Fréttablaðið - 12.07.2006, Síða 40

Fréttablaðið - 12.07.2006, Síða 40
16 555 0,75milljarða samanlagt markaðsvirði SPH og SPV sem sameinast líklega seint í október. milljóna hlutafjáraukning Eddu útgáfu. prósentustiga hækkun stýrivaxta sem nú standa í 13 prósentum. SÍMANÚMER MARKAÐARINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@markadurinn.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@markadurinn.is Veffang: visir.is „Ég hef alltaf veri› keppnisma›ur“ fiess vegna hef ég a›gang a› E*TRADE. Me› flátttöku í E*TRADE í gegnum Landsbankann b‡›st einstaklingum möguleiki á a› n‡ta sér beint og millili›alaust áhugaver› fjárfestingartækifæri. Á E*TRADE getur flú keypt og selt hlutabréf í Danmörku, Noregi, Svífljó›, Finnlandi og Bandaríkjunum. E*TRADE er einfalt í notkun, í bo›i eru ókeypis námskei› og allt vi›mót er á íslensku. Ert flú á ? Kynntu flér máli› á landsbanki.is e›a hringdu síma 410 4000. B A N K A H Ó L F I Ð Stjórn dauðans Boðað hefur verið til hluthafa- fundar í Straumi-Burðarási í næstu viku þar sem ný stjórn verður kjörin. Áhugafélag um bætta stjórnarhætti í fyr- irtækjum hefur sett saman eftirfarandi stjórn: Björgólfur Thor Björgólfsson og Eggert Magnússon, fulltrúar Samsonar og tengdra aðila, Magnús Kristinsson og Þórður Már Jóhannesson, fulltrúar FL Group, og Víglundur Þorsteinsson, full- trúi lífeyrissjóðanna og litlu fjárfestanna. Windows XP úreldist Bandaríski tölvurisinn Microsoft hefur hvatt alla notendur stýri- kerfisins Windows 98 til að skipta því út fyrir nýrra kerfi, svo sem Windows XP. Ástæðan fyrir því er sú að fyrirtækið ætla að hætta að búa til ýmsar viðbætur við stýrikerfið. Talið er að um 70 milljónir manna noti stýrikerfið og má gera ráð fyrir því að tölvur milljóna manna verði viðkvæmar gagn- vart vísurskeytum vegna þessa. Vírusbanar á borð við finnska fyrirtækið F-Secure hafa því ákveðið að búa áfram til vírus- varnir fyrir þetta gamla stýri- kerfi. Upphaflega átti að hætta að gera viðbætur við Windows 98 fyrir þremur árum en íbúar í fátækari löndum heims, sem höfðu ekki efni á nýju kerfi, fengu stjórnendur fyrirtækis- ins ofan af fyrirætlunum sínum. Ekki ligggur fyrir hvort þeir eru komnir með nýtt stýrikerfi frá Microsoft. Skammvinn HM-gleði Eins og flestir vita lauk HM í knattspyrnu á sunnudag og vöknuðu Þjóðverjar í gráum raunveruleikanum á mánu- dag eftir stanslausa sparkgleði í mánuð. Þýska dagblaðið Die Welt bætti enn á grámann er það hafði eftir Axel Weber, seðla- bankastjóri Þýskalands, í gær, að áhrif keppninnar á efnahagslíf landsins yrðu skammvinn en það er þvert á vonir manna í stærsta aðildarlandi myntbandalags ESB. „Frábær heimsmeistarakeppni getur ekki blásið lífi í heilt hag- kerfi,“ sagði seðlabankastjórinn og benti á að spáð væri hægari hagvexti í Þýskalandi á næsta ári en á þessu ári.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.