Fréttablaðið - 09.09.2006, Side 88
52 9. september 2006 LAUGARDAGUR
sport@frettabladid.is
Danski knattspyrnumaðurinn Allan Borgvardt sleit fyrir skömmu
krossbönd í hné og verður frá næstu 6-8 mánuðina. Hann lék með
FH í þrjú ár og var tvívegis kjörinn knattspyrnumaður ársins. Í fyrra
fór hann til Noregs og samdi við 1. deildarliðið Bryne, þar sem
hann hefur slegið í gegn og er markahæsti leikmaður liðsins með
níu mörk.
„Ég var á æfingu á laugardegi og var svolítið þreytt-
ur, sem þýddi að fæturnir gátu ekki fylgt
eftir þeim hreyfingum sem ég hafði í
huga. Ég var svo að fara til vinstri
og vildi skipta yfir til hægri en
líkaminn náði ekki að svara og ég
vissi strax að eitthvað mikið var að,“
sagði Borgvardt við Fréttablaðið. Hann hefur
ekki enn gengist undir aðgerð en gerir það
væntanlega á næstu tveimur vikum. „Svona
er fótboltinn bara. Nú verð ég bara að ná mér
og koma aftur enn betri.“
Borgvardt er samningsbundinn Bryne út
næsta tímabil og stefnir að því að vera orðinn klár þegar
nýtt tímabil hefst í vor. Liðið er sem stendur í fjórða
sæti norsku 1. deildarinnar. „Við höfum misst marga
leiki í jafntefli í sumar og tapað þannig mörgum
stigum. Við erum því að berjast um þriðja sæti, sem
veitir umspilsrétt um laust sæti í úrvalsdeildinni.“
Hann er þó ánægður með lífið í Noregi. „Við höfum
komið okkur vel fyrir og fjölskyldan er ánægð. Það er
stutt að fara til Stafangurs og það er gott að búa hér,“
segir Borgvardt, sem hefur fylgst vel með íslenska boltan-
um. „Ég fylgist eins vel og ég get með FH og íslensku
deildinni og ég hef séð að liðinu hefur gengið
vel. Ég er alltaf í góðu sambandi við dönsku
leikmennina í félaginu og aðra leik-
menn einnig. Ég sá reyndar ekki
landsleik Íslands og Danmerkur
þar sem hann stóð ekki til boða í
norsku sjónvarpi en ég var ánægður með úrslitin, sérstaklega þar
sem ég var með rétt úrslit á leiknum á Lengjuseðlinum mínum.“
ALLAN BORGVARDT: SLEIT KROSSBÖND Á ÆFINGU MEÐ BRYNE Í NOREGI
Tippaði á sigur Dana á norsku Lengjunni
FÓTBOLTI Í dag fer fram stórleikur
í VISA-bikarkeppni kvenna í knatt-
spyrnu þegar Valur og Breiðablik
mætast á Laugardalsvelli. Það er
óhætt að segja að þessi tvö lið séu
risarnir í íslenskri kvennaknatt-
spyrnu um þessar mundir, Breiða-
blik vann tvöfalt í fyrra og Valur
bar höfuð og herðar yfir önnur lið
í Landsbankadeild kvenna í sumar
þar sem Breiðablik endaði í öðru
sæti. Þetta er 26. úrslitaleikurinn í
bikarkeppni kvenna og Valur og
Breiðablik hafa bæði unnið bikar-
inn níu sinnum, oftast allra liða.
Það má því búast við hörkuleik á
Laugardalsvellinum í dag en leik-
urinn hefst kl. 16.30.
Liðin mættust tvisvar í Lands-
bankadeildinni í sumar, Valur
vann fyrri leikinn 4-1 á sínum
heimavelli en Breiðablik náði
fram hefndum í síðari leiknum í
Kópavogi og sigraði 2-1. Mar-
grét Lára Viðarsdóttir, sóknar-
maður Vals, hefur verið mjög
iðin við markaskorun í sumar og
skoraði 34 mörk í 14 leikjum
fyrir Val í Landsbankadeildinni,
auk þess að hafa skorað 1 mark í
VISA-bikarkeppninni til þessa,
og ljóst er að Breiðabliksstúlkur
þurfa að hafa góðar gætur á
henni í dag. En markahæsti leik-
maður Breiðabliks í sumar er
hin fjölhæfa Erna B. Sigurðar-
dóttir sem skorað hefur 17 mörk
í 13 deildarleikjum í sumar en
hún hefur einnig skorað eitt
mark í VISA-bikarkeppninni.
Bæði liðin mæta með sín sterk-
ustu lið þar sem enginn leikmað-
ur er í banni og allir heilir.
