Fréttablaðið - 09.09.2006, Side 20
20 9. september 2006 LAUGARDAGUR
■ FÖSTUDAGUR, 1. SEPTEMBER
Dularfull hækkun
Í Lyfju við Lágmúla keypti ég nik-
ótíntyggjó. Pakkinn hafði hækkað
um 500 kall frá því síðast.
Ég spurði af hverju?
Afgreiðslustúlkan sagðist halda
að hækkunin stafaði af lækkun á
gengi íslensku krónunnar.
Ég rifjaði upp að á síðustu
vikum hefði krónan hækkað heil-
mikið gagnvart evru og dollara.
Þá sagðist hún ekki kunna neina
skýringu, enda væri verðlagning
ekki hennar deild.
Hátíðisdagur. Við Sólveig erum
orðin tómstundabændur á ný.
Fórum út að borða í Bændahöllina
til að fagna því tilefni. Finnur og
Fanney, Líney og Óli, Sólveig og
Þráinn. Bolholtsbændur. Við
munum gefa orðinu samyrkjubú
nýja merkingu.
Austur á Rangárvöllum stend-
ur ofurlítið kot á bakka Ytri-Rang-
ár, miðja vegu milli Hellu og Heklu
og heitir Bolholt. Þar á hugurinn
heima.
■ LAUGARDAGUR, 2. SEPTEMBER
Óopinber opinber þjónusta
Hugsaði um pólitík. Niðurstaðan
er sú að ég er sennilega anarkisti,
stjórnleysingi. Óháð því hvernig
kosningar fara er ég í stjórnar-
andstöðu.
Mér rennur kalt vatn milli
skinns og hörunds þegar ég heyri
síendurtekið að við þurfum „mið-
læga leyniþjónustu“ - aðallega til
að vera á verði gegn fíkniefnasöl-
um. Ég hélt við værum með „mið-
læga“ fíkniefnalögreglu og „mið-
læga“ rannsóknarlögreglu sem
þarf ekki að ganga í löggubúning-
um fyrir utan „miðlægan“ ríkis-
lögreglustjóra, það er nógu leyni-
leg lögregla fyrir mig.
Ég get alls ekki séð að það þurfi
meiri leyniþjónustu eða meira
pukur á vegum ríkisins. Ráðherr-
ar og þingmenn ættu þvert á móti
að beita sér gegn leynimakki, gera
upplýsingar aðgengilegar og
temja sér sannsögli og hreinskilni.
Burt með pukrið og leynimakkið.
Það þarf ekki nema gripsvit til
að sjá að „leyni“-þjónusta getur
aldrei flokkast sem „opinber“
þjónusta.
Þetta hlýtur að vera hugsað
sem „óopinber“ „opinber“ þjón-
usta.
Vald er áfengt, það svíf-
ur á þá sem með valdið
fara, og menn þola
vímuna misvel - en
víman breytir
öllum.
Ég er reyndar
búinn að fá leið á
því að vera í and-
stöðu við sömu
stjórnina öll
þessi ár og
hlakka til að fá
nýja stjórn til að fá til-
breytingu í andstöð-
una.
■ SUNNUDAGUR, 3. SEPTEMBER
Tvöfaldur sunnudagur
Okkur var boðið í sunnudagssteik
til vinafólks. Þessa sunnudags-
steik verður erfitt að toppa, því að
á borðum var bæði hryggur og
læri eins og tveimur sunnudögum
hefði slegið saman á matborðinu.
■ MÁNUDAGUR, 4. SEPTEMBER
Byssur sem skjóta sjálfar
KB-banki og fyrirtæki sem heit-
ir Eskimo Group ehf. hafa tekið
sig saman um að ofsækja mig
með því að senda mér aftur
og aftur innheimtubréf
og krefjast þess að
ég borgi
þeim
ákveðna
fjárupphæð
ásamt vöxtum
og vanskila-
kostnaði svo að
ekki þurfi að
koma til frekari
innheimtuað-
gerða.
Gallinn á þessu
er sá að ég hef
aldrei stofnað til
þeirrar skuldar sem þessir aðilar
leggja svo hart að sér - og mér -
við að innheimta. Ég hef aldrei á
ævi minni verslað með eða við
Eskimóa. (Skrýtið nafn „Eskimo
Group“. Væri „Inuit Group“ ekki
nútímalegra?).
Ég hef haft samband við bæði
KB-banka og forsvarsmanneskju
hjá Eskimo Group og beðist undan
þessum rukkunum. Ég hef prófað
að biðja mjúklega um frið og ég
hef líka prófað að gera mig ljótan
í röddinni og hótað að vekja upp
lögfræðing og senda hann á KB-
banka og Eskimo Group og draga
fyrir dómstóla vegna tilrauna til
að kúga fé af saklausum manni.
Manneskjurnar sem ég tala við
í síma biðjast afsökunar og lofa
öllu fögru, en svo líða nokkrir
dagar ný innheimtubréf halda
áfram að bera og hótanirnar verða
skuggalegri og skuggalegri.
Hér í eina tíð hefði þetta verið
hlægilegur misskilningur sem
hefði verið leiðréttur með einu
símtali. En eftir að tölvur komu til
sögunnar geta einföldustu mál
orðið ákaflega snúin. Einhvern
tímann var sagt: Byssurnar skjóta
ekki sjálfar. Og þá var átt við að
áhöld bera ekki siðferðislega
ábyrgð heldur þeir sem beita
þeim.
