Fréttablaðið - 12.07.2006, Side 48

Fréttablaðið - 12.07.2006, Side 48
 12. júlí 2006 MIÐVIKUDAGUR20 timamot@frettabladid.is RICHARD SIMMONS (1948) FÆDDIST ÞENNAN DAG „Ég verð þreyttur á neikvæðninni í landinu okkar. Ég verð þreyttur á fólki sem vill bara vita það slæma. Ég verð þreyttur á fólki sem trúir ekki á sjálft sig. Þess vegna er ég hér.“ Richard Simmons hefur leikið í mörgum sjónvarpsþáttum og gefið út fjölda líkamsrækt- armyndbanda og hjálpað með því fjölmörgum Bandaríkjamönnum að grennast. Geraldine Ferraro varð fyrsta konan til þess að verða útnefnd sem varaforsetaefni af stórum stjórnmála- flokki í Bandaríkjunum. Ferraro var útnefnd sem meðframbjóðandi demókratans Walter Mondale fyrir forsetakosningarnar árið 1984. Ferraro fæddist árið 1935 og var dóttir ítalskra innflytjenda en faðir hennar dó þegar hún var átta ára. Hún útskrifaðist með B.A. gráðu í ensku árið 1956 og varð kennari. Með kennslustarfinu lærði hún lögfræði á kvöldin og útskrifaðist svo með lögfræðigráðu árið 1960. Árið 1974 tók Ferraro við stöðu aðstoðar- umdæmissaksóknara og fjórum árum síðar var hún kosin til fulltrúadeildar Bandaríkjaþings. Árið 1980 var Ferraro kosin sem ritari flokksþings- fundar demókrata og fyrir kosningarnar 1984 var hún í nefnd demókrata sem fjallaði um stefnuskrá flokksins. Sama ár gerðist hún svo meðframbjóðandi forsetaframbjóð- andans Walter Mondale. Demókratar töpuðu kosningunum þetta árið fyrir Ronald Reagan sem varð forseti og George Bush varð varaforseti. Árið 2002 bauð Mondale sig fram til öldungadeildar en tapaði naumlega fyrir Norm Coleman, fram- bjóðanda demókrata. Ferraro reyndi tvisvar að ná tilnefningu demókrata fyrir öldungadeildina árin 1992 og 1998 en tapaði í bæði skiptin. Árið 1993 tilnefndi Bill Clinton hana til þess að vera í forsvari fyrir Bandaríkin hjá Sameinuðu þjóðunum en hún vinnur núna sem forstjóri ráðgjafafyrirtækis. ÞETTA GERÐIST 12. JÚLÍ 1984 Geraldine Ferraro varaforsetaefni MERKISATBURÐIR 1543 Hinrik VIII Englandskonung- ur giftist sjöttu og síðustu eiginkonu sinni, Catherine Parr. 1920 Litháen undirritar friðar- samning við Rússa eftir að hafa rekið sovéskar hersveitir á brott 1933 Bandaríska þingið samþykk- ir fyrstu lögin um lágmarks- laun í Bandaríkjunum, 33 sent á klukkutímann. 1953 Grafarkirkja á Höfðaströnd í Skagafirði er vígð eftir að hún var endurbyggð en hún var reist árið 1680 og er ein minnsta kirkja landsins. 1967 Fjögurra daga kynþátta- óeirðir hefjast í Newark, New Jersey, en þær enduðu með dauða 27 manns. 13.00 Friðrik Halldór Valgeirs- son, Suðurgötu 72, Hafnar- firði, verður jarðsunginn frá Hafnarfjarðarkirkju. 13.30 Sigrún Kristinsdóttir, Vesturgili 5, Akureyri, verður jarðsungin frá Akureyrar- kirkju. Fjórði flokkur FH stráka vann Partille- mótið í Svíþjóð á sunnudaginn þegar strákarnir sigruðu lið HK Eskil frá Svíþjóð í úrslitaleik með átján mörk- um gegn sextán. Sverrir Reynisson, einn af fararstjórum hópsins, segir að FH-liðið hafi ætlað sér sigur á mótinu og ekkert annað hafi komið til greina þegar blaðamaður náði tali af honum á Kastrup-flugvelli í gær. „Við vorum hérna á Partille í fyrra og þegar við vorum slegnir út í sextán liða úrslitum fórum við að horfa á úrslitaleikinn og þá settum við okkur „mission“ að koma hingað aftur að ári og taka þetta, af því að við töldum okkur vera með það gott lið að við ættum alveg að geta unnið þetta.