Fréttablaðið - 09.09.2006, Blaðsíða 82

Fréttablaðið - 09.09.2006, Blaðsíða 82
 9. september 2006 LAUGARDAGUR46 utlit@frettabladid.is Spáir þú mikið í tískuna? Já svona frekar mikið, þó án þess að vera tískuþræll. Held þessu innan vel- sæmismarka, annars væri ég bara komin í ruglið. Hvernig myndirðu lýsa stílnum þínum? Hann er rosalega blandað- ur, það fer alveg eftir veðri og skapi. Er mikið í háum hælum, niðurmjó- um buxum, stuttum jökkum og nota mikið leður. Uppáhaldshönnuðir eða fata- merki? Roberto Cavalli. Hann er virkilega smart en ég er ekkert sérstaklega að splæsa í svoleiðis merkjavöru, þá held ég bara að maður væri á hausnum. Flottustu litirnir? Appelsínugulur, bleikur, gulur, hvítur og svartur. Hverju ertu veikust/veikastur fyrir? Kögurjökkum og skóm, ég verð nú alveg að fara að komast yfir þetta kögur-vesen. Fer alveg að verða neyðarlegt. Hvaða flík keyptir þú þér síðast? Reimaðar leðurbuxur í Elvis. Þær eru ómissandi á mótorhjólið. Þær eru alveg „to die 4“. Hvað finnst þér flottast í tískunni núna? Ég er nú ekki viss, það er svo margt í gangi. Það er svo skemmti- legt þegar haustið dettur inn með öllum þessum dýrðlegu þykku peysum. Mamma er að skella í eina lopapeysu í fínni kantinum svo að ég á ekki eftir að fara í „haustkött- inn“. Hvað ætlarðu að kaupa þér fyrir haustið? Góðar bomsur. Uppáhaldsverslun? Já það er nú góð spurning, ég er nú voða sniðug að versla á eBay svo er það Trilogia, H&M, Zara. Algjört bland í poka. Hvað eyðir þú miklum peningum í föt á mánuði? Það er svo misjafnt, en alls ekki mikið. Ef maður er erlendis þá tekur maður góðar rispur en það getur verið frá 0 kr upp í 30.000 kr. Svo er ég svo mikill grúskari að ég kemst upp með að eyða fáránlega litlu. Hvaða flíkur gætir þú ekki verið án? Joggingbuxna, allra hlýrabol- anna og leðurgallans. Uppáhaldsflík? Leðurskyrtan mín frá All Saints. Hún er algjör snilld, rosa flott og hrikalega hlý. Þarf endilega að verða mér út um fleiri í mismun- andi litum. Held að ég hafi ekki farið úr henni þessa dagana. Hvert myndir þú fara í verslunarferð? Barcelona eða New York, er verið að bjóða mér eða? Ljótasta flík sem þú hefur keypt þér? Ég held að sú flík sé bara ekki til, jú samfestingur í Hjálpræðis- hernum. Ekki fallegur. SMEKKURINN ARNÞRÚÐUR DÖGG SIGURÐARDÓTTIR ATHAFNAKONA MEÐ MEIRU Leður í neyðarlega miklu uppáhaldi > Við mælum með... ...eins konar medalíuhálsmenum sem fást í búðinni Belleville á Laugavegin- um. Flott og öðruvísi dönsk hönnun sem setur svip á hvaða fatnað sem er. MÓÐUR VIKUNNAR Álfrún fer yfir málin Um síðustu helgi strunsaði ég um stræti Kaupmannahafnar í mikilli leit að nýjum fataleppum. Vá, hvað það er mikið úrval af flottum og girnileg- um fatnaði í Danmörku á öllu verðbili. Úrvalið var eiginlega svo mikið að ég fór í baklás og vissi ekki alveg hvað ég ætti að kaupa og hverju ég ætti að sleppa. Hélt að ef ég myndi kaupa bol á einum stað þá mundi ég fara í næstu búð og sjá einhvern ennþá flottari. Fékk svona nettan valkvíða þannig að ég varð að setjast niður til að fá mér þjóðardrykk Dana og safna orku oft yfir daginn. Já, ekkert er betra en að vera í fríi. Allt sem maður sér í útlöndum er alltaf miklu meira spennandi bara af því að það er útlenskt, ég keypti mér til dæmis tíu útlenska tyggjó- pakka bara af því að það fæst ekki á fróni. Verslanakeðjan Hennes og Mauritz er mjög ofarlega á vinældalista Íslendinga sem fara til útlanda. Ástæðan fyrir því er klárlega verðlagið og svo auðvitað eru hönnuðirnir alveg fáranlega góðir í að herma eftir helstu hátískuhönnuninni og ávallt með puttana á púlsinum í þessum efnum. Íslendingar versla svo mikið í Danmörku og í H&M að fyrirskip- anirnar fyrir Tax Free