Fréttablaðið - 09.09.2006, Side 12
9. september 2006 LAUGARDAGUR12
Umsjón: nánar á visir.is
KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf]
ICEX-15 6.095 +1,03% Fjöldi viðskipta: 431
Velta: 5.186 milljónir
HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: Actavis 65,00 +0,00% ... Alfesca
4,76 +1,71% ... Atlantic Petroleum 572,00 +0,35% ... Atorka
6,30 +1,61% ... Avion 33,20 -0,90% ... Bakkavör 54,80 +1,67%
... Dagsbrún 4,95 +0,00% ... FL Group 20,50 +11,41% ... Glitnir
19,80 +0,51% ... KB banki 834,00 +0,48% ... Landsbankinn 25,60
+1,19% ... Marel 78,00 +0,65% ... Mosaic Fashions 17,80 +1,14%
... Straumur-Burðarás 16,70 +1,21% ... Össur 120,00 -0,83%
MESTA HÆKKUN
Tryggingamiðstöðin +12,16%
FL Group +11,41%
Alfesca +1,71%
MESTA LÆKKUN
Avion -0,90%
Össur -0,83%
Flaga -0,76%
Ójöfnuður í stúkunni
Stóru fyrirtækin, sem styðja KSÍ, fá slatta af miðum
á landsleiki en þetta er alþekkt aðferð. Þetta er
einnig algengt þegar haldnir eru tónleikar og ann-
ars konar menningarviðburðir. Miðunum er útbýtt
til starfsmanna og viðskiptavina fyrirtækjanna en
þar með er ekki sagt að þessir aðgöngumiðar séu
nýttir til fulls. Ónefndur viðskiptabanki fékk um sex
hundruð miða á Danmerkurleikinn í fótbolta, sem
gekk illa að koma út því á leikdag sátu bankamenn
uppi með eitt hundrað stykki og fengu gestir og
gangandi miða fyrir ekki neitt. Þá heyrast sögur
af því að forríkir kúnnar hringi í bankana sína og
heimti frímiða á fótboltaleiki, tónleika og aðra
atburði sem bankarnir láta þá hafa með glöðu
geði, enda greinilega fjandanum erfiðara að koma
hnossgætinu út. Á sama tíma slæst sauðsvartur
almúginn um hvern lausan miða sem í boði er á
stórleiki og borgar fullt verð fyrir. Heimur
versnandi fer kynni einhver að segja.
Norður og niður
„Við teljum að virði VÍS liggi norðan megin við 53
milljarða... „ Greinandi hjá Landsbankanum grípur
til höfuðáttanna í lýsingu sinni á verðmæti VÍS sem
er í eigu fjármálaþjónustufyrirtækisins Existu. Hér er
sennilega átt við að virði VÍS sé
ekki undir 53 milljörðum
króna. Hins vegar er því ekki
að neita að greining Lands-
bankans hefur unnið mjög
þarft verk við að gefa út jafn
ítarlega greiningu á Existu og
raun ber vitni. Landsbankinn
kemst að þeirri niðurstöðu að
útboðsgengi Existu sé hátt og
þurfi félagið að sýna góða arð-
semi til að standa undir því.
Peningaskápurinn ...
Mjólka hefur brugðist við óskum
um að aðgreina betur framleiðslu
sína frá vörum annarra framleið-
enda. Á næstunni munu því feta-
ostar frá Mjólku sem seldir eru í
glerkrukkum vera seldir með
breyttum merkingum. Osta- og
smjörsalan hafði gert athuga-
semdir við umbúðirnar og sagði
þær gerðar til að villa um fyrir
neytendum.
Ólafur M. Magnússon, fram-
kvæmdastjóri Mjólku, segir það
þekkt í viðskiptum að vörur séu
boðnar í svipuðum umbúðum og
samkeppnisaðilanna, enda stjórn-
ist kauphegðun neytenda að miklu
leyti af vana. Mjólka hafi þó fallist
á að það hafi verið ákveðin hætta á
ruglingi í þessu tilfelli og því hafi
verið tekin ákvörðun um að breyta
umbúðunum. „Það er í þágu neyt-
enda að það fari ekki á milli mála
hvenær þeir eru að kaupa feta frá
Mjólku og hvenær þeir eru með
innflutta eða ríkisstyrkta vöru í
höndunum,“ segir Ólafur. „Við
höfum fundið fyrir miklum vel-
vilja frá neytendum og það er ekki
okkar vilji að rugla þá.“ - hhs
NÝJAR OG GAMLAR MERKINGAR
Mjólka breytir Feta
Ísland er í 9. sæti á lista yfir efna-
hagslegt frelsi þjóða. Í árlegri
skýrslu um efnahagsfrelsi í heimin-
um, sem Rannsóknarmiðstöð um
samfélags- og efnahagsmál (RSE)
gaf út í gær, kemur fram að frelsi af
þessum toga er mun áhrifaríkara en
ríkisstyrkt þróunaraðstoð við að
hjálpa fátækum þjóðum úr fátækt.
Þá kemur fram í niðurstöðum
rannsóknar sem fylgir skýrslunni
að þróunaraðstoð hafi ekki jákvæð
áhrif á hagvöxt meðal fátækustu
þjóða heims. Efnahagslegt frelsi
hafi aukist síðastliðin 25 ár og hafi
það haft mikil áhrif á velmegun
almennt. Sé litið til efnahagslegs
frelsis komi í ljós að hagur fátæk-
ari þjóða vaxi mun hraðar en ríkra
og við slíkar aðstæður fari því
fjarri að þær séu fastar í vítahring
fátæktar.
Hong Kong er í efsta sæti listans
með mesta efnahagslega frelsið og
8,7 af 10 í einkunn. Singapúr er í 2.
sæti með 8,5 stig en Nýja-Sjáland,
Sviss og Bandaríkin deila þriðja til
fimmta sæti með einkunnina 8,2.
Flestar þeirra þjóða sem fengu
lægsta einkunn eru frá Afríku,
Suður- og Mið-Ameríku og fyrrum
kommúnistaríkjunum.
Ísland, sem var í 13. sæti á list-
anum í fyrra, fékk einkunnina 7,9 af
10 mögulegum og hækkar um 0,2
stig á milli ára. - jab
BÖRN AÐ LEIK Ísland er í níunda sæti á
lista RSE yfir efnahagslegt frelsi í heimin-
um, sem birtur var í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
Efnahagslegt frelsi eykst hér
Lífeyrissjóður starfsmanna ríkis-
ins (LSR), stærsti lífeyrissjóður
landsins, skilaði á fyrri hluta árs-
ins 22,8 prósenta nafnávöxtun á
ársgrundvelli. Þetta samsvarar
raunávöxtun upp á 10,2 prósent.
Raunávöxtun A-deildar nam
11,3 prósentum en 10,6 prósentum
í B-deild, sem var lokað fyrir
nýjum sjóðfélögum í árslok 1996
og er stærri deildin í eignum talið.
Heildareignir LSR námu tæpum
258 milljörðum króna í lok júní og
hækkuðu um 13,3 prósent frá ára-
mótum eða um þrjátíu milljarða
króna. - eþa
LSR skilaði 23% nafnávöxtun
Hlutabréf í FL Group og Lands-
bankanum hafa hækkað mest
allra hlutabréfa frá því í byrjun
ágúst, um það leyti er innlendur
hlutabréfamarkaður náði lægsta
gildi á árinu. Hafa bréf FL hækk-
að um tæpan þriðjung en bréf
Landsbankans hækkað um 24 pró-
sent á þeim tíma.
Brét FL Group hækkuðu um
tæp tólf prósent í gær í yfir 2,2
milljarða veltu og endaði gengið í
20,5 krónum á hlut. Þessi gríðar-
lega hækkun jók markaðsvirði
félagsins um tæpa sautján millj-
arða króna.
