Fréttablaðið - 09.09.2006, Page 70

Fréttablaðið - 09.09.2006, Page 70
 9. september 2006 LAUGARDAGUR34 Einn helsti sjarminn við Lissa-bon er hversu gömul byggðin er. Hér er varla nútímalega byggingu að sjá og um göturnar þeysast ævafornir sporvagnar. Eins er mannmergðinni og bílatraffíkinni ekki fyrir að fara og því getur maður rölt rólega og gefið sér tíma í að njóta umhverf- isins. Ferðamenn eru líka furðu fáir og því getur maður átt von á því að hafa turn eða jafnvel kirkju út af fyrir sig, sem er nokkuð óvenjulegt hafandi í huga að Lissabon er borg með merka sögu og ferðaiðnaðurinn í Portúgal blómlegur. Forvitnin látin stjórna Almenningssamgöngur eru með besta móti í Lissabon og því lítið mál að komast milli staða. Skemmti- legast er náttúrulega að ferðast með sporvagni og er ferð með vagni númer 28 eitt af skylduverk- efnum ferðamanna. Vagninn geng- ur milli hverfanna Bairro Alto og Alfama, sem standa hvort á sinni hæðinni við Tagus ána. En það er í þessum hverfum sem sjarmi borg- arinnar liggur miklu frekar en á sléttunni á milli þeirra sem kallast Baixa. En Baixa hverfið var endur- byggt eftir jarðskjálftana 1755 og skipulagt líkt og í erlendum stór- borgum með breiðgötum og torg- um, en þannig er það ekki í Alfama og Bairro Alto. Því þegar þangað er komið er eina vitið fyrir ferða- menn að stinga kortinu í vasann og láta forvitnina leiða sig áfram um þröngar göturnar og virða fyrir sér þessa óskipulögðu húsabyggð og mannlífið á götunum. Varast ber þó að ganga meðfram veggjum enda hangir blautur þvottur út um annan hvern glugga á þessum slóð- um og dropar því oft hressilega niður á vegfarendur. Í Bairro Alto og Alfama er líka heimavöllur hinnar harmþrungnu Fadó tónlist- ar sem Portúgalar dýrka og þeir sem vilja kynna sér hana geta rölt á milli klúbba óhræddir um að kaupa köttinn í sekknum. Enda er Fadó tónlistin sem trúarbrögð í landinu og litlar líkur á að boðið sé upp á falskan söngvara eða takt- lausan gítarleikara. Sætabrauð og skemmtanir Í Bairro Alto halda skemmtana- glaðir heimamenn sig til. Ógrynni lítilla bara og veitingastaða er að finna út um allt, ásamt litlum versl- unum sem margar hverjar eru opnar fram undir miðnætti. Enda er enginn að drífa sig í háttinn sem á annað borð er mættur í hverfið og mannfjöldinn á götunum mikill eftir að kvölda tekur. Flestir með glas í hendi, enda ekkert tiltökumál þótt fólk kjósi að fara með drykk- ina út á götu í stað þess að sitja við barinn. Þeir ferðamenn sem ekki eru lafmóðir eftir göngur dagsins geta því slegist í hópinn og látið gamminn geisa hér framundir morgun. Á rölti um Lissabon virðist leið- in alltaf liggja framhjá kaffihúsi sem býður upp á ógrynni af alls kyns sætabrauði. Hér standa heimamenn við barborðið og borða á meðan ferðamenn sitja í sætun- um. Enda ódýrara að súpa kaffi og maula brauðið standandi. Café a Brasileira er þekktasta og flottasta kaffihús borgarinnar en ekki endi- lega það besta. Það er þó vel þess virði að kíkja við og jafnvel virða fyrir sér fínu verslanirnar í nágrenninu. Gamli gróðinn Belém hverfið liggur nokkra kíló- metra frá miðbænum og það er helst hér sem maður verður var við ferðamannastraum. Hér er auð- veldlega hægt að eyða degi í að rölta milli safna, njóta blíðunnar í görðunum og á torgum og skoða íburðarmiklar byggingar frá þeirri tíð er Portúgalar voru eitt öflug- asta nýlenduveldi heims. Þótt íbúar Lissabon telji rétt rúmlega milljón manns og borgin sé ekki ýkja stór er auðveldlega hægt að eyða nokkrum dögum í borginni enda nóg við að vera. Það er líka kjörið að fara að huga að ferð til borgarinnar áður en allir hinir ferðamennirnir uppgötva hana. Því eflaust styttist í að langar biðraðir fari að myndast við helstu staði borgarinnar og verðið hækki. Lissabon er í stuði akkúrat núna. EITT OG ANNAÐ UM LISSABON Bairro Alto hótelið Þetta litla hótel var valið eitt af bestu nýju hótelum heims árið 2005 af ferðatímaritinu Conde Nast Traveller. Hér gista þeir sem eiga aðeins meiri pening. Hinir geta kíkt á barinn á efstu hæð og notið útsýnisins. Hótelið er staðsett við lítið torg í Bairro Alto hverfinu. Á hótelinu er allt það sem lúxus hótel þarf að hafa og því ætti ekki að væsa um mannskap- inn hér. Gulbenkian safnið Listaverkasafnarinn og olíujöfurinn Calouste Gulbenkian var duglegur við að sanka að sér listmunum en vildi aðeins kaupa það besta. Síðan arfleiddi hann portúgölsku þjóðina að þessu öllu. Á safninu er að finna ótrúlegt úrval af munum frá miðri síðustu öld og allt aftur til 1800 fyrir Krist. Alcantracafé Þeir verða nú vart sérstakari veit- ingastaðirnir en Alcantracafé. Ekki er það matseðillinn eða verðið sem fær mann til að gapa heldur yfirgengi- legar innréttingarnar. Staðurinn er í gamalli vöruskemmu og lætur lítið yfir sér en þegar inn er komið blasir við einhvers konar teiknimyndaheimur sem gaman er að kynnast. Maturinn er fínn og verðið vel viðráðanlegt. John Malkovich Leikarinn frægi gegnir sama hlutverki í túristabæklingum um Lissabon og Damon Albarn gerir í bæklingum um Reykjavík. John Malkovich hefur nefnilega líkt og Damon keypt sér hluti í veitingastað og skemmtistað og það fer ekki framhjá nokkrum manni sem blaðar í gegnum túristapésana. Skemmtistaðurinn Lux og veitingastaðurinn Bica Do Sapato eru, eða voru að minnsta kosti að hluta til í eigu leikarans góðkunna. Og ef eitthvað er að marka bæklingana þá kíkir hann stundum við og býður Catherine Deneuve stundum með sér. Lissabon er oft líkt við San Francisco enda báðar borgir með eindæmum hæðóttar og íbúarnir vanari því að ganga í halla en á jafnsléttu. En það eru ekki bara brekkurnar sem hægja á göngu ferðamanna því borgin er falleg og alltaf eitthvað sem kallar á athyglina. Fréttablaðið lét hvorki hallann né steikjandi hitann slá sig út af laginu og tók stöðuna á borginni. Bratta borgin

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.