Tíminn - 29.01.1978, Blaðsíða 7

Tíminn - 29.01.1978, Blaðsíða 7
Sunnudagur 29. janúar 1978. ÖRKUMLA MENN SJÁLFBJARGA hafði örkumlað likama hans nema höfuð og handleggi, hafði ekki skerthugsun hans. Hún var skarpari en flestra annarra — og svo virðist —sem fötlun hans hafi hvatt hann til dáða. Hann stundaði vefjafræði- rannsóknir, kannaði örsmæstu vefi og liffæri, efnafræði tauga- fruma. En þaö var einmitt starfsemi þeirra sem hafði fariö úrskeiðis I hans eigin líkama. Rannsóknir hans leiddu til mik- ilvægrar uppgötvunar. Bratt- gard prófessor komst að þeirri niðurstöðu, að þegar nýfæddar kaninur eru hafðar i myrkri i langan tima, er ósennilegt að frumur s jón tauganna nái fullum þroska. ttarlegrannsókn hans á frumuvefjum úr dýrum og mönnum leiddi i ljós, að þetta væri liklega grundvallarlögmál, sem gilti um taugafrumur fatl- aðra barna. „Þetta sýndi að ef taugafrum- ur heilans fá ekki örvun þegar í byrjun, ná viðkomandi einstakl- ingaraldrei fullum þroska”, út- skýrði hann. „Hér höfum við efnafræðilega skýringu á sál- fræðilegu vandamáli.” Fýrir þessar rannsóknir hlaut hann doktorsnafnbót i læknis- fræði 1952. Þegar honum sama ár var boðin prófessorsstaða í vefjafræði við háskólann, varö hann að byr ja á þvi að sannfæra rikisstarfsmenn um að hann yrði eilifur augnakarl á launa- skrá háskóians. „Ég er fatlað- ur, ekki veikur!” sagði hann ó- myrkur i máli. Þeir gáfust upp. Heimilislifið hafði fram til þessahvorki verið auðvelt fyrir Ingrid.sem starfaði sem fjöl- skylduráðgjafi né hann sjálfan. Það þurfti að flytja hann hvert sem hann fór og hann gat ekki klætt sig sjálfur. Þau áttu fjögurra ára dóttur og eins árs son, og nóg var þvi að gera á heimilinu. „Ingrid annaðist innkaup, hugsaði um garðinn og þess háttar, svo ég varð að annast verkin, sem eiginkonan sér venjulega um svo sem uppþvott og viðgerðir á fötum fjölskyld- unnar.” Enn i dag vinna þau heimilisstörfin I sameiningu, og hann hrósar stuðningi fjöl- skyldu og vina sem hjálpuðu honum á erfiðum timum. Þrir af fjórum bræðrum hans eru prestar. Hegle, er biskup i borg- inni Skara. Uppörvun er mikil- væg fötluðum. „Það er mikil- vægt að allir sem umgangast hinn fatlaða, hafi jákvæöa af- stöðu til hans, þar með taldir vinnufélagarnir, og hjálpi hon- um þannig til að sigrast á vandamálum sinum” sagði hann. Eftir að hann var oröinn próf- essor beindist hugur hans i vax- andi mæli að vandamálum fatl- aðra. Hann fékk félagsmála- deild sænsku kirkjunnar, Bracke Diaconi Centre I Gauta- borg, til að setja upp æfinga- og endurhæfingarheimili fyrir fötl- uð börn undir skólaaldri. 1958 var stofnuð ný tegund æfinga- stöðvar sem hann veitti forystu. Þar hlutu ekki aöeins alvarlega fötluö börn umönnun heldur fengu fjölskyldur þeirra æfingu i að fást við vandamálin sem skapast hjá hinum ýmsu fjöl- skyldumeðlimum. Foreldrar gátufengið aö dveljast i endur- hæfingarstöðinnii allt að mánuð ásamt sjúklingnum og siðan fengið „endurhæfingarnám- skeið” slðar. Byrjað var snemma aö örva heilastarfsemi barnanna á heimilunum ieðlilegu umhverfi. Orsakir fötlunar þeirra voru margvislegir heila- og mænu- skaðar, afleiöingar umferðar- slj'sa og annarra slysa. Bratt- gardhafði haftá réttu að standa um örvunina: börnin brugðust vel viö þessari nýju meðferð. Þau nutu auk þess hlýju og á- huga. Þessi starfsemi i Vest- ur-Sviþjóð varð þekkt undir nafninu Bracke östergard. Hugmyndin þróaðist. Brátt var Sven-Olof Brattgárd farinn að berjast fyrir þvi að aðferð sinni