Fréttablaðið - 20.08.2006, Síða 2
2 20. ágúst 2006 SUNNUDAGUR
GÓÐGERÐARMÁL Jón Eggert Guð-
mundsson lauk í gær strandvega-
göngu sinni til styrktar Krabba-
meinsfélagi Íslands sem hófst
fyrir rúmu ári. Jón skipti strand-
vegagöngunni í tvo hluta, síðasta
sumar gekk hann fyrsta hluta leið-
arinnar frá heimili sínu í Hafnar-
firði til Egilsstaða. Í sumar hefur
Jón svo haldið áfram þar sem frá
var horfið og gengið nær daglega í
þrjá og hálfan mánuð. Á leið sinni
hefur Jón þrætt strandvegi Íslands
og lagt samtals 3.446 kílómetra að
baki eða um þrjátíu kílómetra á
dag.
Þegar blaðamaður Frétta-
blaðsins náði tali af Jóni var
hann staddur á bensínstöð í
Reykjavík að borða pitsusneið
áður en hann gekk síðasta spöl-
inn niður í Ráðhús Reykjavíkur
þar sem Vilhjálmur Þ. Vilhjálms-
son borgarstjóri tók á móti
honum. „Það er alveg frábær til-
finning að ljúka þessu, en í sann-
leika sagt er þetta ekki farið að
síast alveg inn ennþá,“ sagði
hann kampakátur.
„Mig langaði bara að gera eitt-
hvað sem enginn hefur gert áður
og að fá tækifæri til að styrkja
gott málefni í leiðinni. Krabba-
mein er sjúkdómur sem margir
fá og flestir eiga aðstandendur
sem fengið hafa krabbamein.“
Jón segir að nú taki kærkomin
hvíld við hjá sér. „Svo fer maður
bara að vinna aftur, ég er búinn
að vera í löngu fríi frá vinn-
unni.“
Við komuna í ráðhúsið óskaði
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson Jóni
til hamingju með þetta afrek og
færði honum ávísun frá Reykja-
víkurborg upp á 150.000 krónur
sem renna mun til Krabbameins-
félagsins. „Ég er mjög hreykinn
af Jóni að hann skuli leggja svona
mikið á sig fyrir gott málefni,
það má kannski líta á þessa ávís-
un sem einhvers konar byrjunar-
framlag frá Reykjavíkurborg,“
sagði Vilhjálmur. -vör
Jón Eggert Guðmundsson gekk 3.446 kílómetra á þremur og hálfum mánuði:
Lauk strandvegagöngu í Ráðhúsinu
VILHJÁLMUR Þ. VILHJÁLMSSON Borgarstjór-
inn í Reykjavík veitti Jóni Eggerti viðurkenn-
ingu við komuna til Reykjavíkur í gær.
FRÉTTABLAÐIÐ/HRÖNN
STJÓRNMÁL „Þótt verðbólgan sé
slæm þá er tímabundin verðbólga
ásættanlegri en tímabil atvinnu-
leysis með tilheyrandi niðurbroti
einstaklinga og fjölskyldna. Hins
vegar er mikilvægt að allir lands-
menn leggist á árarnar til þess að
kveða niður verðbólguna.“
Þetta er meðal þess sem er að
finna í stjórnmálaályktun flokks-
þings Framsóknarflokksins sem
samþykkt var í gærmorgun.
Í ályktunni segir að mikilvægt
sé að varnir landsins verði áfram
trúverðugar og öryggi borgaranna
tryggt þannig að brugðist sé við
ógnum með skjótum og skilvirkum
hætti. Um alþjóðasamskipti segir
að samningurinn um evrópska
efnahagssvæðið henti vel og allt
bendi til að svo verði áfram. Þá sé
nauðsynlegt að skapa almenna sátt
um nýtingu náttúruauðlinda. - bþs
Ályktun Framsóknarflokksins:
Allir ráðist gegn
verðbólgunni
Ekið á barn Ekið var á tveggja ára
gamalt barn á Hringbraut í Keflavík um
hádegi í gær. Barnið hljóp í veg fyrir
bifreið með fyrrgreindum afleiðingum.
Meiðsli barnsins voru ekki teljandi.
Vörubíll valt Vörubifreið fór á hliðina
á Þingvallavegi við Ljósafossstöð um
fimm leytið í gær. Engin slys urðu á
fólki. Tildrög slyssins eru ókunn að sögn
lögreglunnar á Selfossi. Ökumaður er
ekki grunaður um ölvunarakstur.
LÖGREGLUFRÉTTIR
ÍSRAEL, AP Dómsmálaráðherra
Ísraels, Haim Ramon, ætlar að
segja af sér í dag vegna dóms-
máls, en hann er sakaður um kyn-
ferðislega áreitni við átján ára
gamla herkonu. Stúlkan segir
Ramon hafa þröngvað kossi á
varir hennar sama dag og stríðið
við Hizbollah hófst, 12. júlí.
Verði Ramon fundinn sekur,
getur hann átt von á allt að þriggja
ára fangelsisdómi.
