Fréttablaðið - 10.08.2006, Blaðsíða 68

Fréttablaðið - 10.08.2006, Blaðsíða 68
 10. ágúst 2006 FIMMTUDAGUR48 Ofurfyrirsætan Gisele Bünd- chen hefur gefið út yfirlýsingu þess efnis að hún sé endanlega hætt störfum sem fyrirsæta. Þetta mun vera vegna þess að hún segist vera orðin þreytt á óreglulegum lífsstíl sem fylgir fyrirsætustörfunum. „Það er komið nóg. Ég er búin að fá mig fullsadda af því að ganga fram og aftur á tískupöllunum,“ segir Gisele, sem síðustu árin hefur verið eitt heitasta nafnið í fyrir- sætubransanum. Þessari brasilísku fegurðar- dís finnst ekki gaman lengur að hlaupa milli stílista og vera með hárblásarann yfir sér allan dag- inn, einnig kvartar hún yfir því að síminn hennar stoppi aldrei. Hún mun þó taka að sér einstaka verkefni fyrir vini sína eins og hún greinir sjálf frá. Bündchen, sem fær meira en sjö milljónir á tímann í fyrirsætustarfinu, ætlar að einbeita sér að leiklist- inni og hefur skrifað undir sér- stakan auglýsingasamning við Dolce & Gabbana. Gisele var um tíma kærasta leikarans Leonardo DiCaprio og skaut það henni ærlega upp á stjörnuhimininn. Voru þau búin að vera saman í nokkur ár áður en þau létu sjá sig saman opin- berlega. Slúðurblöðunum ber þó ekki saman um þessar mundir því sumir álíta að skötuhjúin séu á leið upp að altarinu á meðan aðrir velta fyrir sér sambandi DiCaprio við breska sjónvarps- stjörnu. Gisele Bündchen hætt í fyrirsætubransanum BRASILÍSKA FEGURÐARDÍSIN Gisele Bündchen hefur gefist upp á fyrirsætustörfunum. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTYIMAGES Ástralía er land sem ekki er mjög þekkt í tískuheiminum en á síð- ustu árum hafa ástralskir hönnuð- ir komið sterkir og ferskir inn á markaðinn. Það sem einkennir ástralska hönnun er tilraunakennd munstur, litasamsetningar og snið sem fara ekki hverjum sem er. Material Boy er eitt af forvitni- legum merkjum frá Ástralíu. Þetta er ungt og ferskt merki sem minn- ir allra helst á franska merkið Comme de Garcon nema örlítið litaglaðara. Hönnuðir merkisins segjast hafa sótt innblástur af þessari sumarlínu sinni í teikni- myndasögur og yfirskrift línunn- ar er „Honey, I shrunk the kid!“. Fatnaðurinn frá Material Boy er barnalegur og pönkaður í senn. Litagleðin er mikil og notast þeir mest við 2D grafík í munstrum sínum ásamt því að gera frekar sniðlausar flíkur. Material Boy er áhugavert merki sem ber að fylgjast vel með í framtíðinni. alfrun@frettabladid.is Teiknimyndatíska frá Ástralíu DENNI DÆMALAUSI Flottar rauðar stuttbuxur við hvíta hnésokka minnir mjög á einhverja teiknimynda- söguhetju. FLIPPAÐ OG FLOTT Stuttermabolur, pólóbolur og bindi er ekki hin vanalega samsetning en kemur vel út á tískupallinum. SEBRA- MUNSTUR Flottur skikkju- legur bolur með svart/hvítu munstri. HUGMYNDA- FLUG Ekki myndu margir ungir íslenskir sveinar klæðast þessum fatnaði næsta sumar en hugmyndin er góð. SMEKKBUX- UR Tákn barnaleikans eru buxur með smekk en þessi ungi herra tekur sig vel út á pallinum. HNÉSOKKAR Fyrirsætan tekur sig vel út í flottum marglitum bol og í stutt- um svörtum hnébuxum. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTYIMAGES ÖÐRUVÍSI ER GOTT Sýning þessa sérkennilega merkis hefur vakið mikla athygli fyrir frjótt hugmyndaflug. DOPPÓTT Flottar stuttar pokabuxur og slaufa um hálsinn verður mjög heitt næsta sumar hinum megin á hnettinum. Iceland Naturally Evrópu er nýtt samstarfsverkefni sem samgönguráðu- neytið og utanríkisráðuneytið hafa sett á laggirnar. Tilgangur verkefnisins er að styrkja ímynd Íslands á neytendamörkuðum í Bretlandi, Þýskalandi og Frakklandi. Leitað er að samstarfsaðilum meðal fyrirtækja á neytendamarkaði í einu eða fleiri ofangreindra landa. Samstarfsaðilar greiða árlega fasta upphæð til verkefnisins og njóta á móti hluta af þeim fjármunum sem verkefnið hefur yfir að ráða. Markaðsaðgerðir Iceland Naturally eru einkum ýmiss konar kynningar, veffréttir, almannatengsl og auglýsingar. Sams konar verkefni hefur verið framkvæmt í Bandaríkjunum síðustu ár, með góðum árangri. Áhugasamir sendi upplýsingar um fyrirtæki og tengilið á netfangið arsaell@icetourist.is og haft verður samband við viðkomandi. Nánari upplýsingar um verkefnið má finna á www.icelandnaturally.com Samstarfsaðilar óskast!
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.