Tíminn - 29.01.1978, Blaðsíða 22
22
Sunnudagur 29. janúar 1978.
V-bréf eru bæði verðbréf og peningabréf, þarna þjónustubréf
Þaðer alltaf ánægjulegt að fá
bréf frá lesendum, með hvers
konar fyrirspurnum, en mætti
samt gjarnan vera meira af þvi.
Auk þess sem spurt hefur verið
um jólamerki ársins, og þvi efni
"er svarað i öðrum þætti, hafa
tvær aðrar fyrirspurnir borizt.
Annars vegar um svonefnt
T-bréf og hins vegar um verð-
bréf.
Sennilega gefur mynd af bréf-
unum meiri upplýsingar en
langt ritmál, svo aö ég hef i tekið
það ráð að hafa myndir, af báð-
um gerðum bréfanna og þá
jafnframt að segja nokkuð frá
þeim.
T-bréfin verða þannig til, að
lagt er i póst, sennilega oftast i
ógáti, bréf án þess aö sett sé á
það frimerki. Nefnist þetta öðru
nafni vanborgað bréf. Þá er það
annað hvort þannig, að ekkert
hefir verið borgað undir það,
eða þá að of litið hefir verið
greitt.
Myndin, sem hér fylgir með,
að af bréfi frá Flateyri, frá ár-
inu 1971, sem ekkert haföi veriö
borgað undir. Þá var burðar-
gjald fyrir innanlandsbréf 7
krónur. Þegar sendandi greiðir
ekkert undir bréfið, verðurmót-
takandi að leysa það til sin með
þvi að greiða tvöfalt burðar-
gjald. 1 þessu tilfelli varð þvi að
borga 14krónur,sem gert var á
móttökupósthúsinu I Hafnar-
firði, tveim dögum seinna.
Sé hins vegar greitt of litið
undir bréf, ber móttakanda að-
eins að greiða hina vanborguðu
upphæð tvöfalda, er þá hlut-
fallstalan, sem greiða á skráð
framan á bréfið. Þannig er hitt
vanborgaða bréfið, sem mynd
er af. Burðargjald frá Banda-
rikjunum er 31 cent, en þarna er
aðeins greitt 24 cent, þar sem
bréfið er sent innanlands. Þegar
svo þarf að senda það til Is-
lands, verður að bæta á það
hlutfallinu 7/1,8, sem i íslenzk-
um krónum gerir 32 krónur, en
slik verðgildi voru ekki til svo
greiða varð með krónum 35. Þá
leggur bréfið af stað frá list-
munauppboðsfyrirtækinu
Sotheby Parke Bernet, Inc.
þann 30. ágúst 1977, en kemur
svo loks til Hvammstanga 3.
nóvember sama ár, eftir
T-stimplanir og áframsending-
ar gegnum þrjú heimilisföng.
Það þarf þá varla að taka fram,
að þarna hefir upphæðin sem á
vantaði, verið greidd tvöföld.
Þá er næst að taka fyrir pen-
ingabréfin, eins og fyrirspyrj-
andi nefnir þau. Þetta nafn er þó
ekki einhlitt. Bréf með rauðum
miða merktum V, eru verðbréf,
en ekki einungis peningabréf.
Þó er hér birt mynd af peninga-
bréfi, þar sem sérstaklega var
um þau spurt.
Rauði miðinn með V, staðar-
heiti, I þessu tilfelli BRÍJ og
númeri, hér 280, er verðmiði.
Hann táknar að bréfið sé verð-
bréf, i þessu tilfelli peningabréf
með tiltekinni upphæð, sem tdl-
greind er efst á bréfinu. Þar
sem þetta er þjónustubréf, er
ekki um frimerki að ræða á þvi,
annars yrði sendandi að greiða
með álimdum frimerkjum, þá
burðargjalds og ábyrgðarupp-
hæð sem krafizt er. Þá þarf
einnig að greiða með álimdum
frimerkium, ef póstmaður telur
I bréfinu og staðfestir þá upp-
hæö sem send er. Eitthvað hef-
ir;dagsstimpill pósthússins verið
daufur i þetta sinn, og hefir þvi
kassastimpillinn verið settur
yfir hann svo ekki væri vafi á
hvenær sent er. Þá er ennfrem-
ur rauður gúmmistimpill á
bréfinu „PÓSTUR OG SIMI
BRÚ” og númer viðtökupóst-
húss 377, á framhlið bréfsins. Á
bakhlið er svo innsigli númer
259 og móttökustimplun afhend-
ingarpósthúss.
