Tíminn - 29.01.1978, Blaðsíða 25

Tíminn - 29.01.1978, Blaðsíða 25
Sunnudagur 29. janúar 1978. 25 8. 300 ækifæri fyrri íbúaf jölda hann verði það. En höfundarnir segja aðeölilegt sé að ekki verði tekin afstaða til uppbyggingar þessarar greinar fyrr en tillögur nefndarinnar liggja fyrir. Þjónusta og þjónustuiðnaöur eru greinar sem eyjaskeggjar gætu ugglaust nýtt betur en gert er i dag. Tiltölulega fátt fólk vinnur viö þær. Sé tekið dæmi virðast bilaviðgerðir mjög ófull- komnar i Vestmannaeyjum. Verzlun og viðskipti eru einnig hlutfallslega litlar atvinnu- greinar iEyjum og mikið er sótt til meginlandsins eftir þeirri þjónustu. Nú er unnið að gerð skipulags fyrir miðbæinn þar sem stefnt er að aukinni verzlun. Talið er að feröamannaþjón- usta eigi sér töluverða fram- tiðarmöguleika i Vestmanna- eyjum. Það er þvi skoðun höf- unda áætlunarinnar að efla beri t.d. Náttúrugripasafn og stuöla að þvi að sett veröi upp gos- minjasafn. Hitaveita í Vestmanna- eyjum Þróun hitaveitu i Vestmanna- eyjum byrjaði árið 1974, þegar annars vegar hófst undirbún- ingur að hitun nýja hverfisins i vesturbænum og hins vegar var farið að kanna möguleika á nýt- ingu hraunhitans. Upphaflega var gert ráð fyrir þvi, að aðalafl fyrir fjarhitun i nýja vesturbæn- um kæmi frá rafskautskötlum, en vara- og toppafl frá svartoliukötlum. Kannanir og tilraunir með nýtingu hraunhitans leiddu hins vegar til tilraunavirkjunar i hrauninu og var ákveðið að tengja hana við sjúkrahúsið og 20-30 hús i austanverðum bæn- um. Hraunhitaveitan hefur gef- ið það góða raun, að ákveðið hefur verið að nota hraunvirkj- un sem aðalaflgjafa hitaveitu i Vestmannaeyjum i stað raf- skatskatla. Kyndistöð verður aðeins reist fyrir vara- og topp- afl auk dælustöðvar fyrir allan bæinn. Alitið er, að aðalaflið frá hraunhitavirkjuninni þurfi ekki að vera tryggt nema i 10 ár til þess að þessi breyting eigi rétt á sér. Hins vegar er engum mögu- leikum kastað á glæ, heldur er hvenær sem er hægt að setja upp aðra tegund aflgjafa, ef hraunvirkjunin uppfyllir ekki þær vonir, sem bundnar eru við hana. iEskulýðsráð heldur námskeið í félagsstörfum fyrir leiðbeinendur SJ — Dagana 3.-5. marz verður námsefni fyrir framhaldsnám- skeið i félagsstörfum lagt fyrir umsjónarmenn og kennara á fé- lagsm álanámskeiðum fyrir æskufólk. Á námskeið þetta eru boðnir allir þeir, sem kennt hafa námsefni æskuiýðsráðs á félags- málanámskeiðum til þessa. Út- gáfa þessa námsefnis hefur dreg- izt nokkuð, en jafnframt er unnið að endurskoðun á námsefni i fé lagsstörfum fyrir byrjendur, sem einkum mun verða nýtt til félags- málafræðslu i grunnskóium. Sl. fjögur ár hafa verið haldin 300 féiagsmálanánskeið með nálega 600 þátttakendum á veg- um æskulýðsráðs. Einnig hefur ráðið haldið 11 námskeið fyrir umsjónarmenn og kennara á fé- lagsmálanámskeiðum með sam- tals um 300 þátttakendum. Menntamálaráðuneytið hefur fal- ið æskulýðsfulltrúa að semja og gefa út leiðbeiningar og safn hug- mynda varðandi félagsstörf i skólum. Er þess að vænta, að sú útgáfustarfsemi geti einnig orðið æskulýðsfélögum að liði við fé- lags- og fundastarfsemi, og geta félagsforystumenn snúið sér til æskulýðsfulltrúa í menntamála- ráðuneytinu vilji þeir fá eintak að leiðbeiningum þessum. Nýlega samþykkti mennta- málaráðuneytið sérstaka reglu- ferð um félagsstörf og félags- málafræðslu i grunnskóla, en þar er m.a. kveðið á umhelztu þætti félagsstarfs með nemendum og sérstaka félagsmálafræðslu. A næstunni efnir æskulýðsráð rikisins til eftirfarandi ráðstefna og funda: Fundur með fulltrúum æsku- lýðsstarfs sveitarfélaga 4. febrú- ar. Fundur á Akureyri 10.-12. marz i samvinnu við Æskulýðs- og iþróttaráð Akureyrar og æsku- lýðssamtök á Akureyri. Fundur með fulltrúum landssamtaka æskulýðsfélaga i mai. Fram- halsnámskeið fyrir umsjónar- menn félagsmálanámskeiöa 3.-5. marz (eins og segir hér aö framan.) Þá verður ráðstefna i október um félagsstörf i skólum og sam- Myndskreyting úr fréttabréfi Æskulýðsráðs. starf með skólunum og æskulýðs- Umsóknarfrestur um stuðning félögum og ráðum. frá Norræna menningarmála- sjóðnum við norrænt samstarf á sviði æskulýðsmála rennur út hinn 1. marz n.k. Eyðublöð og skýringar á reglum sjóðsins er að fá i menntamálaráðuneytinu. Fjárveiting til æskulýðs- og iþróttasamtaka fyrir 1978 hefur verið hækkuð nokkuð umfram þær verðhækkanir sem orðið hafa. Ýmis smærri félögeiga þó i verulegum fjárhagsörðugleikum. Æskulýðsráði er einnig skorinn svo þröngur stakkur f járhagslega að það getur ekki sinnt nema hluta þeirra verkefna sem undir það heyra. Æskulýðsráð rikisins hefur hafið að nýju útgáfu fréttabréfs sem ætlað er að kynna störf og stefnu ráðsins og veita upplýsing- ar um félags- og tómstundamál- efni ungs fólks. Póker, sjónvarpskvikmynd eftir Björn Bjarman, verður sýnd sunnudaginn 29. janúar. Kristbjörg Kjeld og Róbert Arnfinnsson fara þar með hlutverk og eru þau hér á myndinni. Genð V . reytarakaup V ÚTSÖLU MARKAÐUR í Iðnaðarhúsinu við Hallveigarstíg Mikið úrva/ af: Gallabuxum • Verð frá 1.500 : Flauelsbuxum \ Verðfrá 1.500 ; Sjóliðajökkum i Verð frá 7.900 Vinnuskyrtum s Verð frá 1.400 S m ásamt miklu úrvali af öðrum fatnaði ■ STÓRLÆKKAÐ VERÐ - : AÐEINS í NOKKRA DAGA : UinnuMg Iðnaðarhúsinu HUDI

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.