Sem minnir mig á sprenghlægi-
lega grein sem ég las nýverið í
Fréttablaðinu eftir Ragnar Hall
hæstaréttarlögmann sem vildi
meina að olíuforstjórarnir bæru
ekki ábyrgð stórþjófnaði olíufyrir-
tækjanna með ólöglegu verð-
samráði - heldur væri glæpur-
inn einvörðungu á ábyrgð
fyrirtækjanna; forstjór-
arnar væru bara í vinnu
þarna eins og afgreiðslu-
stúlkan í Lyfju.
Nú bíð ég spenntur
eftir því að sjá hvaða
fyrir-
tæki
á Íslandi
verður fyrst
dæmt í fang-
elsi.
Skyldu Solla og
Kiddi fá að heimsækja
Shell í tugthúsið?
Skyldu handhafar forseta-
valds veita Esso uppreist æru?
Vísindamaður og hvít mús
Loforð sem gefin eru í léttúð koma
manni í koll þegar þau kalla eftir
efndum. Suður í Afríku í 40 stiga
hita í vetur sagði ég Jóni Ársæli að
honum væri velkomið að taka upp
viðtal við mig - seinna. Nú vill Jón
Ársæll meina að „seinna“ sé runn-
ið upp og hann mætti hjá mér í dag
ásamt Bjarna Fel jr. myndatöku-
manni.
Ég er farinn að líta á sjálfan
mig sem sam- bland af
hvítri mús
og vísinda-
manni.
Vísinda-
maðurinn
í mér
rannsak-
ar
músina og músin vísindamanninn.
Þessar rannsóknir fara fram fyrir
opnum tjöldum. Manneskja að
skoða sjálfa sig og sálina í sér.
Ég hef ekki upp á neitt að bjóða
nema sjálfan mig. Allir velkomn-
ir.
■ ÞRIÐJUDAGUR, 5. SEPTEMBER
Afafélag - ekki foreldrafélag
Enn var haldið áfram upptökum.
Ég var eiginlega lúinn þegar þessu
loksins lauk. Fór og sótti Andra og
Sollu og eldaði hakkabuff.
Síðan var námsefniskynning í
Ísaksskóla fyrir forráðamenn
barnanna.
Það var eins og færa ætti blóð-
fórn þegar minnst var á að ein-
hver gæfi kost á sér í stjórn for-
eldrafélagsins.
Einhver leit bænaraugum á
mig, en ég setti upp steinandlitið.
Ég myndi hugsanlega gefa kost
á mér í stjórn afafélags. Foreldra-
félagsvaktina verða foreldrar
sjálfir að standa - eins og þeirra
foreldrar á undan þeim.
■ MIÐVIKUDAGUR, 6. SEPTEMBER
Virðing fyrir Dönum
Horfði á landsleikinn. Ég hef
býsna oft séð Íslendinga
tapa fyrir Dönum og lét
það ekki fara í taugarnar
á mér. Leikaðferðin var
svipuð og í gamla: Allir
í vörn og ef einhver
fær boltann á hann
að gefa strax á
Rikka (Ríkarð
Jónsson). Nema
hvað nú er Eiður
Guðjohnsen
kominn í stað
Rikka.
Það var ekki
að sjá að íslensku
landsliðsmenn-
irnir vissu að
Íslendingar eru að
verða búnir að kaupa
alla skapaða hluti í
Damörku nema einn
pylsuvagn á Ráðhústorg-
inu og Litlu hafmeyjuna.
Þeir virtust bera ótta-
blandna virðingu fyrir
andstæðingunum, nema
Jóhannes Karl sem var
kominn með gult spjald
upp á vasann eftir
þrjár mínútur.
■ FIMMTUDAGUR, 7. SEPTEMBER
Að koma fram nakinn
Ég held það hafi verið Egill vinur
minn Stuðmaður sem söng hérna
um árið að allt væri til vinnandi
fyrir frægðina - nema að koma
fram nakinn.
Þessa skynsamlegu reglu braut
ég í dag.
Jón Ársæll hefur ótrú-
lega fortöluhæfileika.
Guði sé lof að hann er
ekki í pólitík.
Miðlægt pukur og leynimakk
Í Dagbók Þráins Bertelssonar er sagt frá dularfullri verðhækkun, opinberu pukri,
tvöföldum sunnudegi og byssum sem skjóta sjálfar. Einnig er minnst á fyrirtækjafangelsi,
hakkabuff og foreldrafélög.
Kæra
Dagbók
Þráinn Bertelsson skrifar
Tímastjórnun og skipulagning
hefst 12. sept.
Greining ársreikninga
hefst 18. sept.
Excel 2000 II –- fjármál og rekstur
hefst 26. sept.
STJÓRNUN OG FJÁRMÁL
www.endurmenntun.is
sími 525 4444
Sæktu þér þekkingu –
sæktu þér aukinn styrk
Nánari upplýsingar og skráning
í síma 525 4444 og á
endurmenntun.is
AÐ VAXA OG DAFNA
Endurmenntun uppfyllir þarfir fólks hvort sem það vill auka möguleika sína á vinnu-
markaði, styrkja sig í starfi, svala forvitninni eða einfald lega skemmta sér konunglega.
AUKA
NÁMSKEIÐvegna mikillaraðsóknar