Fréttablaðið - 09.09.2006, Qupperneq 6
6 9. september 2006 LAUGARDAGUR
Enn finnast sprengjur
12.000 manns þurftu að yfirgefa
heimili sín og vinnustaði í Berlín
á fimmtudaginn meðan sprengu-
sérfræðingar aftengdu sprengju úr
seinni heimsstyrjöldinni. Sprengjan
vó 250 kíló og reyndist gerð í Banda-
ríkjunum.
ÞÝSKALAND
LÖGREGLUMÁL Lögreglan í Reykja-
vík rannsakar nú hvort og þá
hvaða upplýsingar njósnabúnaður
sem fannst á kortasjálfsala við
bensínstöð á höfuðborgarsvæðinu
hefur að geyma. Tilkynnt var um
búnaðinn til lögreglu í lok síðasta
mánaðar, sem tók málið þegar til
rannsóknar.
Tilgangur þeirra sem komu
njósnabúnaðinum fyrir á sjálfsal-
anum var að láta hann lesa upplýs-
ingar af segulrönd greiðslukorts,
þar með talið svonefnt pin-númer.
Að sögn Harðar Jóhannessonar
yfirlögregluþjóns í Reykjavík er
þetta í fyrsta sinn sem slíkt mál
kemur upp hér á landi. Upp um
búnaðinn komst þar sem sjálfsal-
inn hafði ekki virkað sem skyldi.
Talið er að njósnatækið hafi ekki
verið búið að vera lengi á honum
þegar það uppgötvaðist, en því
hafði verið komið fyrir þar sem
greiðslukortinu er stungið í rauf
sjálfsalans.
Fyrr á árinu gerði lögreglan
austur á fjörðum fjögur njósna-
tæki upptæk, en þau var hægt að
setja á hraðbanka og stela þannig
upplýsingum af kortum. Að sögn
Óskars Bjartmarz yfirlögreglu-
þjóns vildi maðurinn sem tækin
fundust hjá ekki gangast við að
eiga þau, þannig að það mál gekk
ekki lengra. -jss
HRAÐBANKI Fyrr á árinu gerði lögreglan
á Seyðisfirði upptækan búnað sem
hægt var að nota til að stela upplýs-
ingum af kortum sem notuð voru í
hraðbönkum.
Rannsókn lögreglu á tilraunum til kortasjálfsalasvindls:
Leita stolinna upplýsinga
Horfðir þú á landsleik
Íslendinga og Dana?
Já 41%
Nei 59%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Tekur þú þátt í söfnun Rauða
krossins, Göngum til góðs?
Segðu skoðun þína á vísir.is
HEILBRIGÐISMÁL Skammtímaskuldir
Landspítalans nema 1.889 milljón-
um króna og hafa aukist sem nemur
351 milljón króna frá áramótum. Í
stjórnunarupplýsingum spítalans
janúar-júní 2006 segir: „Greiðslu-
staða spítalans er því erfið og leið-
ir það af sér dráttarvaxtakröfur á
hendur LSH ásamt því að öll sam-
skipti við birgja spítalans verða
þyngri.“ Magnús Pétursson, for-
stjóri Landspítalans, segir að þarna
sé ekki átt við að óvild sé á milli
spítalans og birgja, þvert á móti
segir hann sambandið gott.
„Það sem þarna er verið að
segja er að ef spítalinn er í þeirri
fjárhagsstöðu að hann á erfitt
með að standa í skilum þá er eðli-
legt að viðskiptasamskiptin verða
þyngri,“ segir Magnús og minnir
á að spítalinn eigi viðskipti við
mikinn fjölda birgja í landinu.
„Viðskiptin við suma þeirra
hlaupa ekki á hundruðum heldur
þúsundum milljóna. Það er skilj-
anlegt af þeirra hálfu, þegar drátt-
ur verður á greiðslum, að þá þyng-
ist viðskipti og samskipti.“
Aðspurður hvort sú staða hafi
komið upp að spítalinn fái ekki
afgreidd lyf eða rekstrarvörur
vegna greiðslustöðu hjá einstök-
um birgjum svarar Magnús neit-
andi. „Birgjarnir sýna því mjög
mikinn skilning að veita spítalan-
um þjónustu, vegna eðlis málsins.
