Fréttablaðið - 20.08.2006, Qupperneq 80
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000
���������������������
����������
Express Fer›ir, Grímsbæ, Efstalandi 26, sími 5 900 100 Fer›askrifstofa í eigu Iceland Express
Nánar á www.expressferdir.is/fotbolti eða í síma 5 900 100
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
F
I
0
1
8
1
2
2
BOLTINN ER
HJÁ OKKUR!
Express Ferðir bjóða gistingu á góðu hóteli, flug og miða á frábæran leik í Enska boltanum frá aðeins 39.900 kr. Ef
þú finnur ekki það sem þig langar mest til að sjá á leikjalistanum okkar, skaltu hafa samband á info@expressferdir.is.
Við getum útvegað bara miða á leik, miða og hótel eða útbúið ferð fyrir þig og þína á nánast alla leiki á Englandi,
Spáni, Þýskalandi að ógleymdum miðum á leiki í Meistaradeild Evrópu. Express Ferðir eru í nánu sambandi við
aðdáendaklúbba Arsenal, Chelsea og Tottenham á Íslandi.
www.expressferdir.is/fotbolti
Chelsea
Chelsea – Liverpool 16.–18. september
Chelsea - Portsmouth 20.–22. október
Chelsea – Watford 10.–12. nóvember
Chelsea – Arsenal 9.–11. desember
Verð frá 59.900 kr. á mann miðað við tvo saman í herbergi*
Fulham
Fulham – Chelsea 22.–24. september
Fulham – Charlton 13.–15. október
Fulham – Everton 3.–5. nóvember
Fulham – Arsenal 29.–30. nóvember
Verð frá 39.900 kr. á mann miðað við tvo saman í herbergi.*
Liverpool
Liverpool – Blackburn 13.–15. október
Liverpool – Reading 3.–5. nóvember
Liverpool – Fulham 8.–10. desember
Liverpool – Portsmouth 29.–30. nóvember
Verð frá 52.900 kr. á mann miðað við tvo saman í herbergi.*
Arsenal
Arsenal - Sheffield United 22.–24. september
Arsenal – Everton 27.–29. október
Arsenal – Liverpool 11.–13. nóvember
Arsenal – Portsmouth 15.–17. desember
Verð frá 59.900 kr. á mann miðað við tvo saman í herbergi.*
Manchester United
Manchester United – Tottenham 8.–10. september
Manchester United – Liverpool 21.–23. október
Manchester United – Chelsea 25.–27. nóvember
Manchester United – Manchester City 8.–10. desember
Verð frá 59.900 kr. á mann miðað við tvo saman í herbergi.*
Tottenham
Tottenham – Fulham 16.–18. september
Tottenham – West Ham 20.–22. október
Tottenham – Portsmouth 30. sept.–2. okt.
Tottenham – Chelsea 4.–6. nóvember
Verð frá 44.900 kr. á mann miðað við tvo saman í herbergi.*
*Innifalið í verði: Flug og skattar, gisting og miði á leikinn.
AUGL†SINGASÍMI
550 5000
FYLGIR FRÉTTABLA‹INU ALLA MI‹VIKUDAGA
Í gegn um tíðina hef ég leitast við að vera ekki efnishyggjumaður.
Ég hef ekki sankað að mér mörg-
um dauðum hlutum um dagana og
þótt vænt um þá. Ég á reyndar
sjónvarp, vídeótæki og X-box sem
einnig fúnkerar sem DVD-spilari,
auk nútímaþæginda á borð við
ísskáp og þvottavél. Ég er enginn
meinlætamaður.
EN það er alveg merkilegt hvað
safnast að manni mikið af drasli.
Ég var nefnilega að flytja í vik-
unni og blöskraði allur óþarfinn
sem ég, sjálfur andans maðurinn,
hafði hugsunarlaust viðað að mér,
að því er virðist einungis í þeim
tilgangi að fergja mig niður og
gera mér erfiðara um vik að færa
mig um set.
ÞARNA voru til dæmis allra
handa plastdollur og dósir með
hvers konar festingum og tengj-
um sem ég hefði ekki getað ráðið í
hvaða tilgangi þjónuðu þótt ég
hefði átt að vinna mér það til lífs,
bunki af pappírum sem ýmist voru
ábyrgðir fyrir símann, úrið,
útvarpsvekjaraklukkuna, brauð-
ristina, myndavélina, X-boxið,
rakvélina, ísskápinn eða þvotta-
vélina eða eitthvað bull sem ég
hafði geymt af því að mér þótti
það sniðugt á sínum tíma, snúrur
til að tengja myndavélina, vídeó-
tækið eða X-boxið við tölvuna eða
sjónvarpið og til að hlaða símann,
rakvélina og tækið sem hleður
endurhlaðanlegu batteríin sem ég
nota aldrei af því að ég man aldrei
að ég á svoleiðis, að ógleymdum
listaverkum barnanna frá því í
leikskóla (sem ekki má henda
vegna tilfinningalegs gildis þeirra
og hafa því safnað ryki í geymsl-
um víðs vegar um vesturhluta
Reykjavíkur undanfarinn áratug)
og dós af hjartarsalti sem var best
fyrir árslok 2003 af því að vorið
2002 bjó ég til rétt sem þurfti að
nota eina teskeið af hjartarsalti í
– svo fátt eitt sé nefnt. Margir
svartir plastpokar fullir af hlutum
sem ég tók einhvern veginn aldrei
þá ákvörðun að eignast, en örlögin
eða hvunndagurinn eða lífsins
bárur eða hvað sem maður vill
kalla það skoluðu inn til mín og ég
vissi ekki einu sinni að ég ætti,
yfirgáfu heimilið við flutningana.
ÞAÐ er bara ekki hægt að vera
frelsaður einstaklingur í föllnu
samfélagi, það er eins og að vera
eini hreini vatnsdropinn í drullu-
pollinum. Efnishyggjan þarna úti
þröngvar sér inn á heimili manns
og gegnsýrir líf manns án þess að
maður sé eitthvað hafður með í
ráðum um það.
Hjartarsalt
frá 2002