Bréf allra Úrvalsvísitölu-
félaga hafa hækkað á tímabilinu
frá byrjun ágúst nema í Dags-
brún þar sem þau hafa lækkað
um sjö prósent. Gengi í KB banka
og Glitni hefur hækkað um tæp
átján prósent og um sextán pró-
sent í Alfesca og Bakkavör.
Sjálf Úrvalsvísitalan hefur
stigið upp um fimmtán prósent frá
því í byrjun ágúst en það jafngild-
ir yfir átta hundruð stiga hækkun.
Stóð hún við lokun markaða á
föstudaginn í 6.095 stigum.
Ýmislegt kann að skýra þessa
miklu stemningu á markaði. Bank-
arnir skiluðu mjög góðum upp-
gjörum á fyrri hluta ársins og þá
eru þeir komnir langt á veg með
endurfjármögnun á lánum sem
koma til greiðslu árið 2007. - eþa
Landsbankinn og FL
Group hækka mest
Gengi FL Group hækkaði um 11,4 prósent í gær.
BREYTING Á GENGI ÚRVALS-
VÍSITÖLUFÉLAGA FRÁ 1. ÁGÚST
FL Group 32,3%
Landsbankinn 24,2%
KB banki 18,8%
Glitnir 18,6%
Alfesca 16,1%
Bakkavör 15,9%
Össur 11,6%
Straumur 6,3%
Actavis 5,7%
Mosaic Fashions 5,3%
Marel 4,8%
Atorka Group 4,1%
Avion Group 2,5%
Atlantic Petroleum 2,0%
Dagsbrún -7,0%
Mikil eftirspurn var eftir bréfum í
Exista í gær þegar fyrsti áfangi í
skráningu félagsins á markað fór
fram að því er fram kemur í Veg-
vísi Landsbankans.
Fyrirfram var gefið út að verð
hlutanna yrði á bilinu 19,5 til 21,5
krónur og í boði voru 1,38 til 2,76
prósent í félaginu. Vegna mikils
áhuga fór svo að allir hlutirnir sem
voru í boði voru seldir á 21,5 krón-
ur, alls 300 milljón hlutir. Söluand-
virðið nam því 6,45 milljörðum
króna. Sala til almennings og
starfsmanna Exista mun fara fram
á sama verði eða 21,5 krónur á hlut
og verða samtals 1,2 prósent í
félaginu seld á 2,8 milljarða króna.
Alls innleysir Kaupþing banki því
10,6 milljarða króna á þriðja árs-
fjórðungi með sölu bréfa í Exista,
þegar með er talin sala á 6,1 pró-
sents eignarhluta í Exista til níu
lífeyrissjóða í byrjun ágúst. - hhs
Exista-bréf ruku út
MARKAÐSPUNKTAR
Heildarútlán Íbúðalánasjóðs námu 3,2
milljörðum króna í ágúst. Þetta er tals-
verður samdráttur frá júlí en þá námu
heildarútlán sjóðsins 5,1 milljarði króna.
Seðlabanki Japans hefur ákveðið að
halda stýrivöxtum bankans óbreyttum í
0,25 prósentum. Almennt var búist við
þessari ákvörðun en stýrivextir í landinu
voru hækkaði um 25 punkta í júlí eftir
sex ára viðvarandi núllvaxtastefnu.
Matsfyrirtækið Standard & Poor´s (S&P)
hefur lækkað lánshæfismat norska
tryggingafélagsins NEMI úr BBB í BBB-.
Í Vegvísi greiningardeildar Landsbank-
ans segir að ekki sé ólíklegt að lægri
lánshæfiseinkunn dragi úr möguleikum
NEMI til vaxtar þar sem einhverjir við-
skiptavinir vilji síður tryggja sig hjá félagi
með lágt lánshæfi.