á flugvellinum eru á ensku og íslensku. Engu öðru tungumáli. Svona erum við öflug þjóð enda er Reykjavík ein af tískuborgum heims samkvæmt spekingum og auðvitað landsmönnum sjálfum. Það er hinn mesti miskilningur að Strikið sé eina aðalverslunargatan í Kaupmannahöfn. Vissulega er hún stærst en sjálf er ég hrifnari af hverfunum fyrir ofan Strikið. Þar er litlar sætar götur þar sem ungir hönnuðir og upprennandi merki hafa hreiðrað um sig í kjallaraholum. Þar eru búðir eins og Wood Wood, Acne Jeans og Peder Stöffer sem vert er að skoða. Einnig er „second hand“-búðin Köbenhavn K ein sú stærsta í Kaupmannahöfn og er staðsett fyrir ofan Strikið í átt á Nörrebro. Ekki vera hrædd við að skjótast af Strikinu til að upplifa hátískuna á hliðar- götunum og svo eru líka svo krúttleg og skemmtileg kaffihús þar sem maður kemst aðeins frá mannfjöldanum. Allt sem er útlenskt er gott og ef ég mætti ráða þá færi ég í hverjum mánuði til útlanda til að endurnýja fataskápinn minn og fá innblástur frá erlendri menningu. Útlenskt, já takk! SÍÐ OG HLÝ Flott kápa/peysa úr Rokki og rósum sem hægt er að nota sem yfirhöfn jafnt og kjól. STELLA MCCARTNEY Flott fjólublá og síð rennd peysa frá drottningunni Stellu sem hægt er að nota við hvað sem er. LJÓSGRÁTT Þetta er greini- lega litur vetrarins og er hér flottur í síðerma prjónakjól frá Alice Roi. RÚLLUKRAGI Glæsileg peysa frá Stellu McCartney sem hér sést við þunnar sokkabuxur og ökklastígvél. KLASSÍSKUR Glæsilegur kjóll frá danska merkinu Rosanne og Julie sem fæst í GK. GLÆSILEGUR Svartur partí- kjóll úr angóruull frá hönnuðinum Emmu Cook og fæst i Kronkron. V-HÁLSMÁL ER MÁLIÐ Ef marka má tísku- pallana og þessi flotta peysa er hneppt með síðu hálsmáli. Fæst í Kronkron. HLÉBARÐAMUNSTUR Klárlega eitt af heitari munstrum vetrarins. Þessi síði peysukjóll er frá Sportmax og fæst í GK. DONNA KARAN Flottur og þykkur kjóll frá þessum flotta merki sem klikkar sjaldan. Fæst í Evu. SKÓLA- PEYSA Donna Karan var alveg með puttana á púlsinum þegar hún gerði þessa fallegu síðu v-hálsmál- peysu í rjómahvít- um lit. Nú er tíminn sem myrkrið fer að læðast aftan að manni og hver dagur styttist um of. Það fer að verða erfiðara að vakna á morgn- ana og það eina sem mann langar að klæðast á köldum og dimmum morgnum er eitthvað hlýtt og þægilegt. Tískan fyrir þennan vetur er okkur klakabúum mjög í hag því síðar peysur og prjóna- kjólar eru meðal heitra nýjunga vetrarins. Litríkir sumarkjólar voru mjög „inn“ þetta sumarið og kjólatískan heldur áfram inn í veturinn með smá öðruvísi áhersl- um. Peysur fara síkkandi og hægt er að nota þær við leggings eða bara hið íslenska föðurland sem er alls ekki eins hallærislegt og margir halda. Kosturinn við þessa tísku er að sama hvort um er að ræða síðar og víðar hettupeysur eða þrönga stutta ullarkjóla þá er bæði hægt að nota strigaskó og himinháa hæla við. Því er hver flík margbreytileg og eiginlega fjölnota. Kjólar og síðar peysur sem eru heklaðar eða prjónaðar eru að fylla slár tískuvöruversl- ana og því um að gera að skipta léttu sumarkjólunum út fyrir hlýja og góða peysukjóla þannig að kvenleikinn missi sín nú ekki þegar frostið fer að láta á sér kræla innan skamms. alfrun@frettabladid.is Hlýr kvenleiki vetrarins FR ÉT TA B LA Ð IÐ /G ET TY IM A G ES GLAMÚR Frábær síð peysa með útsaumuðu perlumunstri frá Rokki og rósum. VESTI Prjónvesti á ekki lengur að minna á afa. Nú er þau komin vel inn í tískuna og hér er eitt sítt sem hægt er að nota sem kjól úr Gallerí 17. KÓSÍ Frábær hettupeysa sem auðveldlega gengur sem kjóll og ekkert er betra en að klæðast þessu á köldum dimmum morgnum. Fæst í Kronkron.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.