögin við brotum á reglum. Þröstur Hjálmarsson, deildarstjóri hjá Hreyfli- Bæjarleiðum, er ekki sannfærður um ágæti ákvörðunar samkeppnis- yfirvalda um að afnema hámarksökutaxta. Segir hann jafnframt þær raddir er lýsa sömu skoð- un háværari en hinar, meðal bílstjóra Hreyfils. „Flestum finnst að verið sé að rugga bátnum og fara aftur til þess skipu- lags sem var áður en nokkrar reglur voru sett- ar um akstur leigubíla. Þeir bílstjórar sem hafa fylgst með umræðunni í gegnum tíðina eru ekki spenntir, enda er hættan sú að við þessar breyting- ar byggist upp vantraust milli bílstjóra og farþega þeirra.“ Þröstur segir það á mis- skilningi byggt að engin samkeppni hafi verið hing- að til á leigubílamarkaði. „Það hafa verið hámarks- taxtar en engir lágmarks- taxtar svo samkeppnin var öll niður á við. Nú er líka búið að gefa hana frjálsa upp á við.“ Hann hefur ekki mikla trú á að breytingin komi til með að skila sér í vasa neytenda. „Svíar prófuðu að gefa allt frjálst, afnámu bæði kvóta- kerfið með fjölda atvinnu- leyfa og hámarkstaxta. Kerfið þar er í ólestri og til dæmis eru svokallaðir svart-taxar mikið vanda- mál. Í Noregi eru reglurn- ar þannig að ef aðeins er ein leigubílastöð í bænum ákvarða samkeppnis- yfirvöld taxtann, annars er taxtinn frjáls. Þegar þessar breytingar gengu í gegn hækkaði verð um tuttugu og fimm til þrjá- tíu prósent um allt land- ið. Frávikið milli þeirra, þar sem verð ákvarðast af Samkeppnisyfirvöldum annars vegar og með frjálsri samkeppni hins vegar, er nú allt að sautján prósent.“ Formaður bifreiða- stjórafélagsins Frama, Ástgeir Þorsteinsson, hefur svipaðar skoðanir og Þröstur og álítur að mistök hafi verið gerð þegar sam- þykkt var að gefa taxtana frjálsa. Telur hann dæmin að utan sanna að við slík- ar aðstæður hafi taxtar almennt hækkað umtals- vert. Það sé því vart með hag neytenda í brjósti sem hámarkstaxtinn hafi verið afnuminn. Hefur Ásgeir sagt að eigi ekki að fara illa verði yfirvöld áfram að ákveða leigubílataxtann. Ósannfærður um ágæti breytinganna „Það hafa verið hámarks- taxtar en engir lágmarks- taxtar svo samkeppnin var öll niður á við. Nú er líka búið að gefa hana frjálsa upp á við.“ „Samkeppni er það fyrir- komulag sem almennt hefur verið verið valið til þess að bæta nýtingu framleiðsluþátta og kjör neytenda og samkvæmt því ættu aðstæður neyt- enda að batna með breyt- ingunum. Eg vona að það gerist og fylgist spenntur með.“ ÞRÖSTUR HJÁLMARSSON, DEILDARSTJÓRI HJÁ HREYFLI Þröstur segir það á misskilningi byggt að engin samkeppni hafi verið á leigu- bílamarkaði hingað til og efast um ágæti þess að afnema hámarkstaxta.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.