Fréttablaðið - 09.09.2006, Side 94
9. september 2006 LAUGARDAGUR58
HRÓSIÐ FÆR …
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
LÁRÉTT
2 hróss 6 bogi 8 skaut 9 þrot 11
slá 12 duglegur 14 skaga upp 16
drykkur 17 galdrastafur 18 struns 20
vörumerki 21 maður.
LÓÐRÉTT
1 rúm 3 gat 4 hjálpsamur 5 rá 7
plana 10 málmur 13 nálægar 15
svari 16 hald 19 íþróttafélag.
LAUSN
LÁRÉTT: 2 lofs, 6 ýr, 8 pól, 9 mát, 11
rá, 12 iðinn, 14 gnæfa, 16 te, 17 rún,
18 ark, 20 ss, 21 karl.
LÓÐRÉTT: 1 rými, 3 op, 4 fórnfús, 5
slá, 7 ráðgera, 10 tin, 13 nær, 15 ansi,
16 tak, 19 kr.
FRÉTTIR AF FÓLKI
Íslenska landsliðið í knattspyrnu
skellti sér út á lífið á miðviku-
dagskvöldið eftir tapleikinn gegn
Dönum. Velflestir landsliðs-
mennirnir voru samankomnir á
Vegamótum og tóku undir sig efri
hæð staðarins. Meðal gesta voru
fyrirliðinn Eiður Smári Guðjohn-
sen, Hermann Hreiðarsson, Ívar
Ingimarsson, Indriði Sigurðsson
og Brynjar Björn Gunnarsson,
auk sjónvarpsmannanna Sverr-
is Sverrissonar og
Auðuns Blöndal.
Landsliðsmennirnir
skemmtu sér hið
besta og hafa
eflaust náð að
þjappa sér
vel saman
fyrir næsta
leik.
Ekkert útlit er fyrir að Tvíhöfði
snúi aftur á öldur ljósvakans. Eins
og Fréttablaðið greindi frá fyrir
skemmstu áttu þeir Sigurjón
Kjartansson og Jón Gnarr í við-
ræðum við Sigrúnu Stefánsdóttur
og hennar fólk á Rás 2 um að
stjórna vikulegum þætti á stöðinni.
Tvíhöfðamönnum
þótti tilboð Rásar
2 skammarlegt og
síðan þeir höfnuðu
því hefur ekkert
gerst. Aðdáendur
Tvíhöfða verða því
að bíða enn um
sinn eftir að þeir
félagar snúi
aftur.
Aðdáendur stórsöngvarans Björg-
vins Halldórssonar ýta nú á um
að bætt verði við þriðju stórtón-
leikunum með kappanum síðar
í mánuðinum. Eins og kunnugt
er seldist upp á hvora tveggja
tónleika hans í Laugardalshöllinni
hinn 23. september, á nokkrum
klukkutímum. Enn er þó mikil eft-
irspurn eftir miðum og í DV í gær
var haft eftir Björgvin að
ákvörðunin um
þriðju tónleikana
yrði tekin fljótlega.
Ekki stendur á Bó
sjálfum, það eru
hinir 130 listamenn-
irnir sem fram koma
sem eiga eftir að
staðfesta giggið.
- hdm
... Jónsi og félagar hans í Sigur
Rós sem ætla að dveljast í viku
í Svasílandi og hjálpa börnum
sem misst hafa foreldra sína úr
alnæmi.
„Já það er rétt við ákváðum að loka
í gær vegna veðurs,“ segir Óttarr
Hrafnkelsson, forstöðumaður
ylstrandarinnar í Nauthólsvík,
sem var lokuð í gær vegna veðurs,
enda mikil rigning og rok á Suður-
landi í gær. Óttarr segist ekki vita
til þess að þurft hafi að loka yls-
tröndinni áður vegna veðurs en
þetta er í það minnsta í fyrsta
skiptið sem hann lokar síðan hann
tók við fyrir tveimur árum.
„Við getum náttúrlega ekki
lokað allri ströndinni en við læst-
um okkar húsi og skrúfuðum fyrir
heita vatnið þannig að ekki var
hægt að fara í sturtu eða pottana,“
segir Óttarr en að hans sögn eru
erlendir bakpokaferðalangar
helstu gestir strandarinnar þessa
dagana sem nota ókeypis sturtu-
aðstöðuna óspart.
Ylströndin er opin frá 15. maí
til 15. september á hverju ári og er
aðsóknin ávallt góð enda er þetta
útivistarsvæði fyir unga sem
aldna. Um átta manns vinna á
ströndinni sem er opin alla daga
frá tíu á morgnana til átta á kvöld-
in. „Aðsóknin í sumar var ágæt
miðað við tiltölulega sólarlaust
sumar,“ segir Óttarr en hann býst
við að opna ströndina aftur í dag.
