Fréttablaðið - 09.09.2006, Side 10

Fréttablaðið - 09.09.2006, Side 10
10 9. september 2006 LAUGARDAGUR FYRIRSÆTA SKARTAR DEMANTAKÓR- ÓNU Nú stendur yfir sýning gullsmiða og skartgripahönnuða í Moskvu. Fyrir hvaða markhóp ætli þessi demants- prýdda gullkóróna hafi verið gerð? NORDICPHOTOS/AFP SVÍÞJÓÐ Annar hver kjósandi í Sví- þjóð býst við kosningasigri borg- aralegu flokkanna í þingkosning- unum 17. september, að því er fram kemur í nýbirtri könnun viðhorfsrannsóknastofnunarinnar Skop. Könnunin var að vísu gerð áður en það komst í hámæli að starfsmenn Þjóðarflokksins, eins af flokkunum fjórum í kosninga- bandalagi borgaraflokkanna, hefðu gerst sekir um að brjótast inn á innri vef Jafnaðarmanna- flokksins, en þessi niðurstaða er enn ein vísbendingin um að sænskir kjósendur séu farnir að stilla sig inn á að gefa jafnaðar- mönnum frí frá stjórnartaumun- um, sem þeir hafa haldið um í sextíu af síðustu sjötíu árum. Samkvæmt könnuninni, sem vitnað er til á fréttavef Dagens Nyheter, trúa 49 prósent aðspurðra á sigur borgaraflokk- anna, en 45 prósent að vinstri- flokkarnir hafi betur. Hin sex prósentin tóku ekki afstöðu til spurningarinnar. Aldrei hafa fleiri verið á kjör- skrá í þingkosningum í landinu, 6.834.169 manns. Lars Leijonborg, formaður Þjóðarflokksins, var í yfirheyrslu í beinni útsendingu sænska ríkis- sjónvarpsins á fimmtudagskvöld. Þar bað hann sænsku þjóðina afsökunar á tölvunjósnahneyksl- inu, en biðlaði til kjósenda að missa ekki traustið á sér og flokki sínum. Samkvæmt könnunum fjölmiðla á viðbrögðum áhorf- enda þótti Leijonborg komast vel frá yfirheyrslunni. Rétt rúm vika er til kosninga og binda Þjóðar- flokksmenn vonir við að á enda- sprettinum falli þetta leiðindamál aftur í skuggann af eiginlegu kosningamálunum. Og á þeim vígstöðvum virðast jafnaðarmenn eftir sem áður í vörn. Fredrik Reinfeldt, formað- ur Hægriflokksins og forsætis- ráðherraefni borgaraflokkanna, þykir samkvæmt mælingum fjöl- miðla á viðbrögðum fólks hafa staðið sig mun betur en Persson í sjónvarpskappræðum síðustu vikna. Síðast þegar þeir hittust í sjónvarpi, á TV4-stöðinni síðast- liðið miðvikudagskvöld, voru atvinnumál og fleiri höfuðmálefni kosningabaráttunnar í brenni- depli. Persson lýsti þar jafnað- armönnum sem varðhundum velferðarkerfisins en Reinfeldt boðaði nýja atvinnustefnu ríkis- stjórnarinnar undir sinni forystu. Meginkosningaloforð borgara- legu flokkanna er að draga úr atvinnuleysi og að lækka skatta. Þeir Reinfeldt og Persson reyna aftur með sér í sjónvarps- kappræðum í ríkissjónvarpinu SVT á sunnudagskvöld en í gær mættust þeir í útvarpinu. Loka- kappræðurnar fara fram á föstu- dagskvöldið. audunn@frettabladid.is LARS LEIJONBORG Formaður Þjóð- arflokksins bað þjóðina afsökunar á tölvunjósna- hneykslinu. NORDICPHOTOS/AFP REINFELDT OG PERSSON Frá sjónvarpskappræðum keppinautanna um forsætisráð- herrastólinn á miðvikudagskvöld. Samkvæmt mælingum á viðbrögðum áhorfenda þykir Reinfeldt hafa staðið sig betur. NORDICPHOTOS/AFP Annar hver Svíi býst við sigri borgaralegra Helmingur sænskra kjósenda reiknar með sigri borgaralegu flokkanna í þing- kosningunum sem fara fram um næstu helgi. Lars Leijonborg, formaður Þjóð- arflokksins, varði orðstír flokks síns í sjónvarpsyfirheyrslu í fyrrakvöld. Kosningar í Svíþjóð Ákærðir fyrir árás Tveir karlmenn á þrítugsaldri hafa verið ákærðir fyrir líkamsárás sem átti sér stað við Vesturhraun í Hafnarfirði í apríl sl. Mennirnir réðust á karlmann og lömdu hann. Grunur leikur á því að líkamsárásin tengist fíkniefnavið- skiptum. DÓMSMÁL Ferðamaður sat fastur Erlendur ferðamaður var dreginn á land í gær en hann hafði fest bíl sinn í neðra vaði Jökulsárlóns. Vegfarendur aðstoðuðu manninn við að komast á þurrt. LÖGREGLUFRÉTTIR SÁLFRÆÐIÞJÓNUSTA Biðtími eftir sálfræðiþjónustu grunnskóla í Kópavogi er aðeins 1-2 vikur sam- kvæmt upplýsingum frá Tómasi Jónssyni, forstöðumanni sér- fræðiþjónustu grunnskóla í Kópa- vogi. Til samanburðar má geta þess að biðtími eftir sálfræði- þjónustu í Reykjavík er mun lengri og getur skipt mánuðum. Bið eftir sálfræðiþjónustu barna á leikskólaaldri í Kópavogi er um tveir mánuðir að sögn Önnu Karenar Ásgeirsdóttur sérkennslu- fulltrúa og alls bíða 24 börn eftir þjónustu sálfræðinga. „Boðið er upp á stoðþjónustu innan leikskólanna fyrir þau börn sem bíða og þar veita iðjuþjálfar og talmeinafræðingar sérfræðiþjón- ustu.“ Anna Karen segir algengustu ástæðu greiningar grun um seink- aðan mál- eða vitsmunaþroska. „Biðlistar hjá okkur eru ekki það langir að óánægjuraddir heyrist en það er ákveðið áhyggjuefni að sum barnanna bíða áframhaldandi þjón- ustu í kjölfar greininga. Sum bíða þjónustu stofnana eins og Greining- ar- og ráðgjafastöðvar ríkisins en þar getur biðtíminn farið yfir ár.“ Það er tilfinning Önnu Karen- ar að fleiri börn fari í gegnum sálfræðigreiningar nú en áður og til að mæta þessum nýja veru- leika hefur þjónusta inni á leik- skólum verið aukin. - hs Aðeins nokkurra vikna bið eftir sálfræðiþjónustu í grunnskólum í Kópavogi: Mörg bíða frekari greiningar BÖRN AÐ LEIK Tveggja mánaða bið er eftir sálfræðiþjónustu á leikskólum í Kópavogi. �������������������������������������������������� � � � � � � �� �� �� �� �� � �� �� � �������������� �������������� ������������������������������������������������ �������������������������������������� ��������������� Ljubljana ��������� ������������������������� ���� ����� �� �������������� �������� ��������� ����������������������� ������������������������������������ �������������������������������������������������������������������������� �������������������������������������������������������������������� ������������������������������������������� ���������������������� ������������ ���������������� ������������������������������� ��������������������� ���������������������� ������������������� ������������������ �������������������� ����������� ������� ����������� ���������� �������������������������������� ����� ����������������������������������� Réttindalaus á bíl Rúmlega tvítug stúlka var dæmd í tíu mánaða skilorðsbundið fangelsi í gær fyrir að hafa ekið án réttinda á of miklum hraða og hafa gefið upp nafn og kennitölu annarrar konu auk þess sem hún falsaði undirskrift hennar. Stúlkan hefur ekki áður brotið lög. HEIMSÓKN Athafnamaðurinn Steve Forbes er væntanlegur til lands- ins. Forbes, sem er aðaleigandi, forstjóri og ritstjóri viðskipta- tímaritsins Forbes, mun halda fyrirlestur þann 6. febrúar næst- komandi. Einar Bárðarson, umboðsmaður og tónleikahaldari, stendur fyrir komu hans til lands- ins. Fyrirlesturinn er liður í fyrir- lestraröðinni „Stefnumót við leið- toga“. Meðal annarra fyrirlesara í þeirri röð er Mikhail Gorbachev sem mun tala í Háskólabíói þann 12. október. Steve Forbes er forstjóri og stjórnarformaður útgáfurisans Forbes Inc. en það gefur út eitt útbreiddasta viðskiptatímarit í heimi, Forbes. Samanlagt selst það að jafnaði í níu hundruð þús- und eintökum í Bandaríkjunum og nær til um fimm milljóna les- enda á heimsvísu á átta tungumál- um. Forbes sóttist eftir útnefningu Repúblikanaflokksins til forseta- framboðs árin 1996 og 2000 án árangurs. Í fyrra skiptið tapaði hann fyrir Bob Dole en í það seinna fyrir George W. Bush, núverandi Bandaríkjaforseta. Forbes hefur einnig verið einn helsti ráðgjafi bandarískra stjórn- valda í málefnum fjölmiðla. - sþs Fyrirlestraröðin „Stefnumót við leiðtoga“ heldur áfram: Steve Forbes til landsins STEVE FORBES Forbes hefur tvisvar sóst eftir útnefningu Repúblikanaflokksins til forsetaframboðs í Bandaríkjunum. Í bæði skiptin tapaði hann, í það seinna fyrir núverandi Bandaríkjaforseta, George W. Bush. VINNUMARKAÐUR Gylfi Arnbjörns- son, framkvæmdastjóri Alþýðu- sambands Íslands, segir að málflutningur ASÍ sé í raun efnislega samhljóða formönnum sautján aðildarfé- laga Starfsgreina- sambands Íslands. Formennirnir lýstu því yfir í síðustu viku að málflutningur ASÍ um afnám tolla og frjálsan innflutning landbúnaðar- afurða væri ekki í anda þessara aðildarfélaga. Gylfi bendir á að ASÍ hafi lagt til öflugar mótvæg- isaðgerðir sem nemi sex milljörð- um króna.Formennirnir hafi hins vegar ekki aflað upplýsinga um það sem starfsmenn í Reykjavík séu að gera. - ghs Framkvæmdastjóri ASÍ: Erum efnislega sammála GYLFI ARN- BJÖRNSSON SAMGÖNGUR Nýr ferðakostur hefur verið tekinn í notkun innan Reykjavíkur og binda eigendur vonir við að hann verði til þess að milljarðar sparist í vegafram- kvæmdum. Fyrirtækið nefnist Skutlan og er markmið þess að bjóða ferðir innan Reykjavíkur fyrir aldraða og öryrkja, virka daga frá klukkan tíu á morgnana til hádegis á 500 krónur. Einar Ágústsson, starfsmaður fyrirtækisins, segir að með þessu léttist verulega á álagi á gatna- kerfinu þar sem fleiri en einum farþega verði ekið í hverri ferð. -kdk Nýr ferðakostur fyrir aldraða: Gæti sparað milljarða króna

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.