yrði beitt við fatlaða allt fram að tvitugsaldri. Sjúkdóms- greining sumra hinna fötluðu var svo slæm að þeim voru gefnar litlar vonir um lengri lif- daga en til tvitugs. En þeir fengju þó alla vega allsherjar- meðferð og nokkra þjálfun. „Kona min og ég höfðum kynnzt þvi hvernig foreldrum liður sem horfa upp á börn sin veslast upp og eiga ekkert framundan nema dauðann” sagði prófessor Brattgárd. Nú rúmast 90 fötluð börn og ungl- ingar í Bracke östergaard stöð- inni i Gautaborg, sem kostuð er af sveitarstjórnunum og þar geta sjúklingarnir og fjölskyld- ur þeirra fengið umönnun og aö- stoð hjá sérmenntuðu starfsliði. „Til þess að geta aðlagazt þjóðfélaginu þarf sá fatlaði að eiga sitt eigið heimili — og einhvern sem elskar hann” Þótt Brattgard prófessor sé ekki hrifinn af stofnunum og vilji helzt að fatlaðir fái þá þjálfun að þeir geti lifað úti i þjóðfélaginu, viöurkennir hann að þær eru eina lausnin fyrir marga. Samt eru 1500 alvarlega fatlaðir i tengslum við miðstöð- ina en búa utan hennar. Þegar Sven-Olof Brattgárd talar, hlusta allir fötlunarsérfræðing- ar. Með vingjarnleik sinum, á- kafa og visindalegri þekkingu virðist hann vera að sigrast á þeim stimpli á fötluðum, aðþeir séu öryrkjar á framfæri þess opinbera. Eftir 1960 fór hann að einbeita sér að þvi að fatlaöir gætubúið innan um aöra þjóðfé- lagsþegna — þrátt fyrir fótlun sina. „Sú skoðun er alltof útbreidd að lif fatlaðra i þjóðfélaginu, sé komið undir byggingarfræðileg- um atriðum svo sem gangstétt- arbrúnum, þröskuldum, breidd dyra, ellegar þjálfun og fjár- hagsaðstoð,” sagði hann. Hér var komið að sálfræðilegri hlið málsins, þar með sjálfsvirðingu hins fatlaða og þörf hans fýrir að ávinna sér sjálfstraust vegna hæfileika sinna. „Til að aðlagðast þjóðfélaginu þarf sá fatlaði að eiga eigið heimili — ekkisjúkrahúsrúm — vinnu og einhvern sem annast hann — og elskar.” Eins og allir aðrir, þurfa fatlaðir að geta slakaö á i vina- hópi, farið i leyfi og skipt um vinnu. Vegna þessarar þarfar varð til svonefnd Fokus áætlun og þjónustuibúðir fyrir fatlaða innan um heimili venjulegs fólks. Styrktarfélagar gáfu 12 milljónir sæ. kr. til kaupa á sjónvarpstækjum árið 1963. Fimmtán til tuttugu og fimm sérbyggðar ibúðir voru leigðar fötluðum i venjulegum ibúðar- blokkum. 1 hverju sambýlishúsi var hjúkrunarkona og miöstöö fyrir heimilisaðstoð sem starf- rækt er allan sólarhringinn og er þeim fötluöu veitt hjáip við heimilisstörf, eldamennsku, ferðir á snyrtiherbergi eða ein- faldlega við að snúa sér við i rúminu. Sumirlæknarlétuiljtís vantrú á þessu fyrirtæki — aðr- ir töldu hana óðs_ manns æði. Sven-Olof Brattgárd vissi að hugmyndin væri framkvæman- leg. Hann hafði sannaö það sjálfur. 1 hverju sambýlishúsi var tömstundaherbergi og þvotta- hús, sem þeir ibúar, sem ekki voru fatlaðir, voru einnig hvattir til að nota. Þegar fatlað- ur maður vildi fara i kvik- myndahús, á diskótek eða i kirkju, ók sjálfboðaliði honum á staðinn. 1 fyrsta sinn greiddi al- varlegafatlað fólk húsaleigu (ef það gat) umgekkst heilbrigða og skapaði sér tilveru i þjóðfé- laginu. Arangur af Fokus áætluninni hefur farið fram úr björtustu vonum. Brattgárd prófessor kom meö sönnun þess: Niutiu % hinna fötluðu fengu örorkustyrk þegar þeir fluttu i þjónustuibúð- ina, en 80% unnu annað hvort fulla vinnu, hluta úr vinnu eða voru i skóla jafnvel háskóla, að tveim árum liðnum. „Margir hafa gengiö i hjónaband eða verið i sambúð og eignazt börn”, sagði hann. Heilbrigðisyfirvöld