HANFA, króatíska fjár-
málaeftirlitið, fer nú
yfir nýtt tilboð banda-
ríska lyfjafyrirtækisins
Barr Pharmaceuticals í
króatíska samheitalyfja-
fyrirtækið PLIVA. Með
tilboði sínu svarar Barr
hækkuðu tilboði Acta-
vis sem lagt var fram í
síðustu viku.
Bandaríska lyfjafyrirtækið Barr
Pharmaceuticals hefur sett fram
nýtt tilboð í allt hlutafé króatíska
samheitalyfjafyrirtækisins Pliva.
Í tilkynningu Barr kemur fram
að ekki verði greint frá því hvað
felist í tilboðinu fyrr en HANFA,
fjármálaeftirlit Króatíu, hafi farið
yfir boðið og veitt samþykki sitt.
Er þetta gert að kröfu fjármálaeft-
irlitsins.
Nokkuð ljóst er þó talið að fyrir-
tækið hefði ekki farið að leggja
fram nýtt tilboð nema að annað
hvort jafna eða fara hærra en síð-
asta boð Actavis sem birt var í síð-
ustu viku. Þá hækkaði Actavis boð
sitt í 795 kúnur á hlut, eða um 176
milljarða króna. Áður hafði Barr
boðið 743 kúnur á hlut, eða sem
nemur tæpum 165 milljörðum
íslenskra króna.
„Við höfum frá upphafi sagst
staðráðin í að klára þessi kaup,“
segir Bruce L. Downey, forstjóri
og stjórnarformaður Barr, og
áréttar að víst séu mikil samlegð-
aráhrif af samruna fyrirtækisins
við Pliva, ólíkt því „sem keppi-
nautur okkar hefur haldið fram“.
Þá segir hann ljóst að hag Pliva til
lengri tíma litið sé best komið í
samruna Barr Pharmaceuticals og
það muni hluthafar sjá.
Halldór Kristmannsson, fram-
kvæmdastjóri innri og ytri sam-
skipta Actavis, býst við því að
HANFA aflétti leynd af tilboði
Barr fljótlega eftir helgina og þá
muni verða tekin ákvörðun um
næstu skref þar á bæ. „En þangað
til bíðum við bara, enda vitum við
ekki hvað felst í nýju boði Barr,“
segir hann. „En að minnsta kosti
er ljóst að þeir ætla ekki að draga
sig úr slagnum.“
Actavis hefur þegar tryggt sér
tæplega 21 prósents eignarhlut í
Pliva og þykir þar með hafa nokk-
uð forskot í kapphlaupinu um
hvort fyrirtækið verði á undan að
tryggja sér meirihluta bréfa. Þá á
króatíska ríkið um 18 prósenta
hlut í Pliva, en talið er að sá hlutur
verði ekki seldur fyrr en ljóst
verður hvort fyrirtækið verður
ofan á. Í gær sendi einnig stjórn
Pliva frá sér tilkynningu þar sem
síðasta yfirtökutilboð Actavis í
fyrirtækið er sagt endurspegla
sanngjarnt verðmat.
Gengi bréfa í Pliva tvöfaldast
frá áramótum og hækkaði um 0,5
prósent í gærmorgun. Stendur
gengi þeirra nú í 840 kúnum á hlut,
eða sex prósentum yfir tilboði Act-
avis. olikr@frettabladid.is
AUGLÝSING ACTAVIS Í KRÓATÍU Svona
lítur út heilsíðuauglýsing frá Actavis sem
birtist í króatískum dagblöðum fyrir
helgi.
Barr leggur fram nýtt til-
boð í Pliva á móti Actavis
Í APÓTEKINU Fjandsamlega yfirtakan sem Actavis vinnur nú að á króatíska samheitalyfjafyrirtækinu Pliva er af þeirri stærðargráðu
að vekur heimathygli. Actavis slæst við bandaríska lyfjafyrirtækið Barr Pharmaceuticals um bitann. Með Pliva innanborðs verður
annað hvort Barr eða Actavis að þriðja stærsta samheitalyfjafyrirtæki í heimi.