Og oft er kannski gengið langt á
þeirra velvilja og krít, en ég hef
aldrei heyrt um það að birgjar hafi
neitað að afgreiða vörur þótt spít-
alinn sé í skuld við þá.“
Anna Lilja Gunnarsdóttir,
framkvæmdastjóri upplýsinga
og fjárreiðna, segir að í raun sé
bara um tvennt að velja. „Við
höfum bara tvo liði og það er
annað hvort launin eða greiðslur
til birgja. Það hefur ekki verið
gert að draga launagreiðslur
heldur haft samband við birgja
og gert grein fyrir hvenær verð-
ur greitt.“
Fréttablaðið hafði samband
við nokkra af stærstu birgjum
Landspítalans og fékk staðfest að
skuldir spítalans séu töluverðar
og skipti jafnvel tugum milljóna
hjá einstaka fyrirtækjum. Það
sjónarmið kom fram að það skjóti
skökku við að heilbrigðisyfirvöld
íhugi að setja á fót lyfjaheild-
verslun og hvetji lyfjafyrirtæki
til að standa sig betur á markaði á
sama tíma og ríkið safni skuldum.
Einnig að erfitt sé að skilja af
hverju ríkið borgi dráttarvexti af
hundruð milljóna króna skuldum
Landspítalans á meðan ríkissjóð-
ur skilar milljarða króna afgangi
ár eftir ár. svavar@frettabladid.is
Spítalinn fær lyf
þrátt fyrir skuldir
Forstjóri Landspítalans segir samskipti við birgja góð þrátt fyrir að spítalinn
geti ekki staðið í skilum. Spítalanum hefur aldrei verið neitað um afgreiðslu
lyfja. Birgjar staðfesta skuldir upp á tugi milljóna.
FRÁ LANDSPÍTALANUM Þrátt fyrir erfiða greiðslustöðu hefur aldrei komið til þess að
spítalinn sé ekki afgreiddur með lyf og rekstrarvörur. Samskipti spítalans við birgja
eru að sögn stjórnenda góð. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
MAGNÚS
PÉTURSSON,
FORSTJÓRI
LANDSPÍTALANS
FANGELSI Valtýr Sigurðsson,
forstjóri Fangelsismálastofnunar,
segir afar brýnt að framkvæmdir
vegna úrbóta á
fangelsunum við
Akureyri og Kvía-
bryggju hefjist á
ný sem fyrst. Hann
segir að hætt hafi
verið við fram-
kvæmdirnar þegar
ríkisstjórnin ákvað
í maí að stöðva
opinberar fram-
kvæmdir. Þeirri ákvörðun hafi
enn ekki verið breytt.
Við höfum lagt mikla áherslu á
að það verði ráðist í úrbætur á
Kvíabryggju enda eru þær tiltölu-
lega ódýrar og bæta við sex til átta
fangaplássum. Alþingi þarf að
taka ákvörðun um það hvaða fram-
kvæmdum á að hleypa áfram,“
segir hann. „Á seinasta þingi var
búið að veita fjárlögum til Kvía-
bryggju og Akureyrar. Björn
Bjarnason dómsmálaráðherra
hefur tekið undir það að þessi fer-
ill eigi að halda áfram.“
Valtýr segir að hönnunar- og
teiknivinna við nýja fangelsið á
Hólmsheiði og Litla-Hraun muni
halda áfram þrátt fyrir að fram-
kvæmdir geti ekki hafist fyrr en
ríkisstjórnin gefur leyfi. „Við vilj-
um að allt verði tilbúið þegar flaut-
an gellur. Við vonum að það verði
sem fyrst.“ - sþs
Forstjóri Fangelsismálastofnunar segir brýnt að framkvæmdir við fangelsi hefjist:
Alþingi þarf að taka ákvörðun
VALTÝR
SIGURÐSSON
LITLA-HRAUN Hönnunar- og teiknivinna við nýtt fangelsi á Hólmsheiði og Litla-Hraun
mun halda áfram þó ekki megi byrja að byggja. Forstjóri Fangelsismálastofnunar
vonast til þess að Alþingi flauti sem fyrst til leiks svo framkvæmdir geti hafist á ný.
VARNARMÁL Viðræðum Íslands og
Bandaríkjanna um varnarmál
verður haldið áfram þann 14.
september næstkomandi í
Washington. Þetta kemur fram í
tilkynningu frá forsætisráðuneyt-
inu. Viðræðurnar áttu að halda
áfram um síðustu mánaðamót en
var frestað.
Albert Jónsson sendiherra fer
fyrir íslensku samninganefnd-
inni. Ekki er ljóst hvort þetta
verður síðasti fundur nefndanna
en forsætisráðherra hefur lýst
því yfir að hann vilji ljúka
viðræðunum fyrir næstu
mánaðamót. - sþs
Viðræður um varnarmál:
Næsti fundur
14. september
WASHINGTON, AP Thomas Turner,
næstráðandi hersveita Banda-
ríkjamanna í Írak, upplýsti í gær
að nokkrir pyntingarklefar hefðu
fundist norðaustur af Bagdad.
Klefarnir eru um 3,6 fermetrar
hver og í þeim fundust hlekkir,
sem festir voru við veggina,
barefli og annað sem bendir til
pyntinga.