Ramon er mikill stuðningsmað-
ur Ehuds Olmert, forsætisráðherra
Ísraels. Er málið talið hafa slæm
áhrif á álit Ísraela á Olmert og rík-
isstjórn hans, en hann nýtur æ
minni stuðnings landa sinna vegna
stríðsins við Hizbollah. - smk
Dómsmálaráðherra Ísraels:
Segir af sér
vegna kæru
HAIM RAMON Dómsmálaráðherra Ísraels er
sakaður um að hafa kynferðislega áreitt 18
ára gamla herkonu. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
ÍSRAEL, LÍBANON, AP Ísraelar sendu
hersveitir inn í Líbanon í gær-
morgun, þrátt fyrir vopnahlés-
samkomulag Sameinuðu þjóð-
anna, og réðust þær gegn
liðsmönnum Hizbollah sem svör-
uðu í sömu mynt. Í átökunum
felldu Hizbollah-liðar einn ísra-
elskan hermann og særðu tvo aðra
að sögn líbanskra og ísraelskra
yfirvalda, og flýðu Ísraelar af
vettvangi eftir að þeir biðu lægri
hlut í átökunum.
Forsætisráðherra Líbanons,
Fuad Saniora, sakaði Ísraela um
að hafa rofið vopnahléið og sagð-
ist ætla að ræða við Kofi Annan,
framkvæmdastjóra SÞ, um árás-
ina, en talsmenn Ísraelshers sögð-
ust hafa verið að stöðva afhend-
ingu vopna frá Íran og Sýrlandi til
Hizbollah og að búast mætti við
fleiri árásum.
Illa gengur að manna alþjóð-
legt herlið sem senda á til Líban-
ons samkvæmt ákvörðun SÞ, og í
gær varaði Elias al-Murr, land-
varnarráðherra Líbanons, við því
að stjórnin gæti meinað alþjóða-
hernum aðgang að landinu, hefðu
Sameinuðu þjóðirnar ekki afskipti
af Ísrael vegna árásarinnar.
Franskt herskip kom til Beirút
í Líbanon í gær með fimmtíu af
tvö hundruð hermönnum sem
Frakkar hafa lofað í alþjóðlegu
hersveitina. - smk
Ísraelsher réðist aftur inn í Líbanon þrátt fyrir vopnahléssamkomulag SÞ:
Hóta enn frekari árásum
SPRENGJUR Ísraelsher réðist inn í Líbanon í
gær, þrátt fyrir vopnahlé. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
SPURNING DAGSINS
Haukur, hvað klikkaði?
„Það klikkaði ekki neitt, þetta fór
nákvæmlega eins og það átti að fara.
Ég breytti mestu þarna þó ég hafi bara
fengið eitt atkvæði.“
Haukur Haraldsson var einn þeirra sem bauð
sig fram til formanns Framsóknarflokksins.
Kosning fór fram á flokksþingi í gær. Af 761
atkvæði hlaut Haukur eitt.
BÍLSLYS Tveir bílaleigubílar frá
sömu bílaleigunni lentu í óhappi á
Skógarströnd í gær. Í báðum til-
vikum var ökumaður erlendur.
Rétt eftir miðnætti í gær var
jeppa ekið ofan í skurð við Háls.
Engin slys urðu á fólki en bifreið-
in er ónýt.
Upp úr hádegi í gær ók bifreið
með fimm Spánverjum út af og
valt skammt fyrir vestan Gunn-
arsstaði. Þrír voru fluttir á slysa-
deild í Búðardal en meiðsl voru
ekki alvarleg.
Lögreglan í Búðardal telur að
reynsluleysi ökumanna á malar-
vegum hafi valdið slysunum en
ekki hraðakstur. - sþs
Tvö bílslys á Skógarströnd:
Erlendir velta
og enda í skurði
BANDARÍKIN, AP Bandarísk heil-
brigðisyfirvöld hafa leyft notkun
á blöndu vírusa sem úðað verður á
kjötálegg, pylsur og kjúklinga.
Vírusarnir éta bakteríur sem geta
valdið lífshættulegum sýkingum.
Vírusablöndunni mun verða
úðað á kjötafurðirnar áður en
þeim er pakkað í lofttæmdar
umbúðir og er framleiðendum
ekki skylt að gefa upp hvort bland-
an hafi verið notuð.
Meðal bakteríanna sem vírus-
arnir éta eru Listeria monocytoge-
nes, sem leggjast helst á þungaðar
konur, ungabörn og fólk með veikt
ónæmiskerfi, og deyja um 500
Bandaríkjamenn úr listeriosis á
ári hverju. - smk
Bandarískar rannsóknir:
Ætum vírusum
dreift á mat
PYLSA MEÐ ÖLLU Vírusum mun nú verða
dreift á pylsur í Bandaríkjunum.
Bruni í Blöndudal Eldur kom upp
út frá uppþvottavél í tvílyftu íbúðarhúsi á
Ytri-Löngumýri í Blöndudal í gær. Að sögn
lögreglunnar á Blönduósi náði bóndinn að
slökkva eldinn sjálfur áður en slökkviliðið
mætti á svæðið, en það reykræsti húsið.