- áp
Nauthólsvík lokuð vegna veðurs
NAUTHÓLSVÍK Ekki var útlitið svona gott í Nauthólsvíkinni í gær enda þurftu starfs-
menn að loka vegna veðurs. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Guðjón Arnar Kristjánsson
alþingismaður hefur stundað
sundlaugarnar undanfarin tvö ár
af miklum dugnaði. „Ég reyni að
koma því við eins oft og ég get að
skella mér í sund,“ segir þing-
maðurinn, sem syndir að meðal-
tali tvisvar í hverri viku.
„Ég reyni að sleppa aldrei úr
viku en það er mjög misjafnt
hvað ég syndi mikið í hvert skipti.
Það getur verið allt frá 300 metr-
um upp í kílómetra. Þegar ég fer
í sundlaugina í Mosfellsbæ þá
syndi ég 30-40 ferðir. Það er alveg
ágætt,“ segir Guðjón og bætir því
við að þetta sé nú aðallega heilsu-
bót. „Ef einhver kíló fjúka þá er
það bara til bóta.“
Guðjón reynir að koma við í
sundlaugum þegar hann er á ferð
um landið en myndi gjarnan vilja
hafa tíma til að komast oftar í
sund. „Annars fæ ég ágætis útrás
yfir sumartímann þegar ég er að
puða í kringum sumarhúsið.“
Hann segist þó ekki vera eins
mikill sundgarpur og flokksbróð-
ir hans, Sigurjón Þórðarson.
„Hann fer létt með að synda einn
til tvo kílómetra og syndir mjög
oft. Enda held ég að hann eigi enn
einhver héraðsmet í Skagafirðin-
um,“ segir sundgarpurinn Guð-
jón Arnar Kristjánsson.
sigridurh@frettabladid.is
GUÐJÓN ARNAR KRISTJÁNSSON: SYNDIR SÉR TIL HEILSUBÓTAR
Til bóta ef kílóin fjúka
Í VARMÁRLAUG Guðjón Arnar er mikill sundkappi og reynir að sleppa aldrei úr heilli viku frá sundiðkun. FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRÐUR
BAKSUND Guðjón Arnar syndir 30-40 ferðir þegar hann fer í sund. Hér syndir hann
baksund, en hann er nokkurn veginn jafnvígur á allar sundaðferðirnar.
Íþróttakappinn fyrrverandi og rit-
höfundurinn Þorgrímur Þráinsson
kemur fram sem leynigestur í
nýjum íslenskum raun-
veruleikaþætti, Frægir í
form, sem hefur göngu
sína á Skjá einum í
nóvember.
Þorgrímur mun
feta í fótspor hins
eina sanna Fabio,
sem var leynigestur í
upprunalega þættin-
um, hinum ástralska
Celebrity Over-
haul, sem einnig
verður sýndur á
Skjá einum. Í
honum er þekkt-
um persónum
komið í form á mettíma og er beitt
nokkuð óhefðbundnum aðferðum
til þess. Í íslensku útgáfunni munu
sjö þátttakendur m.a. fara í
stífa sex vikna þjálfun hjá
Boot Camp.
„Hann dettur inn í
þetta með þeim og fer í
gegnum prógrammið
sem hann er með. Hann
er svona meira viðmið og
hvati fyrir hina,“ segir
Björn Þórir Sigurðsson hjá
Skjá einum. „Hann fetar
í fótspor Fabio enda ljóshærður og
síðhærður.“
Upptökur á þættinum
hófust um síðustu
helgi og hafa þær
gengið afar vel.
„Fólk er að taka á,
þetta eru ekki
einhverjar
sumarbúðir,“
segir Björn sem
bætir því við að
læknar og nær-
ingarsérfræð-
ingar fylgist
með hverju
spori þátttak-
endanna.
Eins og
Fréttablaðið
greindi frá á dögunum verður
Árni Johnsen á meðal þátttakenda
ásamt Idol-stjörnunni Ragnheiði
Söru og leikaranum Ara Matthías-
syni. Auk þeirra hafa bæst í hóp-
inn Elín Reynisdóttir, fegurðar-
drottning og sminka, Þórdís
Lóa Þórhallsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Pizza Hut, og
Gaui litli, sem reyndar hefur
átt við eymsli í baki að
stríða. Kynnir þáttarins
verður tónlistarmaður-
inn Sigurjón Brink.
- fb
Þorgrímur verður hinn íslenski Fabio
ÞORGRÍMUR ÞRÁINS-
SON Rithöfundurinn og
íþróttakappinn fyrrver-
andi tekur þátt í nýjum
raunveruleikaþætti.
FABIO Kyntröllið Fabio er fyrir-
myndin að Þorgrími Þráinssyni
í þættinum.
1. Forsætisráðherra Bretlands,
Tony Blair
2. CCP
3. Árni M. Mathiesen
[ VEISTU SVARIÐ? ]
Svör við spurningum á síðu 8
1 dálkur 9.9.2005 15:21 Page 8