Turner nefndi klefana til að
sýna dæmi um að ofbeldið milli
súnnía og sjía hefði breiðst út
fyrir Bagdad, en í héraðinu sem
þeir fundust í búa súnníar, sjíar
og kúrdar. - kóþ
Skálmöldin í Írak:
Pyntingarklefar
nálægt Bagdad
LÖGREGLUMÁL Maður sem grunað-
ur er um að hafa reynt að smygla
inn tveimur kílóum af kókaíni í
félagið við fjóra aðra losnaði úr
gæsluvarðhaldi í gær. Áður hafði
18 ára stúlka, sem kókaínið fannst
á, verið leyst úr haldi.
Það var 9. ágúst sem par var
handtekið í Leifsstöð. Á stúlkunni
fundust um tvö kíló af kókaíni.
Þrennt, tveir menn og ein stúlka,
voru svo handtekin í kjölfarið.
Þrjú þeirra sitja enn í gæsluvarð-
haldi fram yfir mánaðarmót.
Samtals eru 11 í gæsluvarðhaldi
nú, tveir fyrir ofbeldisverk en níu
vegna fíkniefnabrota.
- jss
Tekinn með tvö kíló:
Kókaínmaður
laus úr gæslu
Nýtt félag gengur í ASÍ
Miðstjórn Alþýðusambandsins hefur
samþykkt inngöngu sameinaðs félags
járniðnaðarmanna og vélstjóra. Ekki
hefur verið ákveðið hvað hið sam-
einaða félag á að heita. Það verður
ákveðið á fundi í október.
VERKALÝÐSMÁL
VIRKJUN Stjórn Félags um verndun
hálendis Austurlands harmar þá
óvirðingu sem yfirvöld orku- og
iðnaðarmála, ásamt nú- og
fyrrverandi forsætisráðherra
hafa sýnt þingi og þjóð. Það hafi
þau gert með því að láta eins og
meðferðin á skýrslu Gríms
Björnssonar jarðeðlisfræðings
hafi verið eðlileg og mönnum
sæmandi. Þetta kemur fram í
ályktun frá félaginu.
Stjórn félagsins biður stjórn-
völd þessa lands og Landsvirkjun
að láta af þeim hroka og vald-
níðslu sem hingað til hafi
einkennt meðferð þeirra á
málefnum sem snerta Kára-
hnjúkavirkjun. - sþs
Félag um verndun hálendis:
Segja yfirvöld
sýna óvirðingu
KJÖRKASSINN
Reyna skot í dag
Bandaríska geimferðastofnunin,
NASA, hefur enn á ný frestað geims-
koti geimferjunnar Atlantis. Áætlað
var að skjóta henni á loft í gær.
Ástæðan kvað vera bilun í eldsneyt-
isnemum ferjunnar. Reynt verður að
skjóta Atlantis á loft í dag.
GEIMFERÐIR
PARÍS, AP Nicolas Sarkozy,
innanríkisráðherra Frakklands,
sem gæti orðið forseti Frakk-
lands innan
skamms, kynnti
í gær hugmynd-
ir sínar um
róttækar
breytingar á
Evrópusam-
bandinu.
Hann tók
jafnframt fram
að hann teldi alls
ekki rétt að Tyrkland fengi
inngöngu í sambandið. „Við
verðum að ákveða hverjir eru
Evrópubúar og hverjir ekki,“
sagði hann í ræðu í Brussel í gær.
Hann vill að samþykkt verði
þriggja ára áætlun um „smáan
sáttmála“ sem kæmi í staðinn
fyrir fyrirhugaða stjórnarskrá,
sem felld var í kosningum bæði í
Frakklandi og Hollandi á síðasta
ári. - gb
Innanríkisráðherra Frakklands:
Tyrkir fái ekki
aðild að ESB
NICOLAS
SARKOZY
WASHINGTON, AP Öldungadeild
Bandaríkjanna birti í gær skýrslu
frá leyniþjónustunni CIA þar sem
staðfest er að ríkisstjórn
Saddams Hussein hafði engin
tengsl við hryðjuverkasamtökin
al-Kaída, þvert ofan í það sem
bandarísk stjórnvöld héldu fram
þegar þau færðu rök fyrir
nauðsyn þess að fara í stríð gegn
Írak. Í skýrslunni er einnig
staðfest að Saddam Hussein hafði
ekki yfir neinum gjöreyðingar-
vopnum að ráða, né heldur getu
til að framleiða slík vopn.
Repúblikanar sögðu fátt nýtt í
skýrslunni. Demókratar væru
eingöngu að afla sér atkvæða með
því að tala um hana núna, þegar
styttist í kosningar. - gb
Öldungadeild Bandaríkjanna:
Tengdist ekki
al-Kaída
SADDAM HUSSEIN Bandarísk stjórnvöld
staðfesta loks að hann vildi ekkert með
Al Kaída hafa. FRÉTTABLAÐIÐ/AP