„Markmiðið er auðvitað að
vinna þennan leik og fá tvo bikara
í hús. Það er alltaf svolítið sér-
stakt að spila bikarleiki,“ sagði
Katrín Jónsdóttir, fyrirliði Vals.
Katrín lék á sínum tíma en yfirgaf
herbúðir þeirra árið 1999 þegar
hún fluttist til Noregs. „Mér hefur
alltaf fundist skrítið að mæta
Breiðabliki og þar verður engin
breyting á. En nú er það bara
þessi leikur og allt annað verður
lagt til hliðar,“ sagði Katrín.
Elísabet Gunnarsdóttir, þjálf-
ari Vals, sagðist vera full tilhlökk-
unar fyrir leikinn. „Við spiluðum
engan leik í síðustu umferð
deildarinnar þannig að við hlökk-
um bara til að spila þennan leik
og gera tilraun til að fagna öðrum
titli,“ sagði Elísabet.
Ólína Guðbjörg Viðarsdóttir,
fyrirliði Breiðabliks, sagði að ekk-
ert annað en sigur kæmi til greina
í þessum leik. „Það er mikil spenna
í okkar hóp. Við ætlum okkur að
taka annan bikarinn. Bæði liðin
hafa unnið eina innbyrðisviður-
eign þannig að þetta verður mjög
spennandi,“ sagði Ólína.
Guðmundur Magnússon,
þjálfari Breiðabliks, hafði ekki
áhyggjur af því að Evrópukeppn-
in myndi hafa einhver áhrif á
sitt lið. „Við einblínum bara á
þennan leik og svo er Evrópu-
keppnin næsta verkefni þar á
eftir. Við horfum bara á þennan
leik og það er bikar í boði og við
ætlum okkur að vinna hann,“
sagði Guðmundur. Breiðablik
fer utan á mánudaginn og leikur
gegn Helsinki í Evrópukeppn-
inni á þriðjudaginn.
Stuðningsmenn Breiðabliks
ætla að hittast við íþróttahúsið
Smárann og gera sér glaðan dag
en rútuferðir verða þaðan kl.
16.00. Valsmenn ætla hins vegar
að hittast á hverfahátíð á Mikla-
túni í dag og vera með rútuferðir
þaðan. dagur@frettabladid.is
Risaslagur í úrslitum VISA-bikarsins
Valur og Breiðablik mætast í dag í úrslitaleik VISA-bikars kvenna í knattspyrnu. Liðin hafa haft þó nokkra
yfirburði í Landsbankadeildinni í sumar og bæði liðin hafa unnið bikarinn níu sinnum í gegnum tíðina.
HART BARIST Dóra María Lárusdóttir, Val
og Blikinn Greta Mjöll Samúelsdóttir
eigast við í leik liðanna fyrr í sumar.
FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
STÓRSLAGUR FRAMUNDAN Fyrirliðar liðanna, þær Katrín Jónsdóttir Val og Ólína G.
Viðarsdóttir Breiðabliki, berjast um bikarinn. Það verður fróðlegt að sjá þessi hörku-
lið mætast. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
FÓTBOLTI Svissneski miðvörðurinn
Stephane Henchoz er aftur
kominn í raðir Blackburn.
Henchoz gekk á sínum tíma í
raðir Blackburn frá Hamburg
árið 1997 fyrir þrjár milljónir
punda. Hann var leystur undan
samningi hjá Wigan í sumar og
því þarf Blackburn ekkert að
borga fyrir kappann að þessu
sinni.
Ryan Nelsen, miðvörður
Blackburn, er meiddur aftan í
læri og þarf að gangast undir
aðgerð vegna þess en Henchoz er
ætlað að fylla hans skarð.
Samningur Henchoz gildir út
yfirstandandi leiktíð. - dsd
Enska úrvalsdeildin:
Henchoz aftur
til Blackburn
FÓTBOLTI Fylkismenn hafa boðið
stuðningsmönnum félagsins til
pylsuveislu fyrir utan veitinga-
staðinn Blástein í Árbæ á morgun
kl. 11. Þremur tímum síðar mætir
Fylkir Keflavík á útivelli í 16.
umferð Landsbankadeildar karla
en fyrrnefnda liðið er í 6. sæti
deildarinnar og aðeins tveimur
stigum frá fallsæti. - esá
Keflavík-Fylkir:
Pylsupartí á
Blásteini
FÓTBOLTI Þórhildur Stefánsdóttir,
fimmtán ára leikmaður með HK,
mun síðar í mánuðinum halda til
Svíþjóðar þar sem hún mun æfa
með unglingaliði Malmö í eina
viku en aðallið félagsins leikur í
sænsku úrvalsdeildinni. Tvær
íslenskar knattspyrnukonur leika
með því, landsliðsfyrirliðinn
Ásthildur Helgadóttir og Valsar-
inn Dóra Stefánsdóttir. - esá
Fimmtán ára stúlka:
Æfir með
Malmö í viku
FÓTBOLTI Knattspyrnusamband
Evrópu, UEFA, hefur hótað því að
dæma portúgalska landsliðið í
bann auk þess að dæma portú-
gölsk félagslið úr leik í Evrópu-
keppnum. Aðdragandi málsins er
sá að portúgalska liðið Gil
Vicente var dæmt niður í 2. deild
fyrir að hafa notað ólöglegan
leikmann á síðustu leiktíð. Hefur
félagið nú farið með mál sitt fyrir
almennan dómstól og það er
nokkuð sem UEFA líkar ekki við.
Portúgalska knattspyrnusam-
bandið hefur frest til fimmtu-
dagsins 14. september til að finna
lausn á þessu máli, annars verður
portúgalska landsliðið dæmt úr
leik í undankeppni EM og
félagslið þjóðarinnar fá ekki að
taka þátt í keppnum á vegum
UEFA. - dsd
Knattspyrnusamband Evrópu:
Portúgal í bann?
STÓRI FELIPE Portúgalska knattspyrnu-
sambandið er undir smásjá UEFA.
> Akureyri - handboltafélag prófar Litháa
Í gær kom til Akureyrar litháíska skyttan Dmitrij Afanasjev
en hann mun vera til reynslu hjá félaginu næstu daga og
einnig mun hann leika með
liðinu á Sjallamótinu um helgina.
Afanasjev er 22 ára gamall og er
örvhent skytta. Hann er rúmir
190 sentimetrar á hæð. Hann
skoraði rúmlega fimm mörk í leik
í litháísku deildinni síðasta vetur
og kom ekkert þeirra af vítalín-
unni. Lið hans endaði í fjórða
sæti deildarinnar. Afanasjev ætti
að vita nokkurn veginn hvað
bíður hans hér á landi því hann
lék með Gilkauskas Gintas, fyrrum leikmanni Aftureldingar,
og Dmitrij Bezuyeskui, fyrrum leikmanni Þórs, á síðasta ári.
KÖRFUBOLTI Sú skondna staða er
komin upp að Njarðvík mun leika
heimaleiki sína í Evrópukeppn-
inni á heimavelli erkifjendanna í
Keflavík. Körfuknattleikssam-
band Evrópu neitaði að sam-
þykkja litlu ljónagryfjuna í
Njarðvík sem völl fyrir Evrópu-
keppni og því varð Njarðvík að
kyngja stoltinu og sætta sig við
að spila hjá „stóra“ bróður.
„Við eigum ekki annarra
kosta völ en að gera þetta,“ sagði
Valþór Jónsson, formaður körfu-
knattleiksdeildar Njarðvíkur,
við Fréttablaðið. „Þetta er samt í
heimabyggð og það er stutt að
fara. Það er vissulega kostur en
fúlt fyrir strákana að þurfa að
spila á velli höfuðandstæðing-
anna.“
Ein ástæðan fyrir þessu vali á
íþróttahúsi er að félagið sparar
nokkuð. „Annars staðar hefðum
við þurft að borga leigu og svo
erum við í þessu með Keflavík.
Við spilum sinn daginn hvort lið
og fáum því sömu dómara og
með því sparast peningur. Það er
dýrt að taka þátt í Evrópukeppni
og menn verða að spara þar sem
það er hægt,“ sagði Valþór en
játti því að vissulega verði þetta
skrítið. „Auðvitað verður þetta
skrítið en við verðum að setja
okkur í annan gír og annað hlut-
verk. Það hefur enginn neitað að
spila og ég á ekki von á því að
það gerist.“ - hbg
Njarðvík fær ekki að leika heimaleiki sína í Evrópu í Ljónagryfjunni:
Njarðvík spilar heimaleikina í Keflavík
ERKIFJENDUR Á SAMA VELLI Jeb Ivey og félagar í Njarðvík munu spila heimaleiki
sína í Evrópukeppninni í Sláturhúsinu í Keflavík.
FÓTBOLTI Manchester United var
langbesta liðið í ensku úrvals-
deildinni í ágúst og því þarf
ekki að koma á óvart að Sir Alex
Ferguson hafi verið kosinn
knattspyrnustjóri mánaðarins
og Ryan Giggs leikmaður
mánaðarins.
Ryan Giggs er búinn að leika
yfir 600 leiki með Man. Utd en
þrátt fyrir það hafði hann aldrei
unnið þessi verðlaun áður. - hbg
Leikmenn mánaðarins:
Ferguson og
Giggs bestir
GIGGSY Bestur í ágúst.