Fréttablaðið - 09.09.2006, Qupperneq 90
54 9. september 2006 LAUGARDAGUR
FÓTBOLTI Í dag fer fram fjöldinn
allur af knattspyrnuleikjum sem
hafa mikið að segja um örlög liða í
neðri deildunum hér á landi.
Sautjánda og næstsíðasta umferð-
in fer fram í 1. deildinni og getur
HK tryggt sér sæti í Landsbanka-
deild karla en Fram getur í dag
tryggt sér sigur í deildinni. Nú
þegar er ljóst hvaða þrjú lið kom-
ast upp úr 2. deildinni og þá verð-
ur leikið um meistaratitilinn í 3.
deildinni í dag.
Fram er löngu búið að tryggja
sér sæti í efstu deild karla og HK
er í afar góðri stöðu í 2. sæti. Liðið
er með fjögurra stiga forskot á
næsta lið, Fjölni, þegar tvær
umferðir eru eftir. Það þýðir að ef
Fjölnir misstígur sig gegn Þrótti í
dag skiptir engu þótt HK tapi á
móti Víkingi frá Ólafsvík.
Víkingur er í 9. sæti deildarinn-
ar sem er þó ekki fallsæti í ár þar
sem liðunum í 1. deild verður
fjölgað um tvö á næsta ári. Það
þýðir að eitt lið fellur úr 1. deild-
inni og þrjú lið komast upp úr 2.
deildinni. Fallbaráttan er þó afar
spennandi þar sem fimm lið eiga
enn tölfræðilegan möguleika á því
að falla. Samt mun þó ekkert
þeirra liða mæta innbyrðis í dag
og verður því forvitnilegt að sjá
hvernig þau standa sig.
Botnlið Þórs frá Akureyri
mætir toppliði Fram í dag en síð-
arnefnda liðinu dugir jafntefli til
að tryggja sér sigur í deildinni.
Fjarðabyggð, Njarðvík og
Reynir frá Sandgerði hafa þegar
tryggt sér sæti í 1. deildinni að ári
en árangur Reynis er athyglis-
verður þar sem liðið er nú að færa
sig upp um deild annað árið í röð.
Liðum verður einnig fjölgað í 2.
deildinni á næsta ári og því aðeins
eitt lið sem fellur úr deildinni.
Sindri kom með Reyni upp úr 3.
deildinni í fyrra en vermir nú
botnsæti deildarinnar fyrir loka-
umferðina í dag. Það á í harðri
baráttu við Hugin, sem er með
einu stigi meira, um að halda sæti
sínu í deildinni. Bæði lið eiga
erfiða heimaleiki á dagskrá í dag.
Fjölgun liða í 2. deildinni þýðir
að þrjú lið komast upp úr 3. deild-
inni. Í þeirri deild hefur verið sá
háttur lengi að haldin er úrslita-
keppni í lok tímabilsins og er
komið að úrslitaleiknum og leikn-
um um 3. sætið í dag. Bæði liðin í
úrslitaleiknum, Magni og Höttur,
eru vitanlega bæði búin að tryggja
sér sæti í 2. deildinni en leikurinn
um þriðja sætið, sem er vanalega
heldur þýðingarlítil viðureign,
verður spennuþrungin í dag. ÍH
og Kári, frá Akranesi, geta með
sigri tryggt sér síðasta sætið í 2.
deildinni og verður því væntan-
lega barist til síðasta blóðdropa.
Leikurinn fer fram á Kaplakrika-
velli, heimavelli Íslandsmeistara
FH. eirikur.asgeirsson@frettabladid.is
ÚR LEIK HK OG ÞÓRS Gunnar Líndal, markvörður Þórs, hefur gripið knöttinn áður en
Jón Þorgrímur Stefánsson, leikmaður HK, komst til hans. Bæði lið verða í eldlínunni í
dag. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
HK getur tryggt úrvalsdeildarsætið
Tólf þýðingarmiklir leikir fara fram í neðri deildum karla í dag. HK getur tryggt sér úrvalsdeildarsæti
ásamt því að leikurinn um þriðja sæti 3. deildarinnar er nú í fyrsta sinn spennuhlaðin viðureign.
HVAÐ GERIST Í DAG?
1. deild karla
KÓPAVOGSVÖLLUR: HK-VÍKINGUR Ó. 14.00
HK getur tryggt sér sæti í úrvalsdeild karla en má
tapa ef Fjölnir tapar.
Víkingur Ó. er í 9. sæti deildarinnar og í bullandi
fallhættu.
AKUREYRARVÖLLUR: ÞÓR-FRAM 14.00
Fram getur með jafntefli tryggt sér sigur í deild-
inni.
Þór er í neðsta sæti deildarinnar og þarf nauðsyn-
lega á sigri að halda.
FJÖLNISVÖLLUR: FJÖLNIR-LEIKNIR 14.00
Fjölnir á enn möguleika á að ná 2. sæti deildar-
innar en þarf að vinna í dag til að halda í þá von.
Leiknir er enn í fallhættu þó hún sé ekki mikil.
VALBJARNARVÖLLUR: ÞRÓTTUR-KA 14.00
KA er tæknilega séð í fallhættu en það er afar fjar-
lægur möguleiki.
ÁSVELLIR: HAUKAR-STJARNAN 14.00
Haukar eru enn í talsverðri fallhættu og sigur í
dag myndi fleyta liðinu afar langt.
STAÐAN
FRAM 16 12 2 2 31-13 38
HK 16 10 2 4 30-16 32
FJÖLNIR 16 8 4 4 23-14 28
ÞRÓTTUR 16 8 1 7 18-16 25
STJARNAN 16 5 5 6 22-20 20
KA 16 5 3 8 21-24 18
LEIKNIR 16 4 5 7 20-23 17
HAUKAR 16 4 4 8 18-26 16
VÍKINGUR Ó. 16 3 6 7 14-21 15
ÞÓR 16 3 4 9 13-37 13
Tvö lið komast upp, eitt lið fellur.
2. deild karla
HÚSAVÍKURV.: VÖLSUNGUR-KS/LEIFT. 14.00
SANDGERÐISV.: REYNIR S.-FJARÐAB. 14.00
SEYÐISFJARARV.: HUGINN-NJARÐVÍK 14.00
Huginn er í næstneðsta sæti deildarinnar og þarf
sigur í dag ef Sindri vinnur sinn leik. Ef Sindri gerir
jafntefli heldur Huginn sæti sínu þrátt fyrir tap.
SINDRAVELLIR: SINDRI-AFTURELDING 14.00
Sindri er í botnsæti deildarinnar og þarf nauðsyn-
lega á sigri að halda.
ÍR-VÖLLUR: ÍR-SELFOSS 14.00
STAÐAN
FJARÐABYGGÐ 17 13 2 2 37-11 41
NJARÐVÍK 17 12 4 1 43-12 40
REYNIR S. 17 9 5 3 36-16 32
SELFOSS 17 7 6 4 26-16 27
ÍR 17 7 3 7 34-32 24
VÖLSUNGUR 17 5 4 8 23-32 19
AFTURELDING 17 5 3 9 27-40 18
KS/LEIFTUR 17 4 4 9 24-33 16
HUGINN 17 2 4 11 24-40 10
SINDRI 17 2 3 12 18-60 9
Þrjú lið komast upp, eitt lið fellur.
3. deild karla
Leikur um 1. sætið:
VILHJÁLMSVÖLLUR: HÖTTUR-MAGNI 12.00
Bæði lið eru komin upp í 2. deild.
Leikur um 3. sætið:
KAPLAKRIKAVÖLLUR: ÍH-KÁRI 14.00
Sigurvegari leiksins kemst upp í 2. deild.
FÓTBOLTI Ashley Cole hefur nú
sagt frá því að hann hafi hafnað
því að fara til Real Madrid og
valið Chelsea fram yfir spænska
félagið. Cole gæti leikið sinn
fyrsta leik fyrir Chelsea í dag
þegar meistararnir fá Charlton í
heimsókn.
„Arsene Wenger sagði mér að
bæði Chelsea og Real Madrid
hefðu áhuga á mér og ég er mjög
ánægður að vera hér hjá Chel-
sea,“ sagði þessi 25 ára bak-
vörður.
„Liðið hefur unnið deildina tvö
ár í röð og er með frábæran
fyrirliða, John Terry, ásamt
nokkrum enskum leikmönnum.
Þetta er metnaðarfullt félag og
vonandi á ég eftir að vinna
Meistaradeildina og fleiri
verðlaun með því,“ sagði Ashley
Cole. - dsd
Ashley Cole:
Hafnaði
Real Madrid
ASHLEY COLE Segist vera kominn til
Chelsea til að vinna til verðlauna.
FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY IMAGES
FÓTBOLTI Ronaldinho skvetti olíu á
eldinn í gær þegar hann lét hafa
eftir sér að Chelsea yrði auðveld
bráð þegar Barcelona mætir
ensku meisturunum í Meistara-
deild Evrópu í næsta mánuði.
„Þeir verða auðveldir andstæð-
ingar vegna þess að nýju leik-
mennirnir, Schevchenko, Ballack
og Cole, verða ekki búnir að
aðlagast leik liðsins,“ sagði
Ronaldinho og hann hélt áfram:
„Flestir halda að Chelsea verði
okkar helsti andstæðingur í
þessum riðli en ég ber mikla
virðingu fyrir liði Werder
Bremen. Það verður mjög erfitt
viðureignar.“ - dsd
Ronaldinho egnir Chelsea:
Chelsea verður
auðveld bráð
RONALDINHO OG LAMPARD Skiptast hér
á treyjum. Þeir mætast í næsta mánuði í
Meistaradeild Evrópu.
NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES
FÓTBOLTI Á laugardaginn síðasta fór Wayne Rooney
út að borða með unnustu sinni, Coleen McLoug-
hlin, og þremur öðrum pörum. Þetta væri svo sem
ekki í frásögur færandi nema fyrir að það að
Michael Gray, leikmaður Blackburn, vatt sér upp
að borðinu þeirra, undir áhrifum áfengis og byrj-
aði að móðga kvenfólkið sem þar var. Þetta á að
hafa endað með því að Rooney kýldi Gray með
þeim afleiðingum að Gray fékk glóðurauga.
„Wayne og Coleen fóru ásamt vinum sínum út
að borða þegar Michael Gray kemur að borðinu
óboðinn og byrjaði að móðgaði Coleen og hinar
stelpurnar. Wayne bað hann oft um að fara og láta
þau í friði. Hvað Wayne varðar þá var þetta minni-
háttar mál og hann ber engan kala til Michael
Gray,“ sagði talsmaður Wayne Rooney. Lögreglan í
Manchester staðfesti við fréttastofu BBC að ekk-
ert atvik sem tengdist þessu máli hefði verið til-
kynnt.
Rooney er að taka út leikbann þessa dagana
bæði með félagi sínu, Manchester United, og með
enska landsliðinu eftir rauða spjaldið sem hann
fékk gegn Portúgal á HM. Neikvæð umræða er því
ekki efst á óskalista hans þessa dagana. Til að bæta
gráu á svart hefur hans gamli stjóri hjá Everton,
David Moyes, ákveðið að kæra Rooney vegna
fyrsta hluta ævisögu kappans sem kom út í sumar.
Í henni ásakar Rooney Moyes um að hafa útskúfað
honum úr liði Everton, sem hafi síðan orðið til þess
að hann var seldur til Manchester United.
- dsd
Wayne Rooney í útistöðum við Michael Gray, leikmann Blackburn:
Wayne Rooney á að hafa kýlt
Michael Gray á veitingastað
MICHAEL GRAY OG WAYNE ROONEY Berjast hér um boltann.
Þeir eiga víst að hafa barist á öðrum vígstöðum um síðustu
helgi. NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES
FÓTBOLTI The Sun greinir frá því í
gær að BBC, breska ríkissjón-
varpið, muni á næstunni sýna
heimildarmynd sem muni sýna að
mútugreiðslur séu algengar hjá
félögum í ensku úrvalsdeildinni. Í
þættinum var viðtal við umboðs-
maður knattspyrnumanna tekið
upp með faldri myndavél þar sem
hann nefnir tíu úrvalsdeildarfé-
lög og sex knattspyrnustjóra sem
áttu að hafa tekið þátt í víðtæku
hneykslismáli sem tengist mútu-
greiðslum í kringum félagaskipti
leikmanna.
„Þetta er frekar magnað efni,“
sagði innherji á BBC í viðtali við
The Sun. „Ég viss um að það eru
nokkrir einstaklingar sem kvíða
mjög sýningu þáttarins. Þetta gæti
haft meiriháttar afleiðingar í för
með sér fyrir viðkomandi aðila.“
Þátturinn sem um ræðir heitir
Panorama og er sýndur á BBC.
Útsendari þáttarins dulbjó sig
sem erlendan kaupsýslumann sem
snæddi kvöldverð með þekktum
umboðsmanni sem ræddi opin-
skátt um þessi mútumál. Sérstak-
lega var rætt um félagaskiptamál
eins félags og segir téður umboðs-
maður að keppinautar hans hafi
fengið viðskipti félagsins gegn því
að greiða háttsettum starfsmönn-
um félagsins undir borðið.
Þá mun umboðsmaðurinn
einnig hafa sagt frá því að hann
hafi farið með efnilegan átján ára
ungling til tveggja félaga þó svo
að hann hafi verið samningsbund-
inn öðru félagi. Áætlað er að þátt-
urinn verði sýndur hinn 18. sept-
ember næstkomandi en
lögfræðingar BBC eru þó enn að
fara yfir innihald þáttarins.
Ef staðhæfingar umboðs-
mannsins reynast sannar verður
málið hið stærsta sinnar tegundar
í Englandi síðan að George
Graham var rekinn frá Arsenal
eftir að upp komst að hann hafi
þegið 425 þúsund pund í mútu-
greiðslur frá Rune Hauge,
umboðsmanni frá Noregi. Tals-
maður BBC vildi ekki tjá sig um
málið við blaðamann The Sun. - esá
GRAHAM ÓVINSÆLL George Graham
er ekki vinsæll hjá stuðningsmönnum
Arsenal eftir að hann var rekinn frá
félaginu eftir mútuhneyksli árið 1995
og tók síðar við Tottenham, erkifjendum
liðsins. NORDIC PHOTOS/GETTY
Ný heimildarmynd frá BBC mun valda miklu uppþoti hjá enskum félögum:
Nýtt mútuhneyksli væntanlegt
hjá enskum úrvalsdeildarfélögum
FÓTBOLTI Enska knattspyrnufélag-
ið Liverpool hefur fengið leyfi frá
borgaryfirvöldum til að reisa
nýja leikvang. Völlurinn mun
taka 60 þúsund áhorfendur og
heildarkostnaður fyrsta hluta
verkefnisins er um 215 milljónir
punda. Borgaryfirvöld sam-
þykktu í gær leigusamning fyrir
næstu 999 árin á svæði sem heitir
Stanley Park og er eingöngu um
300 metra frá Anfield.
„Ef Liverpool getur fjármagn-
að verkefnið er félaginu frjálst að
byrja byggingu strax í janúar,“
sagði talsmaður borgarinnar. - dsd
Liverpool FC:
Liverpool bygg-
ir nýjan völl
ANFIELD ROAD Liverpool hefur leikið á
vellinum í 114 ár en hyggst nú færa sig
um set. NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES