Fréttablaðið - 09.09.2006, Síða 18
9. september 2006 LAUGARDAGUR18
„Tobba er mikil fagmanneskja,
hörkudugleg og afkastamikil svo
mörgum finnst nóg um - er góð að
hrista upp í kerfum sem hafa á
stundum verið í of miklum hæga-
gangi,“ segir Þorgerður Katrín
Gunnarsdóttir, menntamálaráð-
herra, um mann vikunnar að
þessu sinni, Þorbjörgu Helgu
Vigfúsdóttur,
borgarfulltrúa
Sjálfstæðis-
flokksins. Í vik-
unni var hún
kjörin formað-
ur nýstofnaðs
leikskólaráðs,
sem var mikið
gagnrýnt af
minnihluta
borgarfulltrúa í
borgarstjórn.
Þá hefur hún
gagnrýnt hvern-
ig R-listinn hélt
utan um fjár-
mál Strætó bs.
Ókunnugir
gætu haldið að
Þorbjörg Helga
hefði fetað sín
fyrstu fótspor í
stjórnmálum
fyrir mörgum
árum. Hún er
fim í átökum
við pólitíska
andstæðinga
og hefur skýra
pólitíska sýn,
sem byggir á
hugmynda-
fræðilegum
grunni.
En svo er
nú alls ekki.
Það var ekki
fyrr en Þor-
björg flutti
heim frá
Frakklandi
árið 2001, þá
tveggja barna
móðir, að hún
fór að líta í
kringum sig
og máta skoð-
anir sínar við stefnur stjórn-
málaflokkanna á Íslandi. Hún er
með meistarapróf í menntunar-
sálfræði og hafði mikinn áhuga á
skólamálum. Þar sem sá mála-
flokkur er nánast allur á hendi
ríkis og sveitarfélaga lá beinast
við hjá Þorbjörgu að taka þátt í
stjórnmálum til að koma hug-
myndum sínum á framfæri.
Og frami hennar hefur verið
undraskjótur. Eftir heimkomuna
starfaði hún sem verkefnastjóri
átaksverkefnisins Auður í krafti
kvenna við Háskólann í Reykja-
vík. Samhliða kenndi hún við
stjórnendaskóla sama háskóla og
í viðskiptadeild.
Fljótlega komst hún að því að
hugmyndir hennar færu best
saman við stefnu Sjálfstæðis-
flokksins. Henni var stillt upp í
19. sæti á framboðslista flokks-
ins fyrir borgarstjórnarkosning-
arnar vorið 2002 þegar Björn
Bjarnason var þar í forystu. Tók
hún virkan þátt í baráttunni sam-
hliða störfum í Háskólanum í
Reykjavík.
Þetta var fyrsta skrefið í átt
að því að Þorbjörg helgaði sig
alfarið stjórnmálum. Hún varð
pólitískur ráðgjafi Þorgerðar
Katrínar í menntamálaráðuneyt-
inu sumarið 2003, bauð sig fram í
stjórn Sambands ungra sjálf-
stæðismanna um haustið og varð
aðalmaður í stjórn Orkuveitu
Reykjavíkur stuttu síðar. Í SUS
naut hún trausts til að gegna
stöðu fyrsta varaformanns, sem
er óvenjulegt fyrir einstakling
sem ekki hefur tekið þátt í ung-
liðastarfinu formlega áður. Þá
var hún einn af stofnendum vef-
ritsins Tíkin.is og hefur skrifað
mikið á þann vef.
„Ég mundi segja að hún væri
hófsamur frjálshyggjumaður,“
segir Friðjón R. Friðjónsson sem
gegndi starfi annars varafor-
manns á sama tíma og Þorbjörg í
SUS. „Hún er ekki á móti öllum
ríkisafskiptum. En hún telur að
einkaaðilar geti leyst flest verk-
efni betur en hið opinbera. Því
nálgast hún öll pólitísk álitamál á
þeim grunni.“
Úr Hvassaleitisskóla lá leið
Þorbjargar í Verzlunarskóla
Íslands. Hún var í stórum vina-
hópi en gaf sér ekki mikinn tíma
til að sinna stjórnarstörfum á
vegum nemendafélagsins. Hún
var ásamt vinunum í klúbbnum
Hjemmelavet, sem sá til þess að
félagsmenn nærðu sig á heima-
löguðu nesti.
„Hún er skemmtileg, hlátur-
mild og heiðarleg,“ segir Gísli
Marteinn Baldursson, sem einnig
er borgarfulltrúi Sjálfstæðis-
flokksins og var samtíða Þor-
björgu í Verzló. „Hún er með
allra duglegustu manneskjum
sem ég þekki. Alls staðar þar sem
hún hefur látið að sér kveða,
hefur munað verulega um hana.
Samstarfsfólk ber virðingu fyrir
henni og þeir sem hún stjórnar
líka.“
Allir viðmælendur Frétta-
blaðsins eru sammála um að Þor-
björg Helga eigi auðvelt með að
umgangast fólk og henni haldist
vel á vinum, sem eru mýmargir.
Gísli Marteinn segir hana bein-
línis reka vinahópana - hún held-
ur þeim saman. Hún býður gjarn-
an í partí, mat og miðlar málum
þegar á þarf að halda.
Undir það tekur Hallbjörn
Karlsson, verkfræðingur og eigin-
maður Þorbjargar. „Hennar vina-
hópur er alltaf að stækka en minn
minnkar. Og þetta á ekki bara við
um vinina heldur stórfjölskyld-
una. Hún er dugleg að rækta
tengslin.“
Hallbjörn og Þorbjörg Helga
eiga strákana Atla, 6 ára, og
Karl, sem er að verða ellefu ára.
Eiginmaðurinn
segir hana
mikið fyrir
fjölskyldulífið.
Árið 1998 héldu
þau ásamt eldri
stráknum til
Bandaríkjanna
til frekara
náms. Bjuggu
þau í Norður-
Kaliforníu og
Seattle.
Síðasta árið
fóru þau til
Fontainbleau
í Frakklandi,
rétt sunnan
við París, og
komu heim
2001 eins og
áður sagði.
Sinnti Þor-
björg drengj-
unum í Frakk-
landi, en Atli
var þá
nýfæddur, á
meðan Hall-
björn bætti
við sig frekari
menntun.
Hallbjörn
starfaði fyrst
eftir heim-
komuna á fyr-
irtækjasviði
Kaupþings
banka. Um
miðjan júní
2002 keypti
hann ásamt
Árna Hauks-
syni 55 pró-
sent í Húsa-
smiðjunni, en
Baugur keypti
45 prósent. Um
tveimur árum seinna seldu þeir
félagar hlut sinn með ágætum
hagnaði.
Þó að mikið sé að gera hjá Þor-
björgu, og kvöldfundirnir oft
margir, gefur hún sér alltaf tíma
fyrir strákana sína. Hallbjörn
segir að hún mætti alveg eiga
þess kost oftar að elda á kvöldin,
enda sé hún mjög góður kokkur.
Undir það taka vinir hennar sem
ósjaldan er boðið í veislu, og
skiptir þá engu máli hvort um
stórsteikur er að ræða eða létt
snarl.
„Hún Tobba er hlý, skemmti-
leg og skarpgreind. Hún er ávallt
glöð og er fljót að finna út jákvæð-
ar hliðar sem og sóknarfæri í
hinum ólíkustu málum. Hún er
með einstaka nærveru og er mik-
ill vinur vina sinna, í blíðu sem
stríðu,“ segir Þorgerður Katrín.
Þetta trygglyndi hefur líka
reynst henni vel í pólitíkinni. Það
vantaði ekki vinina þegar kom að
því að Þorbjörg þurfti að kljást
við samherja í prófkjöri Sjálf-
stæðisflokksins fyrir sveitar-
stjórnarkosningar í vor. Skipti þá
máli að hafa gott fólk í kringum
sig. Sóttist hún eftir fjórða sæti á
framboðslistanum og hafnaði í
því sjötta. Um tíma leit út fyrir
að hún næði fimmta sætinu en
Júlíus Vífill Ingvarsson tók fram-
úr á endasprettinum. Munaði rétt
um 200 atkvæðum, sem er ekki
mikið af tólf þúsund atkvæðum.
Þykir þetta afburðagóð niður-
staða eftir ekki lengri tíma í
stjórnmálum.
Þessi árangur næst ekki nema
vegna þess að Þorbjörg Helga
Vigfúsdóttir leggur sig alla fram
í því sem hún tekur sér fyrir
hendur. Skiptir þá engu máli
hvort um sé að ræða fjölskyldu,
vini eða pólitísk verkefni.
MAÐUR VIKUNNAR
Véfengir ríkisrekstur
ÞORBJÖRG HELGA VIGFÚSDÓTTIR
BORGARFULLTRÚI
������������������������
�������������������
��������������������������������������������������������
�������������������������������������������
��������������������������������������������������
������������ �������������� �����������
������������������
��������������������������
Fyrst þú ert að lesa þetta þá hefurðu
fengið Fréttablaðið. En til vonar
og vara skaltu klippa þetta símanúmer
út og hringja í það ef Fréttablaðið
kemur einhverntímann ekki.
550 5000
Ekkert blað?
- mest lesið
Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir
Starf: Borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins
Menntun: Meistarapróf
í menntunarsálfræði
Fæðingardagur: 5. september 1972
Maki: Hallbjörn Karlsson
Börn: Karl Ólafur fæddur 1995 og
Atli Freyr fæddur 2000.