Sigurður H. Þorsteinsson
Viðtakandinn iHafnarfirði
greiddi tvöfalt burðargjald
= 14 kr.
Sotheby Parke Bemet, Inc.
980Madison Avetiue Nen> York 10021
5
6
BOf
26
06340
ÍSLAND 30
Vanborgað undir bréf frá New York — til Hafnarfjarðar og síðan Hvammstanga
Vörubílaeigendur
athugið!
Við smiðum álpalla á allar gerðir vöru-
bila. Hentugir til allskonar flutninga.
Hagstætt verð.
Við smiðum einnig stálpalla úr skipastáli
til grjótflutninga. önnumst einnig allar
viðgerðir og nýsmiði.
Málmtækni s/f
Vagnhöfði 29
Símar 83-0-45 og 83-7-05
Utboð
Tilboð óskast i eftirfarandi fyrir Hitaveitu Reykjavikur.
a. Smiði pipu undirstaðna og stýringa.
Útboðsgögn eru afhent i skrifstofu vorri, Frikirkjuveg 3,
Reykjavik gegn 5 þús. kr. skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð á sania stað þriðjudaginn 14. febrúar
n.k. kl. 14.00 e.h.
b. Leggja Reykjaæð II. fimmta áfanga.
Útboðsgögn eru afhent i skrifstofu vorri Frikirkjuveg 3,
Reykjavik gegn 10 þús. kr. skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað 7. marz n.k. kl. 11 f.h.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Frílcirlcjuvcgi 3 — Sími 25800
Ráðunauta
fundur
A vegum Búnaðarfélags Is-
lands og Rannsóknarstofnunar
landbúnaðarins hefur verið boðað
til fræðslu- og umræðufundar.
Héraðsráðunautar munu mæta á
fundinum. ennfremur kennarar
við garðyrkju- og bændaskólana,
sérfræðingar Rannsóknastofnun-
arinnar, ráðunautar Búnaðarfé-
lags Islands og ýmsum fleiri aðil-
um hefur verið boðin þátttaka i
fundinum.
Fundurinn verður settur 6.
febrúarkl. 9.00i Bændahöllinni en
slitið föstudaginn 10. febrúar kl.
17.00.
Fyrsta fundardaginn verður
rætt um stöðu landbúnaðarins,
markaðsmálin og vinnslu- og
dreifingarkostnað búvara. Næstu
tvodagana mun verða gerð úttekt
á aukabúgreinum og hvað þær
hafa upp á að bjóða. Siðustu tvo
dagana verður skýrt frá niður-
stöðum tilrauna og rannsókna
sem unnið hefur verið að á undan-
förnum árum. Ennfremur verða
þau verkefni kynnt, sem starfað
er að hjá Rannsóknarstofnun
landbúnaðarins. Fundarmenn
munu fara kynnisferð að Mógilsá,
i Kollafjörð og að Reykjalundi.
Fréttatilkynning
(Upplýsingaþjónusta landbúnað-
arins)
...........
Tíminn er |
{ penlngar i
{ Auglýsid' i
: iTimanumi
MMMMM««»»«««MMM»»MMM«
Brotamálmur
Kaupum ónýtar álnetakúlur á 100 kr. stk.
Kaupum einnig blýog aðra brotamálma.
Málmsteypa Ámunda Sigurðssonar
Skipholti 23, simi 1-68-12.
Tilkynning
til þeirra, sem hafa lokið fulln-
aðarprófi úr barnaskóla og vilja gjarnan
bæta við sig i námi. Áformað er að stofna
deild ætlaða fólki, sem vill gjarnan bæta
við fullnaðar- eða barnaskólapróf sitt.
Kennslugreinar verða islenska, danska,
enska og stærðfræði. Kennt verður þrjú
kvöld i viku. Kennslustaður: Miðbæjar-
skóli, simar: 14106 og 12992. Þeir sem
vildu taka þátt i þessu námi, eru beðnir
að hafa samband við okkur sem fyrst.
Námsfiokkar Reykjavikur