Töluverðar skemmdir urðu á húsinu vegna
reyksins og duftsins úr slökkvitækinu, en
litlar eiginlegar brunaskemmdir.
VIRKJANAMÁL Geir H. Haarde, for-
sætisráðherra og formaður Sjálf-
stæðisflokksins, segir menn hafa
gert sér grein fyrir umhverfis-
áhrifum Kárahnjúkavirkjunar
þegar ráðist var í framkvæmdirn-
ar. Hins vegar verði alltaf að eiga
sér stað ákveðið hagsmunamat
þegar stórar ákvarðanir eru teknar.
„Ég tel að við höfum tekið hárrétta
ákvörðun. Auðvitað er alltaf eftir-
sjá að landi sem hverfur. Hins
vegar er mikið af þessu örfokaland,
þótt eitthvað sé um gróin svæði. Ef
ég ætti að velja efnahagsáhrifin af
virkjuninni eða að halda þessu landi
myndi ég velja nákvæmlega sama
kost og við gerðum á sínum tíma,“
sagði Geir á Kárahnjúkum.
Geir heimsótti í gær virkjunar-
svæði Kárahnjúkavirkjunar undir
leiðsögn Ómars Ragnarssonar fjöl-
miðlamanns. Með í för voru þau
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir,
menntamálaráðherra og varafor-
maður Sjálfstæðisflokksins, auk
þingmannanna Guðlaugs Þórs
Þórðarsonar og Arnbjargar Sveins-
dóttur.
Ómar flaug með hópinn í eins
hreyfils flugvél vítt og breitt yfir
virkjanasvæðið og sýndi þeim stór-
an hluta þess svæðis sem fer undir
þegar vatni verður hleypt í Háls-
lón. Ferðinni lauk svo á Kringilsár-
rana sem verður á um sextíu metra
dýpi. Þaðan leiddi Ómar hópinn í
gönguferð um svæðið.
Geir H. Haarde sagðist vera að
sjá marga þá staði sem Ómar sýndi
hópnum í fyrsta skipti. „Ég hef
náttúrulega skoðað virkjanasvæðið
og þar í kring. Þetta er þó nýtt að
sumu leyti og einstaklega gaman að
sjá svæðið úr lofti, sérstaklega í
fylgd þessa einstaka leiðsögu-
manns.“
Virkjunin við Kárahnjúka hefur
verið mikið hitamál í samfélaginu
en Geir telur ekki leika vafa á því að
framkvæmdirnar njóti stuðnings.
„Ákvörðunin var tekin lögum sam-
kvæmt og ég held að hún njóti stuðn-
ings bæði í flestum stjórnmálaflokk-
um og meðal þjóðarinnar.“
Ómar Ragnarsson segir ferðina
hafa gengið vel í alla staði. Það hafi
verið mikil ánægja og heiður að
fylgja hópnum um svæðið. „Þessar
ferðir mínar um svæðið eru fyrst
og fremst til að miðla upplýsingum.
Síðan er það fólks að vinna úr þeim
upplýsingum.“
Ómar hefur einnig boðið ráð-
herrum Framsóknarflokksins í
skoðunarferð um virkjunarsvæðið;
þegar hafa þau Valgerður Sverris-
dóttir, Guðni Ágústsson og Jónína
Bjartmarz þekkst boðið. Þá liggur
sams konar boð á borði forsvars-
manna helstu fjölmiðla og forseta
Íslands. jsk@frettabladid.is
Framkvæmdirnar
njóta stuðnings
Forsætisráðherra heimsótti virkjanasvæði Kárahnjúka í gær ásamt Ómari Ragn-
arssyni. Ráðherrann sá stóran hluta þess svæðis sem fer undir vatn í fyrsta sinn.
ÞINGMENN OG LEIÐSÖGUMAÐUR Geir H. Haarde segir vissulega eftirsjá að því landi sem fer undir þegar vatni verður hleypt í Hálslón.
Efnahagsleg áhrif framkvæmdanna vegi hins vegar þyngra. Hér má sjá Ómar Ragnarsson leiða hópinn í gönguferð um Kringilsárrana.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
STJÓRNMÁL Geir H. Haarde telur
niðurstöðu landsfundar framsókn-
armanna til þess fallna að þétta og
bæta ríkisstjórnarsamstarfið.
Hann segir þó ómögulegt að spá
hvort verulegar áherslubreyting-
ar fylgi nýrri forustu. „Ég tel full-
víst að við í Sjálfstæðisflokknum
eigum áfram gott samstarf við
ráðherra Framsóknarflokksins.“
Geir segir þau Jón Sigurðsson
formann, Guðna Ágústsson vara-
formann og Sæunni Stefánsdóttur
ritara, vel að sínum embættum
komin. Hann telur þó mikla eftir-
sjá að Halldóri Ásgrímssyni úr
stjórnmálum „Við höfum átt gott
samstarf sem staðið hefur í ára-
tugi,“ sagði Geir á Kárahnjúkum í
gær. - jsk
Geir um formannskjörið:
Þéttir og bætir
ríkisstjórnina