Fréttablaðið - 09.09.2006, Síða 24

Fréttablaðið - 09.09.2006, Síða 24
 9. september 2006 LAUGARDAGUR24 timamot@frettabladid.is Á þessum degi árið 1956, eða fyrir akkúrat fimmtíu árum, kom Elvis Presley fram í banda- ríska sjónvarpsþætt- inum Toast of the Town hjá Ed Sullivan. Presley, sem þá var talinn rísandi stjarna, söng lögin Don´t Be Cruel og Hound Dog. Presley hafði í öðrum sjón- varpsþáttum og á tónleikum hneykslað áhorfendur með kynæsandi mjaðma- hnykkjum sínum. Fyrir vikið hafði Sullivan lýst því yfir að hann myndi aldrei leyfa Presley að syngja í þætti sínum. Snerist honum þó hugur þegar hann sá hversu vinsæll kóngur- inn var orðinn. Með frammistöðu sinni í þætti Ed Sulli- van varð Presley end- anlega að stórstjörnu í Bandaríkjunum og þótt víðar væri leitað. Átti sú stjarna eftir að skíra skært allt þar til hann lést árið 1977. ÞETTA GERÐIST 9. SEPTEMBER 1956 Elvis hjá Ed Sullivan ELVIS PRESLEY Konungur rokksins kom fram í þætti Ed Sullivan fyrir fimmtíu árum. Á þessu ári er Hagamelurinn sextíu ára og í tilefni af því ætla fyrrver- andi og núverandi íbúar götunnar að efna til mikillar götuveislu í dag sem hefst klukkan 17. „Við byrjuð- um að skipuleggja hátíðina fyrir ári síðan og undirbúningurinn hefur gengið vonum framar. Það sýnir hversu mikil samheldni er meðal íbúa hér í götunni og það eru allir tilbúnir til að leggjast á eitt til að gera þessa hátíð sem glæsilegasta,“ segir Kjartan Ólafsson, íbúi í göt- unni og einn af skipuleggjendum Hagamelshátíðarinnar. Ekki nóg með að gatan sjálf eigi merkisafmæli því Melaskóli fagn- ar einnig sextíu ára afmæli á þessu ári, Melabúðin góðkunna er fimm- tíu ára og Vesturbæjarlaugin er 45 ára. Það eru því mörg merkisaf- mæli í nágrenninu og Kjartan segir marga hafa lagt hátíðinni lið og að á dagskránni séu skemmtiatriði fyrir unga sem aldna. Hoppukast- ali, tónlistaratriði sem stjórnað er af Jóni Ólafssyni tónlistarmanni og Guðna Franzsyni, en þeir búa báðir í götunni. Kjartan segir marga fræga hafa búið í götunni og að hans sögn hafa stærstu kvikmynda- jöfrar landsins, þeir Sigurjón Sig- hvatsson, Friðrik Þór Friðriksson og Hrafn Gunnlaugsson allir alist upp í þessari götu. Mikil glímumenning er á Haga- melnum og á morgun verður boðið upp á glæsilega glímusýningu frá Glímudeild Knattspyrnufélags Reykjavíkur. „Ég held að allir litlir strákar sem ólust upp í þessari götu á svipuðum tíma og ég hafi æft íslenska glímu og nú er sonur minn að æfa. Það er aldrei að vita nema maður stígi á stokk og sýni nokkur vel valin spor,“ segir Kjart- an hlæjandi. Kjartan segir að það sem geri Hagamelinn frábrugðinn öðrum götum bæjarins sé að gatan er eins og lítið samfélag í Vesturbænum. Á Hagamelnum heilsast allir eins og í litlu þorpi út á landi. „Ég ólst upp í þessari götu og flutti svo af henni í smá tíma en um leið og ég sá að það var íbúð til sölu hér fyrir mörgum árum þá stökk ég á tæki- færið. Hér er best að búa og það má eiginlega segja að þetta sé svona klisja: einu sinni smakkað, þú getur ekki hætt. Það koma allir aftur hingað sem hafa prófað að búa hér einu sinni. Elstu íbúar götunnar hafa búið hér í öll þessi sextíu ár.“ Að sögn Kjartans voru það nokkrir litlir hópar af póstmönn- um, bankafólki, vélstjórum, prent- urum og lögreglumönnum sem byggðu fyrstu húsin á Hagameln- um á sínum tíma og er það ein af ástæðum þess að samheldnin var mikil meðal fyrstu íbúa götunnar og hefur haldist síðan. „Ég vona bara að veðurguðirnir verði góðir við okkur og að sem flestir sjái sér fært um að mæta, enda verða hér glæsilegar veiting- ar og frábærar uppákomur. Einnig verða myndir frá gömlum tímum og þó að maður búi ekki í götunni þá er þetta skemmtilegt fyrir gesti og gangandi,“ segir Kjartan að lokum. alfrun@frettabladid.is KJARTAN ÓLAFSSON: 60 ÁRA AFMÆLI HAGAMELS FAGNAÐ MEÐ VEGLEGRI GÖTUVEISLU Í DAG Samheldið samfélag í Vesturbænum KJARTAN ÓLAFSSON Einn af skipuleggjendum á Hagamelshátíðinni sem haldin er í dag í tilefni af 60 ára afmæli götunnar. Hann segir að ef fólk prófi að búa við götuna vilji það helst aldrei fara. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN ADAM SANDLER FÆDDIST ÞENNAN DAG ÁRIÐ 1966 „Gamanleikur minn er mismunandi í hvert einasta skipti sem ég leik. Ég hef eiginlega ekki hugmynd um hvað ég er að gera.“ Adam Sandler, sem hefur m.a. leikið í Billy Madison og Happy Gilmore, er fertugur í dag. MERKISATBURÐIR 1208 Víðinesbardagi í Hjaltadal er háður. Í bardaganum falla tólf menn, þar á meðal Kolbeinn Tumason. 1877 Þingeyrarkirkja er vígð, en Ásgeir Einarsson alþingismaður lét reisa hana. 1905 Sogsbrúin er vígð að viðstöddu fjölmenni. 1942 Bresk flugvél brotlendir í kartöflugarði við hús í Elliðaárdalnum. 1956 Elvis Presley kemur fram í sjónvarpsþætti Ed Sullivan í Bandaríkjunum. Talið er að fimmtíu milljónir hafi horft á þáttinn. 1969 Ho Chi-Minh, kommúnistaleiðtogi í Víetnam, er jarðsunginn í Hanoi. AFMÆLI Eyþór Gunnarsson tónlistarmaður er 45 ára. Þorri Hringsson, myndlistarmaður og vínunnandi, er 40 ára. Margrét Kaaber leikkona er 30 ára. ÚTFARIR 11.00 Ragnar Heiðar Guðmundsson, Hafnargötu 32, Siglufirði, verður jarðsunginn frá Siglufjarðarkirkju. 11.00 Guðmundur Friðrik Vilhjálmsson verður jarðsunginn frá Ísafjarðarkirkju. 13.00 Þórður Ásgeirsson, Baughóli 10, Húsavík, verður jarðsunginn frá Húsavíkurkirkju. 14.00 Lára Steinunn Einarsdóttir verður jarðsungin frá Ísafjarðarkirkju. FÆDDUST ÞENNAN DAG Otis Redding söngvari 1941 Michael Keaton leikari 1951 Hugh Grant leikari 1960 Adam Sandler leikari og grínisti 1966 Síðasti dagur sveitamarkaðarins í gamla sláturhúsinu við Laxá í Hval- fjarðarsveit er á morgun. Markaðurinn hefur verið opinn alla sunnudaga í sumar en fer nú í frí. Á sveitamarkaðinum er til sölu heima- framleiddur varningur af ýmsu tagi, svo sem matvara, fatnaður, handverk, skart- gripir, jurtakrem og skrautmunir. Að sögn kunnugra hefur markaður- inn verið vel sóttur í sumar og skemmti- leg stemning hefur skapast við sölubás- ana og í kaffihúsi sem starfrækt er í kjallara hússins. Að sjálfsögðu er þar boðið upp á eðal heimabakstur. „Markaðurinn er kærkomið nýtt lífs- mark í Hvalfjarðarsveit og vonandi kom- inn til að vera,“ segir Jóhanna Harðar- dóttir í Hlésey. „Ferðalangar sem annars hafa ekið í gegnum sveitarfélagið eftir þjóðvegi eitt án þess að stoppa hafa nú áð við bakka Laxár og gefið sér tíma til að kynnast staðnum, fólkinu og verkum þess og margir heimamenn heimsækja markaðinn reglulega til að fá sér hátíðar- kaffi eða kíkja á nýjungar í básunum.“ Síðasti dagur markaðarins er sem fyrr segir á morgun en þá verður gert hlé á rekstri hans. Stefnt er að því að opna jólamarkað í húsinu í lok nóvem- ber. Síðasti dagur sveitamarkaðar MARKAÐSSTEMNING Bæði heimamenn og ferðalangar hafa sótt sveitamarkaðinn í Hvalfjarðar- sveit heim í sumar og jafnan hefur verið góð stemning þar. Hagamelur 8 nýtt hús Einars Bárðarsonar Alúðarþakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför hjartkærs eigin manns míns, föður okkar, tengda- föður, afa og langafa, Hjalta Ólafs Jónssonar Skúlagötu 20, Reykjavík. Sérstakar þakkir til starfsfólks hjúkrunarheimilisins Sóltúns fyrir frábæra umönnun. Guð blessi ykkur öll. Halldóra Þ. Sveinbjörnsdóttir Ragna Kristín Hjaltadóttir Jón E. Hjaltason Sigríður Alda Sigurkarlsdóttir Vignir S. Hjaltason Snorri Hjaltason Brynhildur Sigursteinsdóttir Lilja Hjaltadóttir Kristinn Örn Kristinsson barnabörn og barnabarnabörn.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.