Fréttablaðið - 20.08.2006, Blaðsíða 21
ER ÞÍN ATVINNUAUGLÝSING HÉR? MEST LESNA ATVINNUBLAÐ LANDSINS
Ertu að leita?
Ráðningarþjónustan veitir faglega og persónulega þjónustu á sviði
ráðninga. Við þjónustum fyrirtæki um allt land, allt frá þeim minnstu til
þeirra stærstu.
Atvinnurekendur – kynnið ykkur þjónustu okkar á heimasíðunni
www.radning.is og hafið samband þegar við getum orðið ykkur að liði.
Umsækjendur – kynnið ykkur úrval áhugaverðra starfa í boði og
fyllið út umsókn á heimasíðu okkar www.radning.is.
Starfsmenn
óskast til starfa sem stuðningsfulltrúar. Um er að ræða störf í
umönnun á heimiliseiningum á hæfingardeildum LSH,
Kópavogi. Við leitum að starfsfólki sem er ábyrgt, samvisku-
samt og hefur áhuga á að vinna með fólki. Starfshlutfall
samkomulag, vaktavinna.
Umsóknir berist fyrir 4. september nk. til Sigríðar Harðar-
dóttur, hjúkrunarfræðings og veitir hún jafnframt nánari
upplýsingar í síma 543 9210, netfang sighard@landspitali.is.
Laun samkvæmt gildandi samningi viðkomandi stéttarfélags og fjármála-
ráðherra. Umsóknareyðublöð fást í upplýsingum Fossvogi og Hringbraut,
skrifstofu starfsmannamála Eiríksgötu 5, á heimasíðu www.landspitali.is.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu LSH við ráðningar í störf á Landspítala –
háskólasjúkrahúsi. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um
ráðningu hefur verið tekin. Landspítali – háskólasjúkrahús er reyklaus
vinnustaður.
Fjáröflunarstarf
Götukynningarfólk óskast
Leitar þú að starfi þar sem þú getur látið gott af þér
leiða? Talað við fólk og verið í góðum félagsskap?
Sæktu þá um starf hjá UNICEF, Barnahjálp Sameinuðu
þjóðanna, og vertu hluti af götukynningarteymi okkar.
Við skráum nýja styrktaraðila eða Ñheimsforeldraì á fjöl-
förnum stöðum í Reykjavík og nágrenni.
Vinnutími er frá 13 til 17, þriðjudaga til laugardaga
(möguleiki á sveigjanlegum vinnutíma). Áhugasamir
sendi ferilskrá á snjolaug@unicef.is.
Nánari upplýsingar á www.unicef.is eða í síma
552 6310.