“ „Þetta eru strákar sem eru miklir keppnismenn og hafa sigrað öll mót sem þeir hafa tekið þátt í, þar á meðal Norðurlandamótið um jólin, þá urðu þeir Norðurlandameistarar félags- liða sextán ára og yngri. Þetta eru Íslandsmeistarar og deildarmeistar- ar síðastliðin fimm ár og hafa eigin- lega unnið allt sem þeir geta unnið. Strákarnir spiluðu þrettán leiki á mótinu og unnu þá alla stórt að sögn Sverris. Það var sætur sigur þegar FH-ingarnir unnu liðið sem sló þá út úr mótinu í fyrra enda mikill hefndar- hugur í strákunum. Mótið er bæði fyrir stráka og stelpur og voru fjórði flokkur FH stelpna og þriðji flokkur strákanna einnig úti og stóðu sig vel. Fjöldi íslenskra liða tók þátt og er þetta í annað skipti sem íslenskt lið vinnur mótið en Valur vann það fyrir nokkrum árum síðan. Partille-mótið er stærsta handboltamót í heimi fyrir unglinga þar sem 870 lið frá 62 löndum keppa en mótið hefur verið haldið frá árinu 1963. Strákarnir í fjórða flokknum eru sextán ára gamlir og segir Sverrir að þeir hafi spilað saman síðastliðin sex ár. „Þetta er mikill og stór hópur og strákarnir eru vel stemmdir og vita alveg út á hvað þetta gengur, eru mjög samstilltir og standa alltaf hver á bak við annan í gegnum súrt og sætt.“ Þjálfari strákanna allan þennan tíma hefur verið Einar Andri Einarsson og segir Sverrir hann hafa kennt þeim meira og minna allt sem þeir kunna í dag. Þetta var síðasta mót Einars sem þjálfari strákanna þar sem hann mun taka við þjálfun meistaraflokks FH næsta haust. Sverrir segir að foreldrastarfið sé mjög öflugt og að þetta hafi mikið forvarnargildi fyrir krakkana. Hann vill koma á framfæri þakklæti til þeirra sem hafa stutt liðið, fjöldi fyrirtækja og einstaklinga hafi stutt þá við fjáraflanir og fleira og Einar Andri, Daníel Scheving og Þorgeir Jónsson þjálfarar þeirra eigi mikinn heiður skilið. gudrun@frettabladid.is FH STRÁKAR: UNNU PARTILLE-MÓTIÐ Í HANDBOLTA Í SVÍÞJÓÐ Ekkert annað en sigur kom til greina á Partille-mótinu FH-INGAR FAGNA SIGRI Strákarnir í FH gerðu góða ferð út til Svíþjóðar þar sem þeir gerðu sér lítið fyrir og unnu mótið en þeir hafa spilað saman í fjölda ára og unnið allt sem hægt er að vinna hérna heima. FRÉTTABLAÐIÐ/GUÐJÓN STEINAR 14.00 Brynleifur Jónsson, klæðskeri, Kirkjuvegi 11, Keflavík, verður jarðsunginn frá Keflavíkurkirkju. 15.00 Kristín Lára Kristinsdóttir, Birkimel 10b, Reykjavík, verður jarðsungin frá Dóm- kirkjunni. Elsku eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, Guðrún Þórhallsdóttir Ludwig, sem andaðist þriðjudaginn 4. júlí, verður jarðsungin frá Bústaðarkirkju föstudaginn 14. júlí kl. 13. Blóm og kransar eru vinsamlega afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar er bent á að leyfa Krabbameinsfélaginu og hjúkrunarþjónustunni Karitas að njóta þess. Thomas M. Ludwig Margrét Ludwig Björgvin Jósefsson Brandur Thor Ludwig Anna M. Rögnvaldsdóttir Clara Regína Ludwig og barnabörn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma, Kristín Magnúsdóttir Rjúpufelli 42, Reykjavík, áður Vestmanna- braut 10, Vestmannaeyjum, andaðist á líknardeild Landspítalans í Kópavogi 9. júlí. Einar Ottó Högnason Magnús Hörður Högnason Hrafnhildur Sigurðardóttir Guðmundur Ingi Einarsson Kristín Högna Magnúsdóttir Jarðarförin verður auglýst síðar. Í dag er Erla Kristín 18 ára, Erla L. Theodórsdóttir 60 ára, Þórunn Erla 1 árs, og Alexandra 1 árs. Þær verða allar að heiman í dag. Hjartans þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur hlýhug og vináttu við andlát móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, Huldu Guðmundsdóttur Álftamýri 6, Reykjavík. Sérstakar þakkir til starfsfólks Karitas og líknardeildar Landakotsspítala, fyrir yndislega umhyggju. Svava Haraldsdóttir Guðmundur Jens Þorvarðarson Guðmundur Haraldsson Rakel Kristjánsdóttir Erna Haraldsdóttir Karl Þórðarson Bjarni Óli Haraldsson Árný Davíðsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. 80 ára afmæli Á morgun, 13. júlí, er 80 ára Sveinn B. Ólafsson rafvirkjameistari, Rauðagerði 64 Rvk. Hann og kona hans, Anna Þorgilsdóttir, taka á móti gestum í Víkingasal Hótels Loftleiða kl. 20.00 á morgun, afmælisdaginn. Gjafir vinsamlega afþakkaðar. ÚTFARIR

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.