eru hlynnt áætluninni af fjárhagsástæðum en hamingja og sjálfsvirðing koma ekki fram á skýrslum. Ár- ið 1972 var kostnaður við þjón- ustuibúðirnar 22.600 sæ. kr. á mann að meðaltali, eða meira en helmingi lægri en daggjöld langlegusjúklings á sjúkrahúsi, þrir f jórðu af daggjaldi á dýr- ustu stofnunum fyrir fatlaöa. Fokus félagið á nú 258 þjón- ustuibúðir i 13 borgum i Svi- þjóð. Ibúar i þeim bera sjálfir á- byrgð i lifi sinu og taka sömu á- hættu daglega og aörir þjóöfé- lagsþegnar. Hollendingar og Þjóðverjar hafa lika komið upp svipuðu kerfi hjá sér og aðr- ar þjóðir, svo sem Bretar Bandarikjamenn og Kanada- menn, hafa sýnt hugmyndinni áhuga. Brattgárd er nú prófessor við deild fötlunarrannsókna i Háskólanum i Gautaborg. „Fötlunarrannsóknir eru hóp- vinna,þar sem taka verður tillit til margvislegra þátta félags- legra, tæknilegra og læknis- fræðilegra, og sá fatlaði verður að vera virkur gagnvart þeim öllum,” sagðihann. Honum eru sýnd mörg ný hjálpartæki svo sem farartækLfyrir fatlaða eða eldhúsútbúnaður. Fámennt en snjallt starfslið hans, margt af þvi fólki innan við þritugt (þ.á m. kvæntur sonur hans, Inge- mar 26 ára rafeindaverk- fræðingur) ásamt 100 ráðgjöf- um, vinnur að rannsóknarstörf- um. Það kynnir sér einnig hjálpartæki, umhverfis- og sjúkdómsþætti, félagslegar og sálfræðilegar hliðar vandamál- anna. Samt heldur fatlaði próf- essorinn alltaf áfram. Einnstarfsmanna hans sagði: „Viðlitum ekki á Sven-Olof sem fatlaðan. Hann er alltaf svo siarfesamur. „Nú er kominn matartimi, Prófessorinn rennir hjólastólnum að matarboröinu (sem er af sérstakri gerð, sem hann hannaði sjálfur sér til þægindaauka, en er nú fjölda- framleitt fyrir aðra fatlaða). Hann tekur umbúðirnar utan af brauðpakkanum sinum og app- elsinunni, prófessorinn gefur sér 20 minútur til að borða. En helmingnum af matartimanum er varið til að segja starfeliðinu frá fundi sem hann var á daginn áður! Timi er kominn til aö fara. Prófessor Brattgard þarf á fund. Þrátt fyrir hve mikill framkvæmdamaður Brattgárd er tekst honum að halda ró sinni óskertri. Siðasta spurningin: Náði hann árangri þrátt fyrir eðavegna fötlunar sinnar? „Ég er fatlaðurogég nýt forréttinda san slikur” svaraði hann. „Ég tala sömu tungu og þeir fötluðu og er jafnframt læknir, og próf- essor og hef stööu visindamanns sem stjórnmálamenn og aðrir viöurkenna. Þeir geta aldrei sagtað égskilji ekki vandamál- in. Eitt þeirra er að ein mesta fötlun margra fatlaðra er sú að þeir eru öörum háðir.” Gráhærði maðurinn með gler- augun snýr hjólastólnum. Hann ekur honum inn í rannsókna- stofuna og gefur einkaritara sinum fyrirmæli i leiðinni. Mér verður ósjálfrátt hugsaö hvort það séum ekki viö hin sem erum úr takti fyrst á fimmta hverju heimili I Sviþjóö (og sennilega öðrum vestrænum löndum) er a.m.k. einn fjölskyldumeðlimur fatlaður. Kannski erum það við, sem ekki erum fötluð, sem ættum að aðlaga okkur betur þeim fötl- uðu, og lita á það að fóik sé á einn eða annan hátt fatlað ein- hvern tima ævinnar, sem eðli- legan þátt I lifinu. Þýtt og endursagt S Tek að mér að leysa út vörur fyrir innflytjendur, með l-2ja mánaða greiðslufresti. Þeir sem hafa áhuga, leggj tilboð inn á afgreiðslu blaðsins, merkt, Fyrirgreiðsla. Innritun nemenda í alla aldursflokka (yngst 4ra ára) fer fram í Alþýðuhúsinu þriðjudaginn 31. janúar og miðvikudaginn 1. febrúar kl. 1-7 báða dagana ATHUGIÐ! INNRITUN AÐEINS ÞESSA TVO DAGA!

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.