Fréttablaðið - 09.09.2006, Page 81

Fréttablaðið - 09.09.2006, Page 81
LAUGARDAGUR 9. september 2006 45 HVAÐ? HVENÆR? HVAR? SEPTEMBER 6 7 8 9 10 11 12 Laugardagur ■ ■ TÓNLEIKAR  18.00 Bentína Tryggvadóttir heldur tónleika í Fríkirkjunni í Hafnarfirði. Á efnisskrá eru bæði sígild- og nútímaverk og mun fjöldi annarra listamanna koma fram á tónleikunum Bentínu til stuðnings, meðal annars Bjarni Jónatansson píanóleikari, Sigurður Steinsson gítarleikari, Alda Ingibergsdóttir sópran, Ásgeir Páll Ásgeirsson barítón, Bjarni Snæbjörnsson leik- ari og María Jónsdóttir sópran.  18.00 Hljómsveitin Los Heartbreakers spilar á Q-bar. ■ ■ ÚTIVIST  11.00 Fræðsluganga um forn- leifar við Elliðavatn í boði Skógræktarfélags Reykjavíkur. Sjá nánar á www.heidmork.is ■ ■ SAMKOMUR  13.00 Dagskrá til minningar um Björn J. Blöndal laxveiðimann og rithöfund verður flutt á vegum Snorrastofu í Reykholti og Safnahúss Borgarfjarðar. Fyrirlesarar verða Elín Blöndal, Björn Blöndal, Jóhannes Nordal, Guðrún Nordal, Gunnar Hersveinn, Össur Skarphéðinsson, Snorri Jóhannesson á Augastöðum og Þorkell Fjeldsted í Ferjukoti. Þá verður lesið upp úr bók Björns, Hamingjudagar, auk þess sem Silfurrefirnir verða með tónlist- aratriði. Dagskránni stýrir Bjarni Guðmundsson á Hvanneyri, en hún er opin öllum og er aðgangur ókeypis. ■ ■ SÝNINGAR  08.30 Guðmundur Karl Ásgeirsson sýnir landslagsmálverk í sýningarsal Orkuveitu Reykjavíkur að Bæjarháls. Sýningin stendur fram í miðjan október.  09.00 Haustsýning Listvinafélags Hallgrímskirkju á myndverk- um Hafliða Hallgrímssonar er í forkirkju Hallgrímskirkju. Þetta er önnur sýning Hafliða í Hallgrímskirkju og sýnir hann 12 verk með trúarlegu ívafi. Sýningin stendur til 23. október  10.00 Sýningin Ef þú giftist, um íslenska brúðarsiði fyrr og nú, stend- ur yfir í Minjasafni Akureyrar. Sýningin er opin milli 10-17 alla daga en henni lýkur 15. september.  11.00 Halla Gunnarsdóttir mynd- listarkona sýnir verk sín í Galleríi Turpentine við Ingólfstorg. Sýningin er opin til kl. 16.  13.00 Aleksandra Signer og Tumi Magnússon sýna myndbandsverk og innsetningar í Listasafni ASÍ við Freyjugötu. Sýningunni lýkur á morgun sunnudag.  11.00 Samsýningin Mega vott stendur yfir í Hafnarborg. Myndlistarmennirnir Ragnhildur Stefánsdóttir, Anna Eyjólfsdóttir, Þórdís Alda Sigurðardóttir, Rúrí og Jessica Stockholder eiga verk á sýningunni. Sýningin er opin alla daga milli kl. 11-17 nema á þriðju- dögum.  14.00 Í galleríi Kling & bang við Laugaveg stendur yfir samsýning- in Guðs útvalda þjóð. Á þriðja tug listafólks, bæði myndlistar- og tónlistarfólks, tekur þátt í sýn- ingunni. Sýningarstjóri er Snorri Ásmundsson. Sýningin er opin fimmtudaga til sunnudaga frá 14-18.  Sýning Nínu Gautadóttur í Galdrasafninu á Hólmavík sem helguð er rauðhærðum konum stendur til 15. september. ■ ■ UPPÁKOMUR  14.00 Menningar- og listafélagið Beinlaus biti efnir til útgáfuhátíðar í tilefni af útkomu hljómskífunn- ar Sjómannasöngvar í salthúsi Sigvalda Þorleifssonar í Ólafsfirði. Kórar, hljómsveitir, myndlistarmenn og söngvarar leika og sýna kúnstir sínar. Upplýsingar um viðburði og sýningar sendist á hvar@frettabladid.is ekki síðar en sólarhring fyrir birtingu. Rakel Pétursdóttir listfræðingur leiðir gesti Listasafns Íslands um sýninguna „Landslagið og þjóð- sagan“ kl. 14 á morgun. Á sýningunni er fjallað um íslenska landslagslist frá upphafi 20. aldar og sýnd verk sem byggja á túlkun þjóðsagna, meðal annars úr Safni Ásgríms Jónssonar. Mörg af öndvegisverkum íslenskrar myndlistar frá fyrri hluta 20. aldar eru á sýningunni, svo sem eftir Þórarin B. Þorláksson, Ásgrím Jónsson, Jóhannes Kjarval, Guð- mund Thorsteinsson og Júlíönu Sveinsdóttur. Þá eru verk eftir yngri listamenn sem takast á við landslagið og þjóðsöguna, eins og Sigurð Guðmundsson, Magnús Pálsson, Helga Þorgils, Georg Guðna, Halldór Ásgeirsson, Ólaf Elíasson, Eggert Pétursson og Ólöfu Nordal. Leiðsögnin verður miðuð við virka þátttöku gesta eftir áhuga þeirra og frumkvæði. Farið verð- ur í gegnum alla sýninguna þar sem spurningum um merkingu hugtaksins íslensk myndlist og hlutverk hennar í sjálfsmynd þjóðar er velt upp með hliðsjón af verkum frá fyrrihluta 20. aldar og samtímalistinni. Aðgangur að Listasafni Íslands er ókeypis. - khh Leiðsögn um landslagslist RAKEL PÉTURSDÓTTIR LISTFRÆÐINGUR Ræðir um merkingu hugtaksins íslensk myndlist. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN 550 5000 AUGLÝSINGASÍMI

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.