Tíminn - 29.01.1978, Blaðsíða 27
Sunnudagur 29. janúar 1978.
27
„Þrepgangari” bætist
við í tækjasafn
Þrepgangari Sjálfsbjargar.
Timamynd G .E.
Eigum Lord
SÓFASETTIN
og Lord
hobnsofann
með plussáklæði í mörgum litum - Einnig
mikið úrval af öðrum sófasettum og alls
konar húsgögnum _____
VERIÐ VELKOMIN!
SMIDJUVEGI6 SIMI 44544
Sjálfsbjargar
ESE — Nýlega átti rafgeyma-
verksmiðjan Pólar 25 ára starfs-
afmæli. í tilefni þess ákváðu for-
ráðamenn fyrirtækisins að gefa
Sjálfsbjörgu, félagi lamaðra og
fatlaðra, rafknúinn þrepgangara
fyrir hjólastóla.
Þrepgangarar af þessari gerð
eru framleiddir í Bandarikjunum
og aðallega ætlaðir til flutninga á
þungum hlutum s.s. pianóum,
frystikistum og isskápum. Þrep-
gangarinn getur flutt allt að 350
kg, hvort heldur sem er upp eða
niður stiga. Þrepgangarinn er út-
búinn sem handvagn, og er hann
knúinn 12 volta rafgeymi og
áætlaður flutningstimi er 13 þrep
á minútu.
Að sögn forráðamanna Pólars
hf. fengu þeir vélsmiðjuna Sindra
til að sjá um breytingar og smiði
nauðsynlegs útbúnaðar til flutn-
ings á hjólastólum. Verð á þrep-
göngurum af þessu tagi mun vera
um 250 þús. kr.
Þetta nýja tæki mun koma fé-
laginu Sjálfsbjörgu að góðum not-
um i framtiðinni, og i þvi sam-
bandi má nefna,að ef rafmagn fer
af lyftum i húsi Sjálfsbjargar, þá
er mjög erfitt að koma hjólastól-
um milli hæða. Einnig ætti þrep-
gangarinn að auðvelda hreyfi-
lömuðu fólki að komast ferða
sinna á stöðum utan stofnunar-
innar.
Ferðaáætlun
Útivistar 1978
FI — Ferðaáætlun útivistar fyrir
árið 1978 er komin út. Boðið er
upp á 12 sumarleyfisferðir á
timabilinu 1. júli til 15. ágúst.
Þórsmerkurferðir hvert föstu-
dagskvöld frá 30. júni til 11. ágúst,
41 helgarferð allan ársins hring
ogum 126styttriferðirum tsland.
Utanlandsferðir fyrir félaga i Úti-
vist verða til Grænlands, Færeyja
og annarra landa, eftir þvi sem
tilefni gefast til.
Framkvæmdastjóri útivistar
er Einar Þ. Guðjohnsen en auk
hans eru i stjórn Þór Jóhannsson
formaður og Jón I. Bjarnason rit-
ari.
1978
f frétt frá Útivist segir, að
vegna óstöðugs verðlags sé ekki
unnt að áætla verð ferðanna með
svo miklum fyrirvara en það
verðurtilkynnt straxog mögulegt
reynist. Eins og áður greiða
félagar i útivist lægra verð en
aðrir. Hálft gjald greiðist fyrir
börn á skyldunámsaldri til
fermingar, nema i einsdagsferð-
um.en þá er fritt fyrir börn i fylgd
meðfullorðnum. Enginnmatur er
innifalinn i verðinu. Fararstjórar
eru i öllum ferðum félagsins.
Farmiðasala i helgarferðir og
lengri ferðir félagsins er á skrif-
stofu Útivistar Lækjargötu 6.
Nauðsynlegteraðskrá sig timan-
lega og i siðasta lagi daginn fyrir
Sambyggt útvarp og segulband
bæði fyrir straum og rafhlöður
HEITIR CROWN CB-500
26 AR I FARARBRODDI
36.16