Fréttablaðið - 10.08.2006, Síða 16
16 10. ágúst 2006 FIMMTUDAGUR
Hámarksafköst - Hámarksframmistaða
HP Compaq nx9420 fartölvan með 17” breiðtjaldsskjá og
Intel Centrino Duo Mobile tækni tryggir þér framúrskarandi
vinnslu og grafík - hvar og hvernær sem er. HP Compaq
nx9420 fartölvan er með þriggja ára HP ábyrgð.
Auk þess nýtur þú bestu mögulegu þjónustu
með HP Total Care.
Skoðaðu www.fartolvur.is, hringdu í síma 570 1000,
eða skoðaðu úrvalið hjá næsta HP söluaðila.
HP mælir með Windows XP Professional
Sími 570 1000 • www.ok.iswww.fartolvur.is
OK Personuleg FINAL.indd 1 09/08/06 14:24:39
NEW YORK, AP Joe Lieberman, öld-
ungadeildarþingmaður demókrata í
þrjú kjörtímabil, náði ekki kosn-
ingu í forkjöri Demókrataflokksins
í Bandaríkjunum í gær. Hann verð-
ur því ekki þingframbjóðandi
flokksins í Connecticut-ríki fyrir
nóvemberkosningarnar, heldur þarf
að bjóða fram í eigin nafni. Fyrir
einungis þremur árum var Lieber-
man varaforsetaefni flokksins.
Stjórnmálaskýrendur útskýra
þetta vinsældahrap með því að
Lieberman hafi stutt innrás Banda-
ríkjamanna í Írak, en andstæðing-
ur hans, Ned Lamont, hamraði mjög
á andstöðu sinni við stríðsrekstur í
kosningabaráttunni. Einnig var
kunningsskapur Liebermans við
núverandi Bandaríkjaforseta not-
aður á móti honum og frægt mynd-
band, þekkt sem „Koss dauðans“,
sýnt margsinnis í baráttunni. Í
myndbandinu smellir George W.
Bush kossi á kinn Liebermans.
Ned Lamont er auðkýfingur
með sáralitla reynslu af stjórn-
málum. Hann rekur sjónvarpsstöð
og fékk sér til fylgis yngri og
frjálslyndari demókrata úr svo-
kallaðri „netrótarhreyfingu“.
Hann mun þakka velgengnina bar-
áttu rekinni á netinu, en þar fór
fram mikil nýliðun og kusu nær
helmingi fleiri í forkosningunum
nú en venjan hefur verið. - kóþ
Þingmaður Demókrataflokksins fer í sjálfstætt framboð:
Geldur fyrir stríðsstuðning
JOE LIEBERMAN Eftir þrjú farsæl kjörtímabil
fyrir Demókrataflokkinn þarf hann nú að
bjóða fram einn síns liðs. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Á SÓLBEKK Í KÍNA Jafnvel í Kína fhafa
menn þörf fyrir að leggjast á sólbekk og
baða sig í útfjólubláu ljósi. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
LÖGREGLA Tveir ökumenn stungu
lögregluna í Keflavík af í fyrri-
nótt. Þeir mældust báðir á of mikl-
um hraða en virtu hvorugur stöðv-
unarmerki lögreglu.
Fyrri ökumaðurinn ók dökk-
grárri BMW skutbifreið og mæld-
ist á 128 kílómetra hraða. Sá síðari
ók rauðu vélhjóli og mældist á 148
kílómetra hraða.
Báðir ökumennirnir hurfu sjón-
um lögreglumanna þegar þeir óku
inn í Hafnarfjörð. Á veginum þar
sem þeir óku inn í bæinn er 70 kíló-
metra hámarkshraði og að sögn
lögreglu höfðu ökumennirnir þá
frekar aukið hraðann en hitt frá
því að ökuhraðinn var mældur. - sh
Tveir ökumenn stungu af:
Á tvöföldum
hámarkshraða
HEILBRIGÐISMÁL Fleiri geðfötluðum
verður gert kleift að búa einir
innan tíðar, segir Þór Þórarinsson,
skrifstofustjóri í félagsmálaráðu-
neytinu. Breytingarnar koma í
kjölfar úttektar sem gerð var á
högum einstaklinga sem búa á
geðdeild Landspítala - háskóla-
sjúkrahúss (LSH). Í henni kom í
ljós að 54 einstaklingar sem þar
búa gætu búið annars staðar.
Þá verður þjónusta aukin við
þá sem nota búsetuúrræði geðfatl-
aðra.
Í úttekt á búsetuúrræðum geð-
fatlaðra sem gerð var í fyrra kom
í ljós að 54 einstaklingar sem búa
á geðdeild LSH gætu notfært sér
önnur búsetuúrræði. Þá eru nokkr-
ir tugir til viðbótar í göngudeild-
arþjónustu á LSH en gætu verið í
búsetu fyrir geðfatlaða. Samtals
eru þetta 84 manns sem gætu nýtt
sér búsetuúrræði fyrir geðfatlaða,
að sögn Þórs Þórarinssonar, skrif-
stofustjóra í félagsmálaráðuneyt-
inu.
Nú er nefnd að störfum við að
kanna uppbyggingu í þágu geð-
fatlaðra en hún mun skila af sér
niðurstöðum í haust og verða
fyrstu búsetuúrræðin tilbúin á
þessu ári.
Þór segir að andvirði Landsím-
ans, um einn milljarður króna, sem
ákveðið var að nota í þennan mála-
flokk, verði notað í stofnkostnað
búsetuúrræðanna. „Þá er talið að
rekstarkostnaður verði 800 millj-
ónir króna fyrir lok tímabilsins
árið 2010 en stjórnvöld hafa ákveð-
ið að tryggja rekstur búsetunnar
næstu fimm árin.“ - hs
Þjónusta við geðfatlaða aukin í kjölfar úttektar sem var gerð á högum þeirra:
Fleiri geðfatlaðir fá að búa einir
HÁTÚN 10 Búsetuúrræði geðfatlaðra munu færast í minni einingar.
LÖGREGLUMÁL Þjófur spennti upp
glugga og braust inn í hótelher-
bergi á Hótel KEA á Akureyri á
þriðjudagskvöld. Gestirnir, sem
eru erlend hjón á ferðalagi, höfðu
brugðið sér út úr herberginu
þegar þjófurinn fór inn og hafði á
brott með sér myndbandsupptöku-
vél, ljósmyndavél og veski.
Í veskinu voru meðal annars öll
greiðslukort og skilríki hjónanna,
sem kemur sér mjög illa fyrir þau.
Þjófurinn er ófundinn og lög-
reglan á Akureyri segist ekki hafa
neinn grunaðan um verknaðinn.
- sh
Hótelræningi á Akureyri:
Myndavélum
og veski stolið
AFÞREYING Á miðvikudagskvöldum
í ágúst verður boðið upp á sögu-
siglingar frá Torfunefsbryggju á
Akureyri. Siglt verður með Húna
II í samstarfi við Minjasafnið á
Akureyri en alls sigldu um 300
farþegar með bátnum um
verslunarmannahelgina.
Hörður Geirsson, safnvörður
Minjasafnsins á Akureyri, verður
leiðsögumaður um borð og þar
verður rifjuð upp saga bæjar-
félagsins.
Veiðistangir eru um borð og
hægt að renna fyrir fisk. Siglingin
er ókeypis. - hs
Sögusigling á Akureyri:
Stangveiði á
Húna II