Fréttablaðið - 09.09.2006, Qupperneq 34
9. september 2006 LAUGARDAGUR
Nýr flugvöllur Flugmódelfélags
Suðurnesja var vígður form-
lega við Seltjörn á Ljósanótt.
Björn Ingi Knútsson, flugvallar-
stjóri Keflavíkurflugvallar, og
Árni Sigfússon opnuðu völlinn en
hann er sá stærsti sinnar tegund-
ar á landinu. Félagið hefur síð-
ustu áratugina haft aðstöðu í
Grófinni í Keflavík en þurfti að
víkja þaðan vegna breytinga sem
gera þurfti á iðnaðarsvæðinu í
Helguvík.
„Gamli völlurinn var grasvöll-
ur og var orðinn einn sá besti á
landinu. Þar voru þrjár brautir og
sú lengsta um 200 metra löng. Það
stóð til að við flyttum völlinn 1993
þangað sem hann er kominn núna,
enda vorum við mjög nálægt
Keflavík á gamla staðnum,“ segir
Magnús Kristinsson, formaður
Flugmódelfélags Suðurnesja.
Þau áform gengu þó ekki eftir
og segir Magnús að sambúðin við
félagið sem fékk aðliggjandi
svæði úthlutað hafi ekki gengið
upp. „Í vor var hins vegar ákveð-
ið að svæðið þar sem gamli völl-
urinn var yrði tekið undir iðnað-
arhverfi og þá þurftum við að fá
nýjan völl. Bæjarstjórinn setti
nefnd í málið sem vann hratt og
vel og afhenti okkur aftur gamla
svæðið og svæðið sem nágrann-
arnir voru með að auki.“
RR verktakar sáu um fram-
kvæmdina á nýja flugvellinum og
styrktu hana jafnframt. Völlurinn
var svo tekinn í gagnið, sem fyrr
segir, á Ljósanótt hinn 2. sept-
ember síðastliðinn. „Á vellinum
eru tvær tíu metra breiðar mal-
bikaðar brautir, önnur 116 metra
löng og hin 104 metra. Þær stand-
ast báðar staðla til að halda heims-
meistarakeppni í módelflugi og
svo er 115 metra grasbraut í
framhaldi af þeirri lengri, þannig
að við erum með 230 metra braut
í það heila,“ segir Magnús.
„Það hefur mikla þýðingu fyrir
okkur að hafa völl áfram. Í dag
eru um 25 meðlimir í klúbbnum og
þeim fer fjölgandi, vonandi hratt
eftir að við fengum svona flotta
aðstöðu. Ég er búinn að vera í
módelflugi sjálfur síðan 1992 og
það er ekki langt síðan ég átti rúm-
lega þrjátíu vélar. Nú er ég með
rúmlega tuttugu en það eru rúm-
lega hundrað vélar í klúbbnum,“
segir Magnús og bætir við að
uppáhaldsvélar hans séu F-15
orrustuþota og B-25 vél úr seinna
stríði sem hann er að smíða með
félaga sínum. einareli@frettabladid.is
Stenst staðla fyrir heims-
meistarakeppni í módelflugi
Nýi völlurinn séður úr lofti.
Björn Ingi Knútsson flugvallarstjóri, Árni Sigfússon bæjarstjóri, Stefán Bjarkason, framkvæmdastjóri menningar-, íþrótta- og tóm-
stundasviðs (MÍT), og Magnús Kristinsson, formaður Flugmódelfélags Suðurnesja, við opnun flugvallarins.
Þýsk blöð segja að hann muni gefa yfirlýsingu á
morgun á Monza.
Formúluofurhetjan Michael Schumacher er hugsan-
lega að hætta keppni, að sögn dagblaðsins Bild og
fleiri þýskra fjölmiðla. Fjölmiðlafulltrúi Schu-
machers vill hvorki játa þessu né neita en segir við
Der Spiegel að Schumacher sjálfur muni svara spurn-
ingunni á sunnudaginn eftir ítölsku Formúlukeppn-
ina á Monzabrautinni. Talsvert hefur verið spáð í
framtíð Schumachers síðan keppnistímabili síðasta
árs lauk, en úrslitin þá voru Ferrari-liðinu nokkur
vonbrigði.
Michael Schumacher er öflugasti Formúlu eitt
ökumaður allra tíma. Hann er nú 37 ára gamall og
hefur keppt í Formúlu eitt í fimmtán ár og sjö sinn-
um sigrað, oftar en nokkur annar.
Nú eru fjórar lotur eftir af keppnistímabilinu og
Schumacher gæti vissulega enn staðið uppi sem sigur-
vegari þegar tímabilinu lýkur. Til þess þarf hann þó
að ná Fernando Alonso, sem hefur forystuna eins og
er með tólf stiga forskot á Schumacher.
(www.fib.is)
Schumacher að hætta?
Michael Schumacher, sjöfaldur
sigurvegari í Formúlu 1.
EKKERT GERVIGRAS!
NÝTT OG
BETRA GRAS...
